Orgel Grensáskirkju fékk nýtt líf í Saurbæ Magnús Jochum Pálsson skrifar 19. ágúst 2026 12:01 Jón Valgarðsson og Erik Pálsson með orgelinu í Hallgrímskirkju í Saurbæ. Rudiger Þór Seidenfaden Fyrir tæpum þrjátíu árum tók Grensáskirkja nýtt orgel í notkun og hefur gamla orgelið síðan þá nýst í kennslu. Söfnuður kirkjunnar ákvað svo í vetur að færa Hallgrímskirkju í Saurbæ gamla orgelið. Um páskana var orgelið tekið í notkun í Saurbæ og síðasta sunnudag var haldin sameiginleg mess safnaðanna þar sem gjöfinni var formlega fylgt úr hlaði.
Orgelið er frá þýska framleiðandanum Steinmayer, kom fyrst til landsins árið 1970 og bættu dönsku orgelsmiðirnir Bruno Christensen & Sönner síðar einni bassarödd við orgelið. Það var notað til margra ára í helgihaldi Grensássóknar þar til nýtt orgel var tekið í notkun árið 1998. Síðan þá hefur það verið notað til kennslu þar til ákveðið var að gefa því nýtt líf í Hallgrímskirkju í Saurbæ Ásta organisti og fiðleikarar, ásamt gestum.Rudiger Þór Seidenfaden Að lokinni messu í Grensáskirkju sunnudaginn 16. ágúst síðastliðinn hélt hátt í þrjátíu manna hópur fólks úr söfnuðinum í ferð í Saurbæ á Hvalfjarðarströnd til að fylgja orgelgjöfinni úr hlaði. Sameiginleg messa Grensássafnaðar og safnaðarins í Hallgrímskirkju fór fram af þessu tilefni klukkan 14 þann daginn. Erik Pálsson, formaður sóknarnefndar Grensáskirkju, flutti ávarp við helgihaldið og afhenti formanni sóknarnefndar Hallgrímskirkju í Saurbæ innrammað skjal með texta um orgelið og gjöfina. Prestar kirkjanna sáu um helgihald. Rudiger Þór Seidenfaden Hópurinn samanstóð meðal annars af kirkjukór Grensáskirkju, Ástu Haraldsdóttur organista, fulltrúum sóknarnefndar og safnaðarins. Séra Þorvaldur Víðisson, sóknarprestur Grensáskirkju tók þátt í helgihaldinu, sem séra Þráinn Haraldsson og séra Ólöf Margrét Snorradóttir leiddu, og lék Gréta Zimsen á fiðlu ásamt Rósu Jóhannesdóttur. Margrét Bóasdóttir fyrrum söngmálastjóri þjóðkirkjunnar stjórnaði sameiginlegum kór heimamanna og kirkjukórs Grensáskirkju við undirleik Ástu organista. Að loknu helgihaldinu bauð sóknarnefndin og heimafólk upp á messukaffi í prestssetrinu í Saurbæ í blíðskapar veðri þar sem Hvalfjörðurinn skartaði sínu fegursta. Formennirnir Einar Karl Haraldsson og Erik Pálsson með orgelið á milli sín.Rudiger Þór Seidenfaden
Þjóðkirkjan Tímamót Hvalfjarðarsveit Reykjavík Mest lesið Steinn Ármann er látinn Lífið Davíð Þór um fráfall Steins Ármanns: „Engin orð. Bara sorg“ Lífið Kjóllinn brann korter í brúðkaup Lífið Fór létt með tíu kílómetra: „Við sjáumst bara í markinu gamla mín“ Lífið Svona voru afmælistónleikar Bylgjunnar á Menningarnótt Lífið Krakkatía vikunnar: Svampur Sveinsson og Sesarsalatið Lífið „Maður veit aldrei hvað framtíðin ber í skauti sér“ Lífið Úlfadrengurinn í Sierra Morena allur Lífið Leikkonan Bunny Levine er látin Lífið Bautista hleypur í skarðið Bíó og sjónvarp Fleiri fréttir Orgel Grensáskirkju fékk nýtt líf í Saurbæ Eitt myndband selji upp heilu lagerana Byrjaði sem þráhyggja fyrir rapplagi á spítala Jón Viðar fellir dóm yfir Ódysseifskviðu án þess að sjá hana Hulda Hákon, Jón Óskar og Krassasig á ListaVestrinu Aðsóknarmet slegið á brúðulistahátíð á Hvammstanga Dreymdi um að á bókasafninu væri bók eftir sig Skólastika Gamalíelsdóttir vekur undrun Íslendinga Sýning Bjarkar bæði væmin og stórkostleg og leggur til stofnun Bjarkarsafns Sjá meira