Byrjaði sem þráhyggja fyrir rapplagi á spítala Dóra Júlía Agnarsdóttir skrifar 10. ágúst 2026 20:00 Listakonan Ragnhildur Jóhanns opnar sýninguna Ég er vel synd í Listasal Mosfellsbæjar næstkomandi föstudag. Instagram „Þessi verk eru rétt og sönn því þau spretta algjörlega upp úr kjarna mínum og frá heila sem stundum fer í gegnum erfið veikindatímabil,“ segir myndlistarkonan Ragnhildur Jóhannsdóttir sem fékk rapplag á heilann meðan hún lá á spítala og í kjölfarið kviknaði hugmynd að listasýningu sem hún opnar næsta föstudag.
Hughreystandi rapptónar Blaðamaður ræddi við Ragnhildi um sýninguna en titill hennar er „Ég er vel synd“, sem er bein þýðing á línu úr laginu „Rah Tah Tah" eftir rapparann Tyler, the Creator. „Ég hlustaði mikið á plötuna meðan ég lá á spítala. Þar er margt valdeflandi og hughreystandi sem settist á heilabörkinn, en ein lína sat föst: „I flood this, I flood that, I swim good, I'm pisces.“ Flæðið er sett fram sem hæfileiki en ekki veikleiki og þar sem ég er líka í fiskamerkinu talaði þetta sérstaklega til mín. Það varð til þess að ég fletti upp fæðingardegi Tylers til að skoða þá tengingu betur kom í ljós að hann er fæddur 6. mars 1991, á fjórtán ára afmælisdaginn minn. Það jók á þráhyggjuna frekar en að draga úr henni.“ Ragnhildur hlustaði mikið á Tyler The Creator og fann meðal annars innblástur og kraft þaðan.Instagram Tengir við tvo póla með Bipolar tvö Upphafið á innblæstri sýningarinnar er einfalt að sögn Ragnhildar en blómið írisin hafði lengi verið henni hugleikin og hún hafði nýlokið við að gera seríu af svörtum írisum. „Hún vex í nánast öllum litum, þar á meðal laxableikum. Þaðan var stutt yfir í laxinn fyrir mig, úr litnum og yfir í fiskinn sjálfan en laxinn ber svo kjarnann í verkunum. Umbreytingin sem gerist ekki af vilja, heldur af eðli, það á hann sameiginlegt með írisinni. Í smoltun tapar laxinn einkennismerkjum seiðisins og skiptir um lit og mynstur til að komast úr ferskvatni yfir í saltvatn. Það er ekki meðvituð ákvörðun fisksins, það er líffræði sem tekur völdin. Fiskamerkið sjálft liggur beint við, tveir fiskar sem synda hvor gegn öðrum og þar tengi ég við mína eigin tvo póla verandi með bipolar II.“ Féllust hendur og setti hendur í verkin Þannig hófst vinnan en hún gekk illa framan af að sögn Ragnhildar. Hendur Ragnhildar urðu hluti af viðfangsefninu.Instagram „Fyrsta olíuverkið er án handa, aðeins blóm og roð, og fyrstu vatnslitaverkin sömuleiðis, meðvitað ókláruð. Hugmyndin um fiska hafði náð tangarhaldi á mér en gekk mjög brösuglega í úrvinnslu. Þá féllust mér hendur. Uppgjöfin sjálf varð hluti af myndefninu og mínar eigin hendur féllu inn í verkin, bókstaflega. Þess vegna tala ég um tangarhald. Orðabókarskilgreiningin er að ná tökum á einhverju, einkum með vafasömum hætti en það lýsir ferlinu öllu nokkuð vel. Hugmyndin kviknar við veikindi, hún er ein lína úr rapplagi og í kjölfarið fylgdi tímabil þar sem mér reyndist erfitt að greina og vinna úr eigin hugmyndum.“ Á endanum varð mikilvægara fyrir Ragnhildi að klára hana en að kasta henni frá sér fyrir eitthvað nýtt konsept sem væri fagurfræðilega og hugmyndafræðilega „réttara“. „Þessi verk eru rétt og sönn því þau spretta algjörlega upp úr kjarna mínum og frá heila sem stundum fer í gegnum erfið veikindatímabil.“ Sýningin opnar í Listasal Mosfellsbæjar næstkomandi föstudag.Aðsend Á sýningunni verða átján ný verk, átta olíumálverk og tíu vatnslitaverk. Hún opnar föstudaginn 14. ágúst kl 16-18 í Listasal Mosfellsbæjar og stendur til 11. september.
Myndlist Menning Geðheilbrigði Sýningar á Íslandi Tónlist Mest lesið Ung og upprennandi: „Pabbi segir mér alveg að hætta þessu“ Lífið Minntist pabba síns Johns Snorra: „Að sjálfsögðu hringdi ég í pabba!“ Lífið Vinsældirnar skipti miklu máli fyrir arfleifð Johns Snorra Lífið Lækna-Tómas og Ármann skemmtu sér á safninu Menning Barnaspítalabindi Billy stal senunni Tíska og hönnun Eva Marie Saint er látin Lífið „Það væri ekki hægt að skrifa þetta handrit“ Lífið Kristrún valdi Victoriu Beckham Tíska og hönnun „Ég geri bara ráð fyrir því að fólk sé búið að gleyma mér“ Tónlist Svona getur lyfjaskammtarinn einfaldað daglegt líf Lífið samstarf Fleiri fréttir Lækna-Tómas og Ármann skemmtu sér á safninu Sex hundruð sungu fyrir Brynhildi Málverk af Danakonungi vekur athygli Þura Stína nýr stjórnandi HönnunarMars Skvísur í svakalegu stuði á Svikasögum Frægir í fjöri yfir framtíðinni Varkár Magga Bjarna fyllti Tjarnarbíó Kanónur komu saman í Hveragerði Eva Rún og Blær hljóta Barnabókaverðlaun Guðrúnar Helgadóttur Íslenskar Simpsons-þýðingar í bók: Teygju-túli ekki á færi gervigreindarinnar Skúli Tómas, Herbert og Ragnar í hörkustuði á Kjarval „Maður skynjaði eitthvað brothætt en það var hluti af sjarmanum“ Sjá meira