NBA í nótt: Enn sigrar Knicks Eiríkur Stefán Ásgeirsson skrifar 16. nóvember 2012 09:00 Carmelo Anthony í leiknum í nótt. Mynd/AP
Þrír leikir fóru fram í NBA-deildinni í körubolta í nótt. New York Knicks hefur unnið alla sex leiki sína á tímabilinu en í nótt hafði liðið betur gegn San Antonio Spurs, 104-100. Raymond Felton skoraði 25 stig fyrir New York sem skoraði 22 af 33 síðustu stigum leiksins. JR Smith var með sautján stig og Jason Kidd fjórtán. San Antonio brenndi af sjö af síðustu níu skotum sínum í leiknum og tapaði boltanum tvívegis síðustu tvær mínúturnar. Fram að leiknum í gær hafði San Antonio unnið sjö af átta fyrstu leikjunum sínum. Nágrannarnir í Brooklyn Nets unnu Boston Celtics, 102-97, og þar með sinn fjórða sigur í röð. Deron Williams og Brook Lopez skoruðu 24 stig hvor í leiknum. Rajon Rondo spilaði ekki með Boston vegna meiðsla og þá fór Paul Pierce illa að ráði sínu á lokamínútunni er hann klikkaði á tveimur mikilvægum skotum. Joe Johnson var með nítján stig og átta fráköst fyrir Brooklyn en Pierce skoraði 22 stig fyrir Boston. Leandro Barbosa bætti við sautján. Meistararnir í Miami unnu í nótt sinn sjöunda sigur á tímabilinu er liðið mætti Denver. Lokatölur voru 98-93, Miami í vil. LeBron James var með 27 stig og tólf stoðsendingar en þetta var fyrsti sigur Miami í Denver í rúman áratug. Shane Battier skoraði átján stig í leiknum - öll utan þriggja stiga línunnar. Dwyane Wade missti af leiknum í nótt vegna mei9ðsla og þá þurfti Mario Chalmers að fara af velli strax í fyrsta leikhluta vegna tognunar.
NBA Mest lesið Óvæntar vendingar á elleftu stundu hjá Elísu í einu sterkasta hlaupi í heimi Sport Forsetinn tjáir sig um niðurbrotinn Alvarez: „Þykir þetta mjög miður“ Fótbolti Jón Arnór byrjar að þjálfa Körfubolti „Ef enginn í NBA-deildinni getur stöðvað hann þá efast ég um að við vefjumst fyrir honum“ Körfubolti Eyjakonur og Haukar meistarar samkvæmt spánni Handbolti „Ég vona að ég þurfi ekki að dekka hann“ Körfubolti Tólf tíma þrekraun Elísu með þeim bestu í heimi: „Hentar mér mjög vel“ Sport Man. City verður meistari Sport Gætu spilað sinn fyrsta leik í deildinni fyrir Arsenal Enski boltinn Umdeild auglýsing heldur áfram að draga dilk á eftir sér Golf Fleiri fréttir „Ég vona að ég þurfi ekki að dekka hann“ „Ef enginn í NBA-deildinni getur stöðvað hann þá efast ég um að við vefjumst fyrir honum“ Jón Arnór byrjar að þjálfa Grindavík mokar inn verðlaunum Stólarnir gáfust upp á Adaway og semja við Murkey Svali hættur sem formaður en stutt í val á arftaka „Gripur sem safnarar bíða alla ævi eftir“ Reese rífur í sig metin Haukar fá risavaxinn liðsauka Fyrrverandi NBA leikmanni hent út úr húsi á kvennaleik Tindastóll tekur slaginn aftur í Evrópukeppni Kynlífsleikföngum aftur kastað inn á völlinn ÍR semur við sænsk-bandarískan bakvörð Strákarnir réðu ekki við Finnana Ísland tapaði fyrir Portúgal „Þurfum að gera skítaverkin betur en andstæðingurinn“ Sextán ára nýliði í landsliðinu: „Við erum að velja þær af því þær eru svo góðar“ ÍR semur við bandarískan bakvörð Íslenskan öll að koma til hjá nýliða landsliðsins „Takk fyrir mig körfubolti“ Pablo Bertone aftur í Val Keflavík heldur áfram að styrkja sig Hópurinn klár fyrir næsta skref að HM Berglind Katla valin í A-landsliðið aðeins 16 ára Yfir milljón í boði á nýrri íslenskri mótaröð Keflavík bætir við sig Bandaríkjamanni Krakkarnir bjuggu til sögulegt sumar fyrir íslenskan körfubolta Stjarnan fær 208 sentímetra miðherja Strákarnir sekúndum frá gullinu eftir frábæra frammistöðu „Hann var fyndinn, hann var hávær og hann var alltaf að grínast“ Sjá meira