Fagleg endurskoðun heilsugæslunnar Sif Gylfadóttir og Unnur Pétursdóttir sjúkraþjálfarar M.Sc. skrifar 13. janúar 2011 05:45 Af hverju í ósköpunum er þetta ekki kennt áður en maður er búinn að eyðileggja á sér bakið?" var spurt eitt sinn í bakskóla sem sjúkraþjálfarar héldu fyrir þá sem höfðu farið í bakaðgerðir á Borgarspítalanum. Sjúkraþjálfararnir fullyrtu að það stæði til bóta, það væri verið að vinna í því að fá stöðugildi sjúkraþjálfara við heilsugæsluna svo hægt væri að sinna einmitt þessum forvarnarþætti. Þetta var í nóvember árið 1989. Árið 1990 voru sett lög á Alþingi um stöðugildi sjúkraþjálfara í heilsugæslu. Í dag hefur enn ekkert gerst í þeim efnum. Það má e.t.v. segja ráðamönnum til vorkunnar að fjárhagslegan ávinning forvarna hefur ætíð verið vandasamt að reikna út, því hver eru hin raunverulegu verðmæti lífsgæða, heilbrigðis og heilsu? Fagleg endurskoðun og umræða um þjónustuhlutverk og vinnuferla heilsugæslunnar er löngu þörf í ljósi þróunar á heilsufarslegum vanda og afleiddum fjárhagslegum byrðum heilbrigðiskerfisins. Í dag geisar faraldur lífsstílssjúkdóma, s.s. háþrýstings, ákveðinna tegunda krabbameina, sykursýki (gerð II) og ýmissa hjarta- og æðasjúkdóma, auk þunglyndis. Ofnæring, offita og hreyfingarleysi barna og fullorðinna hefur aukist síðustu ár. Þessir þættir auka áhættuna á fyrrnefndum sjúkdómum auk stoðkerfisvandamála og draga í mörgum tilfellum úr starfsorku. Rannsóknir síðasta áratugar hafa sýnt að draga má úr líkum á lífsstílssjúkdómum með heilbrigðum lífsháttum. Þar skiptir mestu máli líkamleg hreyfing, hollt mataræði og reykleysi. Rannsóknir hafa jafnframt sýnt að lyf geta ekki kallað fram jafn víðtæk áhrif og hreyfing til bættrar heilsu. Þó svo að lyf geti verið nauðsynleg og hjálpað til við t.d. að lækka háþrýsting og blóðsykur (áhættuþætti margra sjúkdóma) þá getur regluleg hreyfing ekki einungis gert slíkt hið sama, heldur einnig minnkað áhættu á öðrum lífsstílssjúkdómum svo sem ýmsum krabbameinum og stuðlað almennt að góðri heilsu og bættri líðan. Afleiðingar lífsstílssjúkdóma taka æ stærri toll af útgjöldum til heilbrigðismála. Þegar rætt er um skipulagningu og uppbyggingu heilsugæslunnar þurfa því að koma að fagaðilar með sérþekkingu á fyrsta og annars stigs forvörnum, heilsuhegðun og sértækum leiðum til bættrar heilsu landsmanna. Þar ætti þekking sjúkraþjálfara á almennri og sértækri líkamlegri hreyfingu að koma að góðum notum. Hreyfing, sem ráðlögð er sérstaklega samkvæmt niðurstöðu greiningar, getur snúið við þróun lífsstílssjúkdóma og viðhaldið heilsu fólks sem býr við langvinnan heilsubrest. Sjúkraþjálfarar eiga náið samstarf við lækna og eru þátttakendur í heildrænu mati á heilsufari fólks skv. ICF flokkunarkerfinu (International Classification of Functioning, Disability and Health), sem gefið er út af Alþjóðaheilbrigðisstofnuninni. Sjúkraþjálfarar virkja fólk til bættrar heilsuhegðunar og ábyrgðar með því að fræða, ráðleggja, meta og greina hlutlægt, leggja upp áætlun í samvinnu við aðra fagaðila og fylgja henni eftir. Úrræðin eru byggð á rannsóknum á aðlögunarhæfni líkamans til bættrar líkamsstarfsemi með breyttri hegðun, hreyfingu og þjálfun. Þannig geta og ættu sjúkraþjálfarar einnig að vinna með öðrum fagaðilum í heilsugæslunni og vera hlekkur í því að veita heildstæða þjónustu sem er raunhæf, árangursrík og í takt við þarfir hvers einstaklings og vandamál 21. aldarinnar. Heilbrigðiskerfið á Íslandi miðast við að veita gæðaþjónustu sem er hagkvæm og árangursrík en kostnaður vegna veikinda og afleiðingar sjúkdóma og fötlunar er hins vegar stigvaxandi. Sjúkraþjálfarar hafa alla tíð notað nálgun sem er án lyfja og án skurðaðgerða, en lyf og skurðaðgerðir eru, eins og þekkt er, meðal dýrustu úrræða heilbrigðiskerfisins. Aðkoma sjúkraþjálfara með hlutlægu mati, fræðslu og leiðbeiningum í samræmi við niðurstöður mælinga, ávísun á skilgreind úrræði, stuðningur og handleiðsla með það að markmiði að fækka lífsstílssjúkdómum, er því í fullu samræmi við hlutverk heilsugæslunnar. Upplýst samfélag, hvetjandi umhverfi og fagleg þjónusta er grunnurinn að því að ná árangri. Sjúkraþjálfarar, með sinni sérþekkingu, geta lagt þung lóð á vogarskálarnar til að bæta heilsu landsmanna og lækka kostnað í heilbrigðiskerfinu. Nauðsynlegt er að nýta þá þekkingu sem er til í landinu til hagsbóta fyrir íbúa þess. Við höfum þá trú að með samstilltu átaki ætti íslenska þjóðin að geta orðið fyrirmynd annarra þjóða hvað varðar heilbrigði. Oft er það svo að þegar breytingar eða hagræðing eru nefndar bregðast heilbrigðisstarfsmenn hart við og mótmæla hástöfum. Það er ekkert undarlegt, gjarnan hefur þeirri umræðu fylgt krafan um aukið vinnuálag samfara kjaraskerðingu. Því er ekki úr vegi að fagstéttirnar taki nú frumkvæðið og ræði hvernig hægt sé að spyrna gegn heilsufarsvandanum, byggja upp þjónustu til bættrar heilsu landsmanna í ljósi takmarkaðra fjármuna, en jafnframt að gera heilsugæsluna að eftirsóknarverðum vinnustað þeirra fagstétta sem þar starfa. Viltu birta grein á Vísi? Kynntu þér reglur ritstjórnar um skoðanagreinar. Senda grein Unnur Pétursdóttir Mest lesið Ef Ísland gengur í Evrópusambandið flyt ég til Danmerkur Benedikt Jóhannesson Skoðun Skítamixsumarið mikla Hulda Hallgrímsdóttir Skoðun Gætum við haft það betra? Eydís Ásbjörnsdóttir Skoðun 30 dæmi um villandi framsetningu í efnahagsgreiningu Áfram Íslands Gauti B. Eggertsson Skoðun Þessir þröngsýnu ungu bændur Sunna Þórarinsdóttir Skoðun Ísland á eilífa hagsmuni en ekki eilífa bandamenn Lára Herborg Ólafsdóttir Skoðun Það eru breyttir tímar Þóroddur Ingvarsson Skoðun Þarftu að vita mikið um ESB til að kjósa 29. ágúst? Árný Elínborg Ásgeirsdóttir Skoðun Samningaviðræður um Evrópusambandsaðild, já eða nei? Magnús Tumi Guðmundsson Skoðun Já við fleiri verkfærum fyrir byggðir landsins Arna Lára Jónsdóttir Skoðun Skoðun Skoðun Því er ekki betur vandað til verka? Fanný Gunnarsdóttir skrifar Skoðun Hvaða samningsrammi gildir? Erna Bjarnadóttir skrifar Skoðun Gullasninn Guðjón Þórir Sigfússon skrifar Skoðun Samningaviðræður um Evrópusambandsaðild, já eða nei? Magnús Tumi Guðmundsson skrifar Skoðun SFS, hagsmunir og sannleikurinn Þórólfur Matthíasson skrifar Skoðun Daði í baði Bjarnheiður Hallsdóttir skrifar Skoðun Hégómi Haukur Eggertsson skrifar Skoðun Við getum þetta sjálf – en hver græðir á því? Margrét Högnadóttir skrifar Skoðun Þarf fimm háskólagráður til að segja já? Berglind Guðmundsdóttir skrifar Skoðun Já, já eða nei Þorsteinn Bergsson skrifar Skoðun Hvar má sleppa taumnum? Sigvaldi Einarsson skrifar Skoðun Um sameiginleg verðmæti og veikleika stjórnkerfisins Sigurður Sigurðsson skrifar Skoðun Nei við hindrunum - Ákvarðanir um Ísland á Íslandi Guðmundur Fertram Sigurjónsson skrifar Skoðun Ísland á eilífa hagsmuni en ekki eilífa bandamenn Lára Herborg Ólafsdóttir skrifar Skoðun Lífeyrissjóðirnir og aðalfundur Icelandair Kjartan Björgvinsson skrifar Skoðun Ísland og Færeyjar, yfirráð yfir auðlindum og fullveldi Ásgeir Daníelsson skrifar Skoðun Evrópskir hægrimenn eru Evrópusinnar Svavar Halldórsson skrifar Skoðun Evrópa - frá velferð til vígvæðingar Ólöf Benediktsdóttir skrifar Skoðun Ekki láta plata þig þann 29. ágúst Sveinn Atli Gunnarsson skrifar Skoðun Hver á fiskinn – og hvar verða verðmætin til? Baldur Johnsen skrifar Skoðun Gögnin sýna að Evrópa er langmikilvægasta markaðssvæði Íslands Gísli Hjálmtýsson skrifar Skoðun Grænland – áttu við Ísland? Damien Degeorges skrifar Skoðun Skítamixsumarið mikla Hulda Hallgrímsdóttir skrifar Skoðun Vextir, verðbólga, verðtrygging og íslenska veðráttan Árni Rúnar Þorvaldsson skrifar Skoðun 30 dæmi um villandi framsetningu í efnahagsgreiningu Áfram Íslands Gauti B. Eggertsson skrifar Skoðun Já til að sjá – áhættuspil? Guðmundur Edgarsson skrifar Skoðun Það eru breyttir tímar Þóroddur Ingvarsson skrifar Skoðun Er íslensk útgerð og kvótakerfi góð ástæða til að kjósa já 29. ágúst? Arndís Vala Arnfinnsdóttir skrifar Skoðun Ef Ísland gengur í Evrópusambandið flyt ég til Danmerkur Benedikt Jóhannesson skrifar Skoðun ESB hefur styrkt gróðahyggju á kostnað félagshyggju Ögmundur Jónasson skrifar Sjá meira
Skoðun 30 dæmi um villandi framsetningu í efnahagsgreiningu Áfram Íslands Gauti B. Eggertsson skrifar
Skoðun Er íslensk útgerð og kvótakerfi góð ástæða til að kjósa já 29. ágúst? Arndís Vala Arnfinnsdóttir skrifar