Stærsta rán Íslandssögunnar 16. desember 2011 06:00 Samkvæmt úrskurði Mannréttindanefndar Sameinuðu þjóðanna brýtur núverandi kvótakerfi á mannréttindum okkar og er til þess fallið að hamla nýliðun og jöfnun í sjávarútvegi með óbreyttu fyrirkomulagi. Ísland hefur samþykkt og undirritað og fullgilt alþjóðasamning um borgaraleg og stjórnmálaleg réttindi til að virða úrskurðarvald mannréttindanefndarinnar í kærumálum um meint brot á samningum og skuldbundið sig að þjóðarrétti til að fylgja niðurstöðum hennar eftir. Úr Þskj. 575 – 339. Máli, 135. Löggjafarþing 2007 -2008. Samfylkingin og VG lofuðu að innkalla gjafakvótann til LÍÚ þegar þeir kæmust til valda með 5% fyrningarleiðinni, loka ætti fyrir framsal og veðsetningu og setja fiskveiðiheimildir á markað. Kosningaloforð flokkanna var ekkert annað en skrumskæling og aðeins til þess fallið að blekkja almenning til að ná völdum. Því miður virðist margt benda til að stjórnmálamenn séu siðblindir og séu ekki að hugsa um almannahag, að minnsta kosti margir þeirra. Það var enginn málefnaágreiningur um innköllun kvótans þegar flokkarnir tveir voru að reyna að komast til valda, þar sem stjórnarsáttmálinn gekk út á innköllun kvótans. Ef fram fer sem horfir stefnir í að ríkisstjórnin fremji einn stærsta glæp gagnvart þjóð sinni að standa ekki við kosningaloforð um innköllun kvótans. Lögum og reglum er hagrætt eftir hvað hentar best hverju sinni, og að eigin geðþótta til að réttlæta vafasamar ákvarðanir. Foringjaræðið er algjört, sem sýnir sig best í því gegnum árin hvernig ákvörðunum og sýndarmennsku hjá flokksforingjum hefur verið háttað, t.d. með upphrópunum um að þeir ætli og geti kannski hugsað sér þetta svona og svona, jafnvel megi almenningur kjósa um fiskveiðistefnuna ef þeim skyldi þóknast það, eða eftir því hvernig þeir sjá þetta fyrir sér hverju sinni. Það er með ólíkindum að ríkisstjórnin skyldi reyna að leysa kvótadeiluna með því að skipa í samningsnefnd sem oft er vitnað í fyrir hönd ríkisstjórnar Björn Val, sem er ekkert annað en málsvari Guðmundar Kristjánssonar í útgerðarfélaginu Brimi, og bæjarstýruna á Dalvík, Svanfríði Jónasdóttur, sem er málsvari Samherja, þar sem hagsmunatengsl virðast augljós hjá þeim báðum, enda var ekki mikil málefnaágreiningur hjá þeim að ná samkomulagi við LÍÚ þar sem allt á að vera eftir þeirra höfði. Stjórnarformaður LÍÚ er útgerðarmaður en hann er einnig í umsvifamiklum hótelrekstri, hann fer kannski fram á að loka öllum gistiheimilum í landinu til að hámarka arðsemi hótela, sem í kjölfarið myndi hámarka arðsemi hans enn meira? Þetta mætti gera í ýmsum öðrum greinum með hagræði og arðsemi að leiðarljósi öllum til hagsbótar miðað við hvaða sýn þeir hafa og vilja sjá hlutina í. Það hefur jafnt og þétt sigið á ógæfuhliðina hjá þjóðinni eftir að kvótakerfi var sett á 1983 og heilu byggðarlögin voru lögð í rúst með tilheyrandi skuldasöfnun, þar sem nýir ofurríkir sægreifar hafa skekkt alla samkeppnisstöðu með braski og framsali. Öðru hverju eru einn og einn skipsverji á ofurlaunum og aðrir hagsmunaaðilar í greininni, sem reyna að verja þetta svínarí með staðlausum óróðri. Ríkisstjórnin fékk gott tækifæri til að laga þetta kerfi þegar Landsbankinn yfirtók ÚA af Brimi og seldi Samherja, að viðkomandi kvóti skyldi þá ekki vera innleystur og úthlutað til byggðarlaga sem hafa lítinn kvóta! Það er skiljanlegt að þeim útgerðarmönnum sem keyptu kvóta sé umbunað, en þó ekki þeim sem fengu kvótann mest allan gefins. Sumir þykjast hafa keypt 90% kvótans og fengið 10% gefins, þó því sé oft öfugt farið. Þá hefði þeim mátt vera ljóst að þetta var sameiginleg auðlind þjóðarinnar sem átti ekki að selja eða veðsetja! Þetta núverandi kerfi er ekki betra en svo að það eru afskrifaðar skuldir hjá útgerðum um allt land upp á hundruð milljarða sem skattgreiðendur eiga svo að borga til að viðhalda þessum þjófnaði. Þetta kerfi á svo að reyna að réttlæta og endurnýja til næstu 23 ára ef ekki lengur. Það er með ólíkindum að þessi norræna velferðarstjórn skuli ekki hafa séð sóma sinn í að draga saman útgjöld í utanríkismálum t.d. með því að loka sendiráðum og draga úr ferðakostnaði erlendis. Á sama tíma er þúsundum heimila að blæða út og dregið er saman í heilbrigðiskerfinu með lokunum, sem er til þess fallið að auka enn á hörmungar almennings. Það hefði verið hægt að lágmarka þessar aðhaldsaðgerðir ef stjórnvöld hefðu fylgt sínum kosningahugsjónum með veiðileyfagjaldi og innköllun kvótans, þar sem núverandi fiskveiðistefna er ekkert annað en þjófnaður og hryðjuverk við þjóðina, sem viðgengst helst í bananalýðveldi. Viltu birta grein á Vísi? Kynntu þér reglur ritstjórnar um skoðanagreinar. Senda grein Skoðanir Mest lesið Ef Ísland gengur í Evrópusambandið flyt ég til Danmerkur Benedikt Jóhannesson Skoðun Skítamixsumarið mikla Hulda Hallgrímsdóttir Skoðun Gætum við haft það betra? Eydís Ásbjörnsdóttir Skoðun 30 dæmi um villandi framsetningu í efnahagsgreiningu Áfram Íslands Gauti B. Eggertsson Skoðun Ísland á eilífa hagsmuni en ekki eilífa bandamenn Lára Herborg Ólafsdóttir Skoðun Þessir þröngsýnu ungu bændur Sunna Þórarinsdóttir Skoðun Þarftu að vita mikið um ESB til að kjósa 29. ágúst? Árný Elínborg Ásgeirsdóttir Skoðun Já við fleiri verkfærum fyrir byggðir landsins Arna Lára Jónsdóttir Skoðun Það eru breyttir tímar Þóroddur Ingvarsson Skoðun Þarf fimm háskólagráður til að segja já? Berglind Guðmundsdóttir Skoðun Skoðun Skoðun Hvaða samningsrammi gildir? Erna Bjarnadóttir skrifar Skoðun Gullasninn Guðjón Þórir Sigfússon skrifar Skoðun Samningaviðræður um Evrópusambandsaðild, já eða nei? Magnús Tumi Guðmundsson skrifar Skoðun SFS, hagsmunir og sannleikurinn Þórólfur Matthíasson skrifar Skoðun Daði í baði Bjarnheiður Hallsdóttir skrifar Skoðun Hégómi Haukur Eggertsson skrifar Skoðun Við getum þetta sjálf – en hver græðir á því? Margrét Högnadóttir skrifar Skoðun Þarf fimm háskólagráður til að segja já? Berglind Guðmundsdóttir skrifar Skoðun Já, já eða nei Þorsteinn Bergsson skrifar Skoðun Hvar má sleppa taumnum? Sigvaldi Einarsson skrifar Skoðun Um sameiginleg verðmæti og veikleika stjórnkerfisins Sigurður Sigurðsson skrifar Skoðun Nei við hindrunum - Ákvarðanir um Ísland á Íslandi Guðmundur Fertram Sigurjónsson skrifar Skoðun Ísland á eilífa hagsmuni en ekki eilífa bandamenn Lára Herborg Ólafsdóttir skrifar Skoðun Lífeyrissjóðirnir og aðalfundur Icelandair Kjartan Björgvinsson skrifar Skoðun Ísland og Færeyjar, yfirráð yfir auðlindum og fullveldi Ásgeir Daníelsson skrifar Skoðun Evrópskir hægrimenn eru Evrópusinnar Svavar Halldórsson skrifar Skoðun Evrópa - frá velferð til vígvæðingar Ólöf Benediktsdóttir skrifar Skoðun Ekki láta plata þig þann 29. ágúst Sveinn Atli Gunnarsson skrifar Skoðun Hver á fiskinn – og hvar verða verðmætin til? Baldur Johnsen skrifar Skoðun Gögnin sýna að Evrópa er langmikilvægasta markaðssvæði Íslands Gísli Hjálmtýsson skrifar Skoðun Grænland – áttu við Ísland? Damien Degeorges skrifar Skoðun Skítamixsumarið mikla Hulda Hallgrímsdóttir skrifar Skoðun Vextir, verðbólga, verðtrygging og íslenska veðráttan Árni Rúnar Þorvaldsson skrifar Skoðun 30 dæmi um villandi framsetningu í efnahagsgreiningu Áfram Íslands Gauti B. Eggertsson skrifar Skoðun Já til að sjá – áhættuspil? Guðmundur Edgarsson skrifar Skoðun Það eru breyttir tímar Þóroddur Ingvarsson skrifar Skoðun Er íslensk útgerð og kvótakerfi góð ástæða til að kjósa já 29. ágúst? Arndís Vala Arnfinnsdóttir skrifar Skoðun Ef Ísland gengur í Evrópusambandið flyt ég til Danmerkur Benedikt Jóhannesson skrifar Skoðun ESB hefur styrkt gróðahyggju á kostnað félagshyggju Ögmundur Jónasson skrifar Skoðun Hver ætlar að hafa augun á boltanum? Hnikarr Bjarmi Franklínsson skrifar Sjá meira
Skoðun 30 dæmi um villandi framsetningu í efnahagsgreiningu Áfram Íslands Gauti B. Eggertsson skrifar
Skoðun Er íslensk útgerð og kvótakerfi góð ástæða til að kjósa já 29. ágúst? Arndís Vala Arnfinnsdóttir skrifar