Hannes og Pálmi skiluðu ekki í tíma 24. febrúar 2011 07:00 Pálmi Haraldsson
Mál gegn sjö fyrrverandi eigendum og stjórnendum Glitnis hefur verið tekið upp að nýju fyrir dómstóli í New York í Bandaríkjunum, að sögn Steinunnar Guðbjartsdóttur, formanns slitastjórnar Glitnis. Ástæðan er sú að tveir hinna stefndu, þeir Hannes Smárason og Pálmi Haraldsson, skrifuðu ekki undir yfirlýsingu um að ef á Íslandi félli dómur slitastjórninni í hag væri hægt að ganga að eignum sjömenninganna í Bandaríkjunum. Fyrir vikið var málið upp að nýju. Steinunn segir að dómarinn í New York hafi gert þá kröfu að sjömenningarnir skyldu allir skrifa undir yfirlýsinguna. „Þessar yfirlýsingar lágu ekki fyrir í lok janúar og þá var málinu áfrýjað af hálfu Glitnis þar sem skilyrðin höfðu ekki verið uppfyllt," segir Steinunn. Samkvæmt heimasíðu dómstólsins virðist Hannes þó hafa skilað inn yfirlýsingunni í gær. Þar er hins vegar ekki að finna yfirlýsingu Pálma. Steinunn hafði ekki frétt af yfirlýsingu Hannesar þegar Fréttablaðið ræddi við hana í gær. Ekki er vitað hvenær fyrirtaka verður í málinu. Aðrir stefndu eru Jón Ásgeir Jóhannesson, Ingibjörg Pálmadóttir, Lárus Welding, Jón Sigurðsson og Þorsteinn M. Jónsson.- kh
Fréttir Mest lesið Alvotech tekur stökk eftir greiningu Bank of America Viðskipti innlent Elkem segir tollfrelsi geta skilað 350 milljónum á ári Viðskipti innlent Barilla og Himneskt víkja fyrir breiðara pastaúrvali Neytendur Högnuðust um hálfan annan milljarð Viðskipti innlent Innkalla milljónir bíla vegna innfelldra hurðahúna Viðskipti erlent Sýn+ verður líka línuleg sjónvarpsstöð Viðskipti innlent Fasteignaverð rokið upp eftir inngöngu í ESB Viðskipti innlent Hætta við kaup á vef- og útvarpsmiðlum Sýnar Viðskipti innlent Reglugerðir ESB hafi „sérstaklega slæm áhrif á Ísland“ Viðskipti innlent Mátti rifta kaupum á bíl sem bilaði þremur dögum eftir kaup Neytendur Fleiri fréttir Alvotech tekur stökk eftir greiningu Bank of America Högnuðust um hálfan annan milljarð Elkem segir tollfrelsi geta skilað 350 milljónum á ári Sýn+ verður líka línuleg sjónvarpsstöð Hætta við kaup á vef- og útvarpsmiðlum Sýnar Reglugerðir ESB hafi „sérstaklega slæm áhrif á Ísland“ Fasteignaverð rokið upp eftir inngöngu í ESB Landsbankinn hækkar líka vexti Jón Þór fer til Samherja Þorgeir Pálsson nýr mannauðsstjóri Háskólans á Bifröst „Eftir að koma í ljós“ hvort íslenskar áhafnir manni leiguflug Icelandair Sektaður um 65 milljónir fyrir miðlun innherjaupplýsinga Síminn orðinn Ásar hf Icelandair kaupir helming í dreggjum Play á 83 milljónir Ekkert fékkst upp í mörg hundruð milljóna króna kröfur Ekkert nýtt að frétta af boðuðum kaupum Telur ESB-viðræður engu breyta um verðbólgu og stýrivexti Minni íbúafjölgun minnkar þörfina á nýjum íbúðum Vaxtahækkun sé röng og illa tímasett Indó hækkar vexti vegna stýrivaxtahækkunar „Þetta er sagt af mikilli virðingu“ „Bull og vitleysa“ að hækkunin bíti ekki á verðtryggð lán Bein útsending: Opinn fundur um samspil stýrivaxta og verðbólgu „Það eru engin fórnarlömb hér“ Bein útsending: Rökstyðja stýrivaxtahækkun Hækka stýrivexti Elfa Ýr lætur af störfum hjá Fjölmiðlanefnd Þessir voru tekjuhæstu læknarnir og tannlæknarnir í fyrra Benedikt langlaunahæsti bankastjórinn Fleiri en markaðurinn leggja við hlustir Sjá meira