Boston jafnaði metin Eiríkur Stefán Ásgeirsson skrifar 7. júní 2010 09:10 Ray Allen og Paul Pierce í leiknum í nótt. Mynd/AP
Boston vann í nótt sigur á LA Lakers, 103-94, í lokaúrslitum NBA-deildarinnar í körfubolta og jafnaði þar með stöðuna í rimmu liðanna í 1-1. Ray Allen átti stórleik í fyrri hálfleik og Rajon Rondo fór mikinn allan leikinn. Sá síðarnefndi náði glæsilegri þrefaldri tvennu - nítján stigum, tólf fráköstum og tíu stoðsendingum, er Boston varð fyrsta liðið í úrslitakeppninni í ár til að vinna á heimavelli Lakers. Allen átti einnig stórleik. Hann skoraði 32 stig, þar af komu 27 stig í fyrri hálfleik. Hann setti niður alls átta þrista í leiknum en það er met í sögu lokaúrslita NBA-deildarinnar. Næstu þrír leikir fara nú fram á heimavelli Boston sem getur þar með klárað rimmuna á heimavelli. Boston hafði yfirhöndina lengst af í leiknum og staðan í hálfleik var 54-48, gestunum í vil. En snemma í þriðja leikhluta náði Lakers að jafna metin og komast yfir um stundarsakir. Leikurinn var spennandi þar til að Boston byrjaði á 11-0 spretti þegar þrjár mínútur voru til leiksloka. Staðan var 98-90 þegar rúm mínúta var til leiksloka og sigurinn í raun tryggður. Pau Gasol var stigahæstur hjá heimamönnum með 25 stig en þeur Andrew Bynum og Kobe Bryant skoruðu 21 stig hvor. Allen og Rondo voru stigahæstir hjá Boston en næsir komu Kendrick Perkins með tólf stig og Paul Pierce með tíu.
NBA Mest lesið Ólafur fékk rautt spjald eftir sjö sekúndur í endurkomunni Handbolti „Þeir eru að fara í Evrópuleik bara til að halda klúbbnum á floti“ Fótbolti Carragher lýstur gjaldþrota en sagður ætla að borga skuldina Enski boltinn Svali hættur sem formaður en stutt í val á arftaka Körfubolti Óvænt hætt sem þjálfari af persónulegum ástæðum Handbolti Minnst 447 milljónir í boði fyrir Víkinga í kvöld Fótbolti Snýr aftur til uppeldisfélagsins frítt Fótbolti Liverpool langt komið með að tryggja sér Barcola Enski boltinn Sá rautt eftir nokkrar sekúndur: „Maður lætur muna eftir sér“ Handbolti Slagsmál og allt á suðupunkti þegar Fenerbahçe sló út Lyon Fótbolti Fleiri fréttir Svali hættur sem formaður en stutt í val á arftaka „Gripur sem safnarar bíða alla ævi eftir“ Reese rífur í sig metin Haukar fá risavaxinn liðsauka Fyrrverandi NBA leikmanni hent út úr húsi á kvennaleik Tindastóll tekur slaginn aftur í Evrópukeppni Kynlífsleikföngum aftur kastað inn á völlinn ÍR semur við sænsk-bandarískan bakvörð Strákarnir réðu ekki við Finnana Ísland tapaði fyrir Portúgal „Þurfum að gera skítaverkin betur en andstæðingurinn“ Sextán ára nýliði í landsliðinu: „Við erum að velja þær af því þær eru svo góðar“ ÍR semur við bandarískan bakvörð Íslenskan öll að koma til hjá nýliða landsliðsins „Takk fyrir mig körfubolti“ Pablo Bertone aftur í Val Keflavík heldur áfram að styrkja sig Hópurinn klár fyrir næsta skref að HM Berglind Katla valin í A-landsliðið aðeins 16 ára Yfir milljón í boði á nýrri íslenskri mótaröð Keflavík bætir við sig Bandaríkjamanni Krakkarnir bjuggu til sögulegt sumar fyrir íslenskan körfubolta Stjarnan fær 208 sentímetra miðherja Strákarnir sekúndum frá gullinu eftir frábæra frammistöðu „Hann var fyndinn, hann var hávær og hann var alltaf að grínast“ Strákarnir í úrslitaleikinn og upp í A-deild eftir risasigur Sló tvo leikmenn í andlitið og lét vísa áhorfanda út „Hinn fullkomni keppnismaður“ leggur skóna á hilluna Keyrðu yfir Svartfellinga undir lokin og undanúrslitin bíða Gætu rekið íslenska ríkissjóðinn fyrir kaupverðið á Lakers Sjá meira