Fjögur NBA-lið skiptu um leikmenn í gær Óskar Ófeigur Jónsson skrifar 12. ágúst 2010 12:00 Darren Collison. Mynd/AP
Það voru stór leikmannaskipti í NBA-deildinni í körfubolta í gær þegar fjögur skiptu á milli sín leikmönnum. Liðin sem skiptu á leikmönnum voru Indiana Pacers, New Orleans Hornets, New Jersey Nets og Houston Rockets. Framherjinn Troy Murphy fer frá Indiana til New Jersey, leikstjórnandinn Darren Collison og framherjinn James Posey fara frá New Orleans til Indiana, bakvörðurinn Courtney Lee fer frá New Jersey til Houston og framherjinn Trevor Ariza fer frá Houston til New Orleans. Darren Collison stóð sig vel í forföllum Chris Paul á síðasta tímabili og var með 12,4 stig og 5,7 stoðsendingar að meðaltali þar af 18,8 stig og 9,1 stoðsendingar í leik þegar hann var í byrjunarliðinu. Troy Murphy hefur spilað 262 leiki fyrir Indiana og var með 13,3 stig og 9,2 fráköst að meðaltali í þeim. Hann er öflugur frákastari og góð þriggja stiga skytta sem sést á því að hann er með 39 prósent þriggja stiga nýtingu á ferlinum,. James Posey hefur orðið NBA-meistari með bæði Miami (2006) og Boston (2008) en hann var aðeins með 5,2 stig og 4,3 fráköst að meðaltali með New Orleans á síðasta tímabili. Trevor Ariza varð NBA-meistari með Los Angeles Lakers 2009 en fékk síðan betri samning og fór til Houston þar sem hann var með 14,9 stig að meðaltali í leik á síðasta tímabili. Courtney Lee sló í gegn hjá Orlando Magic sem nýliði tímabilið 2008-09 en hann fór síðan til New Jersey þar sem hann var með 12,5 stig að meðaltali í leik.
NBA Mest lesið Ólafur fékk rautt spjald eftir sjö sekúndur í endurkomunni Handbolti Carragher lýstur gjaldþrota en sagður ætla að borga skuldina Enski boltinn Dregið í Meistaradeild: Hákon mætir Arsenal og Bayern Fótbolti Svali hættur sem formaður en stutt í val á arftaka Körfubolti „Þeir eru að fara í Evrópuleik bara til að halda klúbbnum á floti“ Fótbolti UEFA undirbýr kæru á hendur Infantino Fótbolti Freyr valinn bestur: „Í byrjun mánaðarins var ég ekki með vinnu“ Fótbolti Snýr aftur til uppeldisfélagsins frítt Fótbolti Óvænt hætt sem þjálfari af persónulegum ástæðum Handbolti Grindavík mokar inn verðlaunum Körfubolti Fleiri fréttir Grindavík mokar inn verðlaunum Stólarnir gáfust upp á Adaway og semja við Murkey Svali hættur sem formaður en stutt í val á arftaka „Gripur sem safnarar bíða alla ævi eftir“ Reese rífur í sig metin Haukar fá risavaxinn liðsauka Fyrrverandi NBA leikmanni hent út úr húsi á kvennaleik Tindastóll tekur slaginn aftur í Evrópukeppni Kynlífsleikföngum aftur kastað inn á völlinn ÍR semur við sænsk-bandarískan bakvörð Strákarnir réðu ekki við Finnana Ísland tapaði fyrir Portúgal „Þurfum að gera skítaverkin betur en andstæðingurinn“ Sextán ára nýliði í landsliðinu: „Við erum að velja þær af því þær eru svo góðar“ ÍR semur við bandarískan bakvörð Íslenskan öll að koma til hjá nýliða landsliðsins „Takk fyrir mig körfubolti“ Pablo Bertone aftur í Val Keflavík heldur áfram að styrkja sig Hópurinn klár fyrir næsta skref að HM Berglind Katla valin í A-landsliðið aðeins 16 ára Yfir milljón í boði á nýrri íslenskri mótaröð Keflavík bætir við sig Bandaríkjamanni Krakkarnir bjuggu til sögulegt sumar fyrir íslenskan körfubolta Stjarnan fær 208 sentímetra miðherja Strákarnir sekúndum frá gullinu eftir frábæra frammistöðu „Hann var fyndinn, hann var hávær og hann var alltaf að grínast“ Strákarnir í úrslitaleikinn og upp í A-deild eftir risasigur Sló tvo leikmenn í andlitið og lét vísa áhorfanda út „Hinn fullkomni keppnismaður“ leggur skóna á hilluna Sjá meira