Enn eitt áfallið fyrir Ernu Björk - óttast um slitin krossbönd Óskar Ófeigur Jónsson skrifar 22. mars 2010 19:00 Erna Björk Sigurðardóttir. Mynd/Stefán
Þjálfari kvennaliðs Breiðabliks óttast að Erna Björk Sigurðardóttir, fyrirliði Breiðabliks og byrjunarliðsmaður í íslenska kvennalandsliðinu, sé með slitin krossbönd. Erna Björk meiddist á landsliðsæfingu um helgina. Vefmiðillinn Sport.is greindi frá þessu í dag. Þetta yrði þá í fjórða skiptið á ferlinum sem Erna Björk verður fyrir því áfalli að slíta krossbönd á hné en hún sleit einnig krossbönd í lok september 2000, í lok ágúst 2002 og í apríl 2007. Jóhannesi Karl Sigursteinsson þjálfari Breiðabliks sagði í viðtali við sport.is að þetta gæti einnig verið annaðhvort liðþófi eða liðbönd. Erna Björk blómstraði sem miðvörður með Breiðabliksliðinu í fyrrasumar og var einn besti leikmaður Pepsi-deildar kvenna en hún vann sér meðal annars inn byrjunarliðssæti í íslenska kvennalandsliðinu. Erna Björk er í íslenska landsliðshópnum sem mætir Serbíu og Króatíu 27. og 31. mars og þessi meiðsli þýða að hún verður ekki með í þessum leikjum. Sigurður Ragnar Eyjólfsson, landsliðsþjálfari, velur væntanlega nýjan leikmann í hópinn í staðinn, en hann þarf einnig að finna glænýjan miðvörð við hlið fyrirliðans Katrínar Jónsdóttur því Guðrún Sóley Gunnarsdóttir og Erna Björk hafa leyst þá stöðu og þær eru núna báðar meiddar.
Íslenski boltinn Mest lesið Létu leikmenn og stjórn Stjörnunnar heyra það: „Skandall, fáránlegt og ljótt“ Íslenski boltinn Ætlar að rústa markametinu og skora 30 mörk Íslenski boltinn Kom inn á fyrir KR aðeins 14 ára Íslenski boltinn Birta þrumuræðu Freys fyrir leik gegn Noregsmeisturunum Fótbolti Sjáðu sögulegt mark João Pedro í sigri Chelsea Enski boltinn Ræddu innkomu Eiðs Smára: „Mér finnst stórfurðulegt að Hallgrímur sé enn þá þarna“ Íslenski boltinn Hamilton iðrast orða sinna: „Axla ábyrgð og mun gera betur“ Formúla 1 Harvey Elliott virðist ekki vera hluti af framtíð Liverpool Enski boltinn Sjáðu sjö marka veisluna í sigri Fram Kópavogi í gær Íslenski boltinn Haukar fá risavaxinn liðsauka Körfubolti Fleiri fréttir Ræddu innkomu Eiðs Smára: „Mér finnst stórfurðulegt að Hallgrímur sé enn þá þarna“ Tókust á í beinni um atvikið umdeilda upp á Skaga Ætlar að rústa markametinu og skora 30 mörk Létu leikmenn og stjórn Stjörnunnar heyra það: „Skandall, fáránlegt og ljótt“ Sjáðu sjö marka veisluna í sigri Fram Kópavogi í gær Kom inn á fyrir KR aðeins 14 ára „Maður var aldrei alveg rólegur“ Uppgjörið: Breiðablik - Fram 3-4 | Fram kláraði dæmið í fyrri hálfleik Ágúst Orri mættur í hollensku úrvalsdeildina Hræðileg nýting Blika í hornum: „Eins og þetta sé ekkert æft“ „Fæ skítinn í fangið strax frá fyrsta degi“ Átta marka veisla í fyrsta leik Eiðs Smára og Víkingsvélin mallar áfram Uppgjörið: Víkingur - Valur 2-0 | Frábærar tíu mínútur voru nóg í Víkinni Kvaddi stuðningsmenn Víkings: „Það er hluti af mér núna“ „Aron er frábær leikmaður en ég vil samt fá meira frá honum“ Uppgjörið: KA - KR 3-5 | Aron með þrennu fyrir norðan „Fiðringurinn breyttist smá í að kúgast annað slagið“ Haukar komnir upp í Lengjudeildina Uppgjörið: ÍA - FH 1-1 | Jafnt á Skaganum Uppgjörið: Keflavík - ÍBV 1-0 | Keflvíkingar tengdu saman sigra í fyrsta skipti í sumar Uppgjörið: Stjarnan - Þór 4-2 | Stjarnan sýndi sparihliðarnar með nýja menn við stjórnvölinn Sara skoraði tvö og Haukar fóru upp í annað sætið Njarðvíkingar stöðvuðu sigurgöngu Húsvíkinga Ísfirðingar geta andað léttar HK vann enn einn heimaleikinn og Fylkir flengdi Grindavík Sjáðu Bergdísi bjarga botnliðinu, kraftaverk Lillýar og óheppni fyrirliðans „Kærkomið að fá eitt svona mark“ „Ég skora náttúrulega ekki oft þannig að þetta er eiginlega kraftaverk“ „Ég þekki náttúrulega Ásdísi svolítið vel“ Sjáðu Eið Smára stýra sinni fyrstu æfingu með KA Sjá meira
Ræddu innkomu Eiðs Smára: „Mér finnst stórfurðulegt að Hallgrímur sé enn þá þarna“ Íslenski boltinn
Ræddu innkomu Eiðs Smára: „Mér finnst stórfurðulegt að Hallgrímur sé enn þá þarna“ Íslenski boltinn