Einar: Eigum að vera með besta liðið Eiríkur Stefán Ásgeirsson skrifar 8. nóvember 2009 15:51 Einar Jónsson, þjálfari Fram. Mynd/Anton
Einar Jónsson segir að það hefði verið alger óþarfi að hleypa spennu í leik sinna manna í Fram gegn Haukum á Ásvöllum í dag. Fram vann í dag Hauka í N1-deild kvenna, 27-24, í Hafnarfirði. Framarar náðu ágætu forskoti í síðari hálfleik en Haukar náðu að minnka muninn í eitt mark þegar tvær mínútur voru eftir. „Það var alger óþarfi að hleypa spennu í leikinn undir lokin. Við vorum hins vegar að gera of mörg mistök. En þrátt fyrir það vorum við betri allan leikinn. Varnarleikurinn var á löngum köflum góður og heilt yfir fannst mér sóknarleikurinn líka góður," sagði Einar. „Mér finnst því úrslitin ekki gefa rétta mynd af leiknum og það er okkur sjálfum að kenna." Hann sagði það mikilvægt að vinna leiki gegn hinum toppliðunum í deildinni. „Við vorum búin að tapa fyrir Stjörnunni og þetta var því prófraun fyrir okkur upp á framhaldið að gera. Við stóðumst þetta próf og ætlum okkur að vera áfram í toppbaráttunni." Stjarnan og Valur eru á toppi deildarinnar með tíu stig en Fram og Haukar koma þar á eftir. „Stjarnan og Valur eru ekki með betra lið en Fram og Haukar," sagði Einar. „Mér finnst að við eigum að vera með besta liðið ef við erum í lagi og gerum hlutina almennilega."
Olís-deild kvenna Mest lesið Áfall í undirbúningi Íslands fyrir HM Handbolti Liverpool og City muni ekki berjast um titilinn Enski boltinn „Fiðringurinn breyttist smá í að kúgast annað slagið“ Íslenski boltinn Átta marka veisla í fyrsta leik Eiðs Smára og Víkingsvélin mallar áfram Íslenski boltinn Hamilton pirraður á Ferrari: „Erfitt að horfa á þetta“ Formúla 1 „Búinn að missa töluna af leikmönnum sem FH-ingar eru búnir að fá“ Sport Emery bað Watkins um að útskýra fjarveru sína: „Það er spurning fyrir hann“ Enski boltinn „Verið að drekkja þeim í áhyggjum að þetta verði bara aftur sama sagan“ Enski boltinn Salah skoraði fyrstu mörkin fyrir Trabzonspor Fótbolti Fyrrverandi NBA leikmanni hent út úr húsi á kvennaleik Körfubolti Fleiri fréttir Áfall í undirbúningi Íslands fyrir HM Gísli Þorgeir með níu mörk í níu skotum þegar Magdeburg vann Ofurbikarinn Díana varð meistari meistaranna eftir vítakeppni Fjórtán ára undrabarn spilar með Þorsteini Leó Landsliðskona í Val Breki nýtir sér ráð Viktors og er klár í harðan slag í Portúgal Mun Guðmundur reisa Holland við? Rekinn eftir óásættanleg samskipti við yngri leikmenn Elvar fer frá Magdeburg til Löwen: „Frábær bónus að spila með Hauki frænda“ Glænýtt gólf fyrir frumraun Arons en stúkurnar bíða Daníel með slitna hásin Kallar eftir naflaskoðun í norskum handbolta: „Bilið í fremstu þjóðir hefur aukist“ Rifu sig upp eftir vonbrigðin í gær og unnu Frakka eftir rosa endasprett Raunveruleiki sem þú getur ekki forðast Uppgjörið: Ísland - Þýskaland 31-33 | Þjóðverjar áttu alltaf svar Fylgist stoltur með litla bróður á EM: „Verið draumur hans í mjög langan tíma“ Með fullt hús stiga á leið í úrslitakeppni Mögnuð tilþrif Íslendingsins unga vekja athygli Viktor Gísli framlengir við Barcelona Stráklingarnir okkar fóru illa með Króata í fjórða sigrinum í röð á EM Costa-bræðurnir eftirsóttu völdu Flensburg Unnu leikina í riðlinum með samtals 32 mörkum og Króatar og Portúgalir bíða Strákarnir áfram með fullt hús Ungverjagrýlan hrjáir ekki U18 lið Íslands Yngsti Skipagötu-bróðirinn skoraði þrettán mörk í fyrsta leik á EM Fjórtán marka stórsigur í fyrsta leik Var sagt upp á stórafmælinu og er haldinn út í heim Besti handboltamaður heims fór í markið Hafnaði mörgum góðum tilboðum og fór frekar heim „Ekki bara handbolti, heldur lífið líka“ Sjá meira