Fjórða árið í röð sem meistararnir detta út í 16-liða úrslitum Eiríkur Stefán Ásgeirsson skrifar 5. mars 2008 12:45 Kaka og félagar í AC Milan eru úr leik. Nordic Photos / AFP
Evrópumeistarar AC Milan urðu að játa sig sigraða gegn Arsenal á heimavelli í gær en þetta var fjórða árið í röð sem ríkjandi Evrópumeistarar falla úr leik í 16-liða úrslitum deildarinnar. Barcelona, Liverpool og Porto féllu einnig úr leik í 16-liða úrslitunum á sínum tíma en þar áður höfðu ríkjandi meistarar aldrei dottið úr leik svo snemma í keppninni. Síðan að nafni keppninnar var breytt úr Evrópukeppni Meistaraliða í Meistaradeild Evrópu hefur engu liði tekist að verja Evrópumeistaratitilinn. Marseille varð meistari fyrsta árið eftir að nýja nafnið var tekið upp og er eina liðið sem fékk ekki tækifæri til að verja titilinn ári síðar. Ríkjandi Evrópumeistarar hafa ekki komist í sjálfan úrslitaleikinn síðan að Juventus gerði það vorið 1997 og töpuðu óvænt fyrir Borussia Dortmund. Dortmund er annað tveggja liða sem datt úr leik í undanúrslitum sem Evrópumeistari. Real Madrid hefur tvívegis dottið úr leik í undanúrslitum, árin 2001 og 2003. Fjögur lið hafa dottið úr leik í fjórðungsúrslitum sem Evrópumeistarar. Þau eru Real Madrid (1999), Manchester United (2000), Bayern München (2002) og AC Milan (2004). Af þeim tólf liðum sem eru enn með í keppninni í ár hafa fimm orðið Evrópumeistarar eftir að nafni keppninnar var breytt. Inter varð Evrópumeistari árin 1964 og 1965 en hin liðin sex hafa aldrei orðið Evrópumeistarar. Af þeim sex liðum eru tvö komin áfram í fjórðungsúrslitin - Arsenal og Fenerbahce. Hin fjögur - Chelsea, Olympiakos, Schalke og Roma eru öll að keppa í kvöld um að halda í vonina um sinn fyrsta Evrópumeistaratitil.
Meistaradeild Evrópu Mest lesið Harvey Elliott virðist ekki vera hluti af framtíð Liverpool Enski boltinn Baulað á Alvarez hjá Atletico Madrid Fótbolti Er annar hestur kominn í hlaupið um heimsmeistaratitilinn? Formúla 1 Cody Gakpo orðaður við Manchester City Enski boltinn Uppgjörið: Breiðablik - Fram 3-4 | Fram kláraði dæmið í fyrri hálfleik Íslenski boltinn Dybala mataði þrennu fyrir Malen gegn Fiorentina Fótbolti „Maður var aldrei alveg rólegur“ Íslenski boltinn Ísak Andri nálgast sænsku úrvalsdeildina Fótbolti Chelsea sigldi sigrinum heim eftir að hafa náð forystu eftir 30 sekúndur Enski boltinn Ágúst Orri mættur í hollensku úrvalsdeildina Íslenski boltinn Fleiri fréttir Baulað á Alvarez hjá Atletico Madrid Cody Gakpo orðaður við Manchester City „Maður var aldrei alveg rólegur“ Harvey Elliott virðist ekki vera hluti af framtíð Liverpool Ísak Andri nálgast sænsku úrvalsdeildina Chelsea sigldi sigrinum heim eftir að hafa náð forystu eftir 30 sekúndur Uppgjörið: Breiðablik - Fram 3-4 | Fram kláraði dæmið í fyrri hálfleik Ágúst Orri mættur í hollensku úrvalsdeildina Dybala mataði þrennu fyrir Malen gegn Fiorentina Watkins virðist vilja fara frá Aston Villa Newcastle að fá miðjumann Man. City Skutu flugeldum að áhorfendum Efast um Iraola: „Hvar eru stóru strákarnir“ Þorlákur tekinn til starfa í Sádi-Arabíu Hræðileg nýting Blika í hornum: „Eins og þetta sé ekkert æft“ „Fæ skítinn í fangið strax frá fyrsta degi“ Reknu vinirnir mætast í London Myndi ekki sofa á nóttunni: „Enn þá bara sama gamla Tottenham“ Boltinn sem „hönd guðs“ snerti seldur á uppboði Býður sig ekki fram gegn Infantino en býst við mótframboði Átta marka veisla í fyrsta leik Eiðs Smára og Víkingsvélin mallar áfram Liverpool og City muni ekki berjast um titilinn Sjáðu mörkin: Dramatík hjá Liverpool og City en hrun hjá Aston Villa „Verið að drekkja þeim í áhyggjum að þetta verði bara aftur sama sagan“ Emery bað Watkins um að útskýra fjarveru sína: „Það er spurning fyrir hann“ Salah skoraði fyrstu mörkin fyrir Trabzonspor Hófu titilvörnina með fimm marka sigri Uppgjörið: Víkingur - Valur 2-0 | Frábærar tíu mínútur voru nóg í Víkinni Kvaddi stuðningsmenn Víkings: „Það er hluti af mér núna“ „Aron er frábær leikmaður en ég vil samt fá meira frá honum“ Sjá meira