Hlutabréf gefa ekkert eftir 26. júní 2007 06:45 Kauphöll Íslands.
Hlutabréfamarkaðurinn heldur áfram að hækka en Úrvalsvísitalan náði nýju hámarki í gær í 8.279 stigum. Frá áramótum hefur vísitalan hækkað um 29,1 prósent og styttist óðfluga í það að hún hafi hækkað tvöfalt meira en allt árið í fyrra. Greiningardeildir viðskiptabankanna spáðu því fyrr á árinu að árshækkun Úrvalsvísitölunnar yrði á bilinu 30-37 prósent. Það jafngilti því að vísitalan stæði í 8.333-8.782 stigum um næstu áramót. Í Vegvísi Greiningardeildar Landsbankans er bent á það að Úrvalsvísitalan hafi sýnt betri ávöxtun en flestar helstu hlutabréfavísitölur heims. Þýska DAX-vísitalan kemst næst þeirri íslensku með um 20,3 prósenta hækkun á árinu. Gengi tólf félaga hefur hækkað um fimmtung eða meira það sem af er ári. Hlutabréf í færeyska olíuleitarfyrirtækinu Atlantic Petroleum hafa rokið upp um 92 prósent en Vinnslustöðin kemur skammt á hæla þess með tæplega 89 prósenta hækkun. Krónan veiktist um 0,98 prósent í gær. Greiningardeild Kaupþings spáir því að yfirtaka Novators á Actavis geti stutt bæði við krónuna og hlutabréfamarkaðinn á næstunni þar sem greitt verður fyrir bréfin í evrum. Samkvæmt áætlunum Kaupþings gætu allt að sjötíu milljarðar króna streymt aftur inn á markaðinn.
Viðskipti Mest lesið Barilla og Himneskt víkja fyrir breiðara pastaúrvali Neytendur Elkem segir tollfrelsi geta skilað 350 milljónum á ári Viðskipti innlent Sýn+ verður líka línuleg sjónvarpsstöð Viðskipti innlent Högnuðust um hálfan annan milljarð Viðskipti innlent Innkalla milljónir bíla vegna innfelldra hurðahúna Viðskipti erlent Hætta við kaup á vef- og útvarpsmiðlum Sýnar Viðskipti innlent Alvotech tekur stökk eftir greiningu Bank of America Viðskipti innlent Fasteignaverð rokið upp eftir inngöngu í ESB Viðskipti innlent Reglugerðir ESB hafi „sérstaklega slæm áhrif á Ísland“ Viðskipti innlent Þessir voru tekjuhæstu læknarnir og tannlæknarnir í fyrra Viðskipti innlent Fleiri fréttir Alvotech tekur stökk eftir greiningu Bank of America Högnuðust um hálfan annan milljarð Elkem segir tollfrelsi geta skilað 350 milljónum á ári Sýn+ verður líka línuleg sjónvarpsstöð Hætta við kaup á vef- og útvarpsmiðlum Sýnar Reglugerðir ESB hafi „sérstaklega slæm áhrif á Ísland“ Fasteignaverð rokið upp eftir inngöngu í ESB Landsbankinn hækkar líka vexti Jón Þór fer til Samherja Þorgeir Pálsson nýr mannauðsstjóri Háskólans á Bifröst „Eftir að koma í ljós“ hvort íslenskar áhafnir manni leiguflug Icelandair Sektaður um 65 milljónir fyrir miðlun innherjaupplýsinga Síminn orðinn Ásar hf Icelandair kaupir helming í dreggjum Play á 83 milljónir Ekkert fékkst upp í mörg hundruð milljóna króna kröfur Ekkert nýtt að frétta af boðuðum kaupum Telur ESB-viðræður engu breyta um verðbólgu og stýrivexti Minni íbúafjölgun minnkar þörfina á nýjum íbúðum Vaxtahækkun sé röng og illa tímasett Indó hækkar vexti vegna stýrivaxtahækkunar „Þetta er sagt af mikilli virðingu“ „Bull og vitleysa“ að hækkunin bíti ekki á verðtryggð lán Bein útsending: Opinn fundur um samspil stýrivaxta og verðbólgu „Það eru engin fórnarlömb hér“ Bein útsending: Rökstyðja stýrivaxtahækkun Hækka stýrivexti Elfa Ýr lætur af störfum hjá Fjölmiðlanefnd Þessir voru tekjuhæstu læknarnir og tannlæknarnir í fyrra Benedikt langlaunahæsti bankastjórinn Fleiri en markaðurinn leggja við hlustir Sjá meira