Sigrún Björk tekur við bæjarstjóraembætti 9. janúar 29. nóvember 2006 10:51
Sigrún Björk Jakbobsdóttir, bæjarfulltrúi Sjálfstæðisflokksins á Akureyri, tekur við embætti bæjarstjóra í sveitarfélaginu þann 9. janúar af Kristjáni Þór Júlíussyni, á fyrsta fundi bæjarstjórnar eftir áramót. Þetta var tilkynnt á blaðamannafundi í Ráðhúsi Akureyrar laust fyrir klukkan ellefu. Sem kunnugt er fór Kristján Þór með sigur af hólmi í prófkjöri Sjálfstæðisflokksins í Norðausturkjördæmi um síðustu helgi og því má reikna með að hann taki sæti á þingi eftir þingkosningar sem fram fara í vor. Sigrún Björk er fertug og ólst upp í Keflavík. Hún hefur setið í bæjarstjórn Akureyrar frá árinu 2002 og hefur gegnt starfi forseta bæjarstjórnar frá því í vor. Með breytingunum hefur hún stólaskipti við Kristján Þór sem verður forseti bæjarstjórnar eftir áramót. Kristján Þór sagði á blaðamannafundinum að hann útilokaði ekki að hann gæti gegnt stöðu forseta bæjarstjórnar Akureyrar samhliða þingstörfum. Sigrún Björk sagði það mikinn sigur í jafnréttisbaráttunni að kona tæki nú við starfi bæjarstjóra á Akureyri og að hún væri stolt af því að vera fyrsta konan til að gegna starfinu. Það væri frétt í dag þegar kona tæki við bæjarstjórastarfi en vonandi þætti það ekki merkilegt innan tíðar með vaxandi jafnrétti kynjanna. Sigrún Björk boðaði jafnframt bleikari áherslur í stjórn bæjarins þegar hún settist í stól bæjarstjóra.
Stj.mál Mest lesið Hótar að flytja aftur til Færeyja gangi Ísland í ESB Innlent Gagnrýnir viðbragð lögreglu eftir áhlaup ungmenna Innlent Mikil ungmennadrykkja á Menningarnótt og tveimur skemmtistöðum lokað Innlent Sakamálið sem skekur Bandaríkin Innlent „Ætlar hann að segja já eða nei?“ Innlent Rúmlega hundrað flugferðum aflýst og langar biðraðir Erlent Vaxtaákvörðunin hafi ekki verið rædd Innlent Þrír handteknir eftir árás þar sem eggvopnum og hnúajárni var beitt Innlent „Þeir báðu um of mikið og buðu of lítið“ Erlent Nei eða já frá ólíkum sjónarhornum á Sprengisandi Innlent Fleiri fréttir Malbika Vesturlandsveg og stýra umferð á meðan Tvö útköll á svipuðum slóðum á hálendinu með stuttu millibili Tilkynnt um heimilisofbeldi í Reykjavík og Hafnarfirði Vaxtaákvörðunin hafi ekki verið rædd Gagnrýnir viðbragð lögreglu eftir áhlaup ungmenna Ráðherra byrjar með hlaðvarp Höfðu afskipti af á fjórða tug unglinga vegna drykkju „Ætlar hann að segja já eða nei?“ Hótar að flytja aftur til Færeyja gangi Ísland í ESB Hvað gerist á fasteignamarkaði ef við göngum í ESB? Nei eða já frá ólíkum sjónarhornum á Sprengisandi Þrír handteknir eftir árás þar sem eggvopnum og hnúajárni var beitt Mikil ungmennadrykkja á Menningarnótt og tveimur skemmtistöðum lokað Hiti á fundi borgarráðs vegna breytinga á matarþjónustu Báðar þyrlur og flugvél gæslunnar á loft samtímis Sakamálið sem skekur Bandaríkin Allt gengið vel og „ekkert að fara að klikka“ Bíllinn fannst skammt frá en þjófarnir eru ófundnir Handalögmál milli öryggisvarðar og þjófs Límmiðar lifðu ekki af nóttina Segir augljóst að lögum hafi ekki verið framfylgt við kyrrsetninguna Segja Morgunblaðið leggja þeim orð í munn Björguðu veikum göngumanni í kílómetrahæð á Fimmvörðuhálsi Skipunartíminn lengdur án auglýsingar Engin þjónusta: „Staðan er náttúrulega grafalvarleg á þessu svæði“ Bændur órólegir vegna skorts á dýralæknum Aftur í skólastjórastólinn Veðrið „ekki eins slæmt og það lítur út fyrir að vera“ Rannsaka líkamsárás miðsvæðis Búist við þungri umferð á fjölförnum gatnamótum Sjá meira