Mjólka ætlar að senda fleiri mál til Samkeppniseftirlitsins 13. október 2006 19:45
Samkeppniseftirlitið telur að Osta- og smjörsalan hafi misnotað markaðsráðandi stöðu sína gagnvart Mjólku ehf. og þannig brotið gegn samkeppnislögum. Mjólka hyggst senda fleiri mál til Samkeppniseftirlitsins. Mjólka kvartaði til Samkeppniseftirlitsins vegna þess að fyrirtækið var látið borga meira fyrir undanrennuduft frá Osta- og smjörsölunni en Ostahúsið og taldi Samkeppniseftirlitið það brot á samkeppnislögum. Ólafur Magnússon, framkvæmdastjóri Mjólku, segir að með þessari niðurstöðu sé viðurkennt að Osta- og smjörsalan hafi brotið á Mjólku samkvæmt lögum og nýtt sér markaðsráðandi stöðu sína. Það sé alvarlegt mál að fyrirtæki sem njóti lögverndaðrar einokunar noti stöðu sína til að koma í veg fyrir virka samkeppni. Að fenginni þessari niðurstöðu beinir Samkeppniseftirlitið tilmælum til landbúnaðarráðherra, um að hann beiti sér fyrir breytingum á ákvæðum búvörulaga, sem hindra samkeppni og mismuna fyrirtækjum í mjólkuriðnaði, og beiti sér fyrir því að fella niður tolla á mjólkurdufti í því skyni að greiða fyrir samekppni í mjólkuriðnaði. Þetta segir Ólafur sigur fyrir Mjólku sem hyggst flytja inn mjólkurduft verði tollar þar afnumdir. Að sögn Ólafs má Samkeppniseftirlitið eiga von á fleiri kvörtunum frá Mjólku. Fyrirtækið hafi þurft að búa við það að samkeppnisaðilar hafi verið að undirbjóða og veita allt að 40% afslátt af samskonar vörum og Mjólka framleiði. Ekki sé hægt að búa við slíkt og þau mál verið lögð fyrir Samkeppnisyfirvöld.
Fréttir Innlent Mest lesið Þorgerður beygði af í Bítinu Innlent Segir Katrínu sparka í konuna sína Innlent Telur að barátta Ólafs muni koma í bakið á honum Innlent Vaktin: Hákon tekur við af föður sínum Erlent Nafn mannsins sem lést í Stuðlagili Innlent Haraldur V Noregskonungur er látinn Erlent Mættu í skólann og beittu nemanda ofbeldi Innlent „Verkinu er haldið í gíslingu“ Innlent „Mér fannst ég þekkja hann strax og ég hitti hann í fyrsta sinn“ Innlent Inga segir já Innlent Fleiri fréttir Missti öxi sem hann hafði inni á sér og var handtekinn Uppsagnirnar hafi komið eins og reiðarslag Telur að barátta Ólafs muni koma í bakið á honum Brynjar tekur við af Líf Jón Hrói nýr sveitarstjóri í Langanesbyggð Efast um að skylt verði að hefja aðildarviðræður þótt já verði ofan á Armslengd eigi sérstaklega vel við um Fjölmiðlanefnd Inga segir já Örfáir töldu Ingu hafa staðið sig best Tuttugu prósent búin að greiða atkvæði „Mér fannst ég þekkja hann strax og ég hitti hann í fyrsta sinn“ Bíða enn niðurstöðu varðandi vatnslögnina Brotist inn í Hygge á Barónsstíg Vélstjóra sem átti að sigla Bandero meinuð innganga Tuttugu prósent þegar greitt atkvæði og andlát Noregskonungs „Verkinu er haldið í gíslingu“ Reyndi að smygla fíkniefnum í vínflöskum Nafn mannsins sem lést í Stuðlagili Þorgerður beygði af í Bítinu Segir Katrínu sparka í konuna sína Ungir vinstrimenn takast á um ESB: „Enginn að ráðast á fjallkonuna á nokkurn hátt“ Hnífjafnt á laugardag eða meiri munur en allir búast við? „Við sækjum ekki um aðild nema vegna þess að við viljum ganga inn“ Uppsagnirnar hafi líka áhrif á þá sem eftir verða Ungt hægrifólk tekst á um ESB: „Stutt á milli stöðnunar og stöðugleika“ „Þetta er ekki alveg óvænt“ Einn makrílfarmur skilar yfir 400 milljóna króna verðmæti ESB geti hvorki tekið yfir orkuauðlindir né skipað Íslandi að leggja sæstreng Margmenni fyrir utan höllina og blómvendir uppseldir Mættu í skólann og beittu nemanda ofbeldi Sjá meira