Erlent

Vaktin: Hákon tekur við af föður sínum

Hólmfríður Gísladóttir og Samúel Karl Ólason skrifa
Hákon, sonur Haraldar er orðinn konungur.
Hákon, sonur Haraldar er orðinn konungur. Getty/Norska konungsfjölskyldan/Jørgen Gomnæs

Haraldur V Noregskonungur er látinn, 89 ára að aldri. NRK greindi frá því í morgun að hann hefði látist klukkan 06:35 að staðartíma, eftir níu daga legu á Ríkissjúkrahúsinu í Osló vegna blóðsjúkdóms.

Hákon, sonur Haraldar, er því orðinn konungur. Búist er við því að Hákon 8., velji hann sér það konungsnafn eins og búist er við, muni ávarpa þjóðina í dag eða á morgun.

Farið er yfir ævi Haraldar í andlátsfrétt sem birtist á Vísi í morgun.

Vísir fylgist með þróun mála í dag, í vaktinni hér fyrir neðan.




Fleiri fréttir

Sjá meira
×