Aldrei meiri hagnaður 2. maí 2006 12:07
Glitnir hefur aldrei skilað meiri hagnaði á einum ársfjórðungi en hann gerði fyrstu þrjá mánuði ársins. Á sama tíma gerðist það í fyrsta sinn í sögu bankans að meira en helmingur hagnaðar er frá útlöndum. Hagnaður Glitnis fyrstu þrjá mánuði ársins var þrefalt meiri en á sama tíma í fyrra. Hagnaðurinn nam alls níu komma einum milljarði króna en var þrír milljarðar fyrir ári síðan. Bjarni Ármannsson, forstjóri Glitnis, er að vonum sáttur við árangurinn. Hann segir sérstakt að í fyrsta sinn komi meira en helmingur hagnaðar af starfsemi í útlöndum, það er nú um sextíu prósent. Vaxtarmöguleikarnir eru þó að stórum hluta í útlöndum en þó eru þeir líka hér innanlands, svo sem í nýlegum kaupum á Kreditkortum og eins segir hann brýnt að breyta íbúðarlánamarkaðnum. Þrátt fyrir miklar sviptingar í íslensku efnahagslífi er þeirra ekki farið að gæta í afkomu bankans. Bjarni gerir ráð fyrir að þeirra verði vart í talsverðum mæli á næsta ári. Hann segir að vanskil einstaklinga séu enn ekki farin að aukast og segir að íslenskir neytendur séu mun skynsamari en oft mætti ráða af umræðu um þá, hann treystir því þess vegna að flestir standi vel í fæturna þegar dregur saman í efnahagslífinu, þó megi gera ráð fyrir að það verði erfitt fyrir einhverja þegar stýrivextir eru orðnir mjög háir og verðlag hækkar.
Fréttir Innlent Undir smásjánni Viðskipti Mest lesið Samþykktu að slíta kjarasamningum Innlent Ráðherra lét henda þeim út þegar rætt var um Heiðarfjall Innlent Tugmilljóna gjaldþrot félags fíkniefnasmyglara Innlent Niðurrif hafið á Laugasól Innlent Segist geta gert Biden, Obama og Clinton „mjög slæma hluti“ Erlent Margaret Hamilton er látin Erlent Hringdi inn þegar konan reyndist gift öðrum manni Innlent Kjaftshögg, blys og hrákur á VÍ - MR Innlent Serbar á Íslandi mótmæla: „Það er ósanngjarnt að taka af fólki réttinn til að kjósa“ Innlent Konan sem var borin út er látin Erlent Fleiri fréttir Ráðherra lét henda þeim út þegar rætt var um Heiðarfjall Kjaftshögg, blys og hrákur á VÍ - MR Samþykktu að slíta kjarasamningum Niðurrif hafið á Laugasól „Vonbrigði að Icelandair fljúgi ekki lengur til Kulusuk“ Ljósastaurar bilaðir víða í Reykjavík Ræst út vegna logandi rafhlaupahjóls Serbar á Íslandi mótmæla: „Það er ósanngjarnt að taka af fólki réttinn til að kjósa“ Hringdi inn þegar konan reyndist gift öðrum manni Tugmilljóna gjaldþrot félags fíkniefnasmyglara „Við erum að gefa boltann upp“ Þétta samstarfið í útnorðri „Við erum tilbúin að skoða lengingu skólaársins“ Bein útsending: Blaðamannafundur Kristrúnar, Beinis og Jens Frederik SA á leið í árshátíðarferð á meðan klukkan tifar í kjaradeilu Sver af sér ábyrgð á rannsókn um karlmennsku Bílvelta á Vesturlandsvegi Sauð upp úr þegar Ragnar kallaði orð Ásgeirs óábyrg Verða að viðurkenna barn getið með staðgöngumæðrun Segir „gerviþak“ breyta litlu um „ryksugu“ Rúv Viðræður VR við SA á leið inn „blindgötu“ Tímarit eigi hvergi stað og fái enga styrki Segir fjölmiðlanefnd stjórnlausa og sektaóða Geti reynst erfitt að standa við verðlagsloforðin Hvetur flokka til að afla leyfa fyrir tónlist í pólitískum áróðri Rubio hafi staðfest varnarskuldbindingar gagnvart Íslandi Breyti myndböndum af börnum að borða og dansa í barnaníðsefni Kennarar boða tíðindi Nóg að spyrja þá sem þurfa að borga launin Sex atvinnulausir um hvert laust starf Sjá meira