Aðeins heimilt stjórnvöldum 6. nóvember 2006 06:30 Nokkur dæmi eru þess að skjaldarmerkið hafi verið notað í heimildarleysi á veraldarvefnum. Notkunin er aðeins heimil stjórnvöldum.
Skjaldarmerki Íslands er notað á pólskri frétta- og spjall-síðu, www.iceland.pl, sem Pólverjar á Íslandi nota töluvert mikið. Skjaldarmerkið hefur einnig verið notað víðar, þar á meðal á vefsíðu starfsmannaleigunnar 2b ehf., en verið fjarlægt þaðan. Í lögum um þjóðfána og skjaldarmerki Íslendinga kemur fram að skjaldarmerkið er auðkenni stjórnvalda ríkisins og að notkun þess sé aðeins heimil stjórnvöldum. Þórhallur Vilhjálmsson, lögfræðingur í forsætisráðuneytinu, segir að það sé aldrei veitt undanþága frá því. Þórhallur segir að óheimil notkun skjaldarmerkisins sé eins og hvert annað lögbrot, sem beri að kæra. Brot varðar sektum. Hann kveðst vita til þess að lögreglan hafi talað við menn vegna ólögmætrar notkunar á skjaldarmerkinu og þá hafi þeir látið af athæfinu. Hörður Jóhannesson, yfirlögregluþjónn hjá lögreglunni í Reykjavík, segir að engar kærur hafi borist og engin mál séu til skoðunar. Eiður Eiríkur Baldvinsson, forsvarsmaður 2b, segist hafa fjarlægt strax skjaldarmerkið á vefsíðu 2b. Hann hafi einfaldlega ekki gert sér grein fyrir að notkunin væri óheimil. Ekki náðist í forsvarsmenn iceland.pl.
Innlent Mest lesið Haraldur V Noregskonungur er látinn Erlent Segir Katrínu sparka í konuna sína Innlent Mættu í skólann og beittu nemanda ofbeldi Innlent Vaktin: Hákon tekur við af föður sínum Erlent „Við sækjum ekki um aðild nema vegna þess að við viljum ganga inn“ Innlent Margmenni fyrir utan höllina og blómvendir uppseldir Innlent Hnífjafnt á laugardag eða meiri munur en allir búast við? Innlent Almenningur hafi aldrei átt séns Innlent „Þetta er ekki alveg óvænt“ Innlent Er sagður hafa lagt spilin á borðið varðandi Úkraínu Erlent Fleiri fréttir Segir Katrínu sparka í konuna sína Ungir vinstrimenn takast á um ESB: „Enginn að ráðast á fjallkonuna á nokkurn hátt“ Hnífjafnt á laugardag eða meiri munur en allir búast við? „Við sækjum ekki um aðild nema vegna þess að við viljum ganga inn“ Uppsagnirnar hafi líka áhrif á þá sem eftir verða Ungt hægrifólk tekst á um ESB: „Stutt á milli stöðnunar og stöðugleika“ „Þetta er ekki alveg óvænt“ Einn makrílfarmur skilar yfir 400 milljóna króna verðmæti ESB geti hvorki tekið yfir orkuauðlindir né skipað Íslandi að leggja sæstreng Margmenni fyrir utan höllina og blómvendir uppseldir Mættu í skólann og beittu nemanda ofbeldi Samræmdar reglur um símafrí settar EES án Íslands „ekki klúbbur sem maður vill vera í“ Nei-sinnar fleiri í fyrsta sinn „Hjákátlegt“ sé að ræða verð á kaffibollum í Búdapest Stungan leiddi til skurðar Vissu ekki að þeir yrðu í auglýsingu fyrir Áfram Ísland Beint streymi frá opnum fundi Áfram Ísland Beint streymi frá opnum fundi Já til að sjá Fer fram á allt að tíu ára fangelsi í Reykholtsmálinu „Við höfum gott af því að rífast aðeins“ Almenningur hafi aldrei átt séns Óákveðnir hallist jafnan að minni breytingum Ætlar ekki að láta kúga sig Pallborðið: Satt, logið og umdeildar auglýsingar Alvarlega staða kalli á sameiginlegt átak Kaffistofa Samhjálpar: Bjóða hús á tveimur stöðum Forsendur brostnar og heilsu konungs hrakar Maðurinn sem lést í Stuðlagili sagður pólskur Djúpur tunglmyrkvi sýnilegur frá Íslandi í nótt Sjá meira