Ný ljóðabók eftir Hannes Pétursson 22. október 2006 17:00 Hannes Pétursson skáld Ljóðaunnendur bíða eftirvæntingafullir eftir nýrri bók.
Hvíslað er um það í bókabransanum að bókmenntatíðindi ársins verði útgáfa nýrrar ljóðabókar eftir Hannes Pétursson skáld. Forleggjarar Hannesar eru um þessar mundir Edda - miðlun og útgáfa, en þar á bæ eru menn orðvarir og vilja ekki mikið tjá sig um nýtt ljóðasafn Hannesar. Í skrám Þjóðarbókhlöðu hefur verið forskráð ljóðabókin Fyrir kvölddyrum hjá forlagi Máls og menningar, en hjá því forlagi hóf Hannes feril sinn fyrir nær hálfri öld. Siðasta ljóðabók Hannesar, Eldhylur, kom út 1993 og eru því fjölmargir aðdáendur skáldsins orðnir langeygir eftir nýju ljóðasafni hans en greinasafn hans, Birtubrigði daganna, kom út 2002. Hann sendi frá sér safn þýðinga eftir þýska skáldið Hölderlin 1997, Lauf súlnanna. Hannes hefur löngum verið talinn eitt höfuðskáld þjóðarinnar á síðari helmingi tuttugustu aldar. Hann kom fram við mikil fagnaðarlæti en hefur reynst þolgóður og skáldskapur hans hefur jafnan sætt tíðindum meðal ljóðaunnenda þá ný ljóð hans birtast.
Menning Mest lesið Hvað kýs fræga fólkið? Lífið Þau sjá um Áramótaskaupið í ár Lífið Stjörnufans á frumsýningu Um tímann og vatnið Bíó og sjónvarp Stórglæsilegt einbýlishús á Arnarnesi til sölu Lífið Nadía Atla og Arnar Freyr hætt saman Lífið Hvað veistu um… Dolly Parton? Lífið Rödd Eyrnaslapa og Optimusar Prime er öll Bíó og sjónvarp Afmælispartý Bylgjunnar í beinni Lífið Bylgjan heiðraði goðsögnina Þorgeir Lífið Líkindi með Grand Theft Auto og Red Dead Redemption Leikjavísir Fleiri fréttir Svandís í ritstjórastól Kjánalegustu augnablikin í umræðunni um aðildarviðræður Rigningin stoppaði ekki stuðið hjá Yeoman Orgel Grensáskirkju fékk nýtt líf í Saurbæ Eitt myndband selji upp heilu lagerana Byrjaði sem þráhyggja fyrir rapplagi á spítala Jón Viðar fellir dóm yfir Ódysseifskviðu án þess að sjá hana Hulda Hákon, Jón Óskar og Krassasig á ListaVestrinu Aðsóknarmet slegið á brúðulistahátíð á Hvammstanga Dreymdi um að á bókasafninu væri bók eftir sig Skólastika Gamalíelsdóttir vekur undrun Íslendinga Sýning Bjarkar bæði væmin og stórkostleg og leggur til stofnun Bjarkarsafns Sjá meira