Óvanar að þurfa að berjast 9. október 2006 02:45
Hlutfall kvenna í stjórnum lífeyrissjóða hefur tvöfaldast á tveimur árum og er nú komið í 26,7 prósent, eða 31 kona af 116 stjórnarmönnum. Árið 2004 voru konur átján af 132 stjórnarmönnum eða 13,6 prósent. Þetta kemur fram í athugun sem Landssamtök lífeyrissjóða gerðu hjá tuttugu stærstu lífeyrissjóðunum. Stjórnarmönnum fækkaði á tímabilinu vegna sameiningar lífeyrissjóðanna. Félög kvenna í endurskoðun, lögmennsku, læknastétt og verkfræðingastétt hafa staðið fyrir átaki um fjölgun kvenna í stjórnum lífeyrissjóða undanfarin tvö ár að sögn Ernu Bryndísar Halldórsdóttur, fyrrverandi formanns félags kvenna í endurskoðun. „Við skrifuðum stjórnum verkalýðsfélaga, Samtökum atvinnulífsins og fleiri aðilum sem sjá um að tilnefna í stjórnir lífeyrissjóðanna og ýttum á að hugað yrði að því að tilnefna konur." Erna Bryndís er ánægð með þessa fjölgun en segir að árangurinn gæti verið betri. „Auðvitað ætti stjórn að vera mynduð í hlutföllum við kynjaskiptingu lífeyrissjóða. Það er sláandi að í stjórnum sumra sjóða er engin kona." Erna segir vandann ekki felast í að vöntun sé á konum sem geti setið í stjórnum. „En þær eru bara ekki jafn kræfar í því að gefa kost á sér og óvanar að þurfa að berjast fyrir stöðum."
Innlent Mest lesið Telur að barátta Ólafs muni koma í bakið á honum Innlent Þorgerður beygði af í Bítinu Innlent Segir Katrínu sparka í konuna sína Innlent Vaktin: Hákon tekur við af föður sínum Erlent Nafn mannsins sem lést í Stuðlagili Innlent Voru á Íslandi þegar maðurinn var drepinn Innlent Mættu í skólann og beittu nemanda ofbeldi Innlent „Verkinu er haldið í gíslingu“ Innlent Haraldur V Noregskonungur er látinn Erlent Uppsagnirnar hafi komið eins og reiðarslag Innlent Fleiri fréttir Hnífjafnt í síðustu könnuninni Umræðan hafi verið ruglingsleg og á lágu plani Skálmöld brá í óleyfi fyrir í „vandræðalegu þjóðrembumyndbandi“ Símtöl almennt málefnaleg en dónaskapur inni á milli Aldrei komið í þvílíkt fjölmenni þar sem er svona mikil þögn Jákvæð „sjálfsmyndarkrísa“ í Brussel Forystukonum ríkisstjórnarinnar brugðið vegna alvarlegra hótana Líflátshótanir, þandar taugar og bein útsending frá norsku konungshöllinni Voru á Íslandi þegar maðurinn var drepinn Missti öxi sem hann hafði inni á sér og var handtekinn Uppsagnirnar hafi komið eins og reiðarslag Telur að barátta Ólafs muni koma í bakið á honum Brynjar tekur við af Líf Jón Hrói nýr sveitarstjóri í Langanesbyggð Efast um að skylt verði að hefja aðildarviðræður þótt já verði ofan á Armslengd eigi sérstaklega vel við um Fjölmiðlanefnd Inga segir já Örfáir töldu Ingu hafa staðið sig best Tuttugu prósent búin að greiða atkvæði „Mér fannst ég þekkja hann strax og ég hitti hann í fyrsta sinn“ Bíða enn niðurstöðu varðandi vatnslögnina Brotist inn í Hygge á Barónsstíg Vélstjóra sem átti að sigla Bandero meinuð innganga Tuttugu prósent þegar greitt atkvæði og andlát Noregskonungs „Verkinu er haldið í gíslingu“ Reyndi að smygla fíkniefnum í vínflöskum Nafn mannsins sem lést í Stuðlagili Þorgerður beygði af í Bítinu Segir Katrínu sparka í konuna sína Ungir vinstrimenn takast á um ESB: „Enginn að ráðast á fjallkonuna á nokkurn hátt“ Sjá meira