Of snemmt að fagna sigri 13. júlí 2006 07:15 Stefán Úlfarsson MYND/vilhelm
Vísitala neysluverðs í júlí hækkaði um 0,46 prósent frá því í júní, samkvæmt nýjum tölum Hagstofu Íslands. Þessi hækkun er undir væntingum greiningaraðila, sem höfðu spáð 0,55 til 0,7 prósenta hækkun. Stefán Úlfarsson, hagfræðingur Alþýðusambands Íslands, segir hugsanlegt að nýlegar aðgerðir aðila vinnumarkaðins og ríkisstjórnarinnar séu hér að hafa áhrif en of snemmt sé að fagna sigri. "Verðbólgan er enn gríðarlega mikil, í 8,4 prósentum, og við erum rétt að byrja þessa vegferð." Meiningarmunur hefur verið á milli ASÍ og Seðlabankans um hversu neikvæðar verðbólguhorfurnar eru að sögn Stefáns. "Við teljum spá Seðlabankans of neikvæða, sem hafi þau áhrif að hann grípi til of harkalegra aðhaldsaðgerða. Það hefur í för með sér þyngri greiðslubyrði sem leiðir til meiri samdráttar og harðari lendingar hagkerfisins. Við teljum að við munum ná okkur á eðlilegt ról við lok næsta árs og ekki þurfi að grípa til jafn harkalegra aðgerða af hálfu Seðlabankans, eins og hann gerði í seinustu vaxtahækkun. Ingimundur Friðriksson Seðlabankastjóri segir óvarlegt að túlka eins mánaðar hreyfingu og þetta breyti í engu mati bankans sem birtist í Peningamálum í síðustu viku.
Innlent Mest lesið Hótar að flytja aftur til Færeyja gangi Ísland í ESB Innlent Gagnrýnir viðbragð lögreglu eftir áhlaup ungmenna Innlent Mikil ungmennadrykkja á Menningarnótt og tveimur skemmtistöðum lokað Innlent Sakamálið sem skekur Bandaríkin Innlent „Ætlar hann að segja já eða nei?“ Innlent Rúmlega hundrað flugferðum aflýst og langar biðraðir Erlent Þrír handteknir eftir árás þar sem eggvopnum og hnúajárni var beitt Innlent „Þeir báðu um of mikið og buðu of lítið“ Erlent Nei eða já frá ólíkum sjónarhornum á Sprengisandi Innlent Vaxtaákvörðunin hafi ekki verið rædd Innlent Fleiri fréttir Malbika Vesturlandsveg og stýra umferð á meðan Tvö útköll á svipuðum slóðum á hálendinu með stuttu millibili Tilkynnt um heimilisofbeldi í Reykjavík og Hafnarfirði Vaxtaákvörðunin hafi ekki verið rædd Gagnrýnir viðbragð lögreglu eftir áhlaup ungmenna Ráðherra byrjar með hlaðvarp Höfðu afskipti af á fjórða tug unglinga vegna drykkju „Ætlar hann að segja já eða nei?“ Hótar að flytja aftur til Færeyja gangi Ísland í ESB Hvað gerist á fasteignamarkaði ef við göngum í ESB? Nei eða já frá ólíkum sjónarhornum á Sprengisandi Þrír handteknir eftir árás þar sem eggvopnum og hnúajárni var beitt Mikil ungmennadrykkja á Menningarnótt og tveimur skemmtistöðum lokað Hiti á fundi borgarráðs vegna breytinga á matarþjónustu Báðar þyrlur og flugvél gæslunnar á loft samtímis Sakamálið sem skekur Bandaríkin Allt gengið vel og „ekkert að fara að klikka“ Bíllinn fannst skammt frá en þjófarnir eru ófundnir Handalögmál milli öryggisvarðar og þjófs Límmiðar lifðu ekki af nóttina Segir augljóst að lögum hafi ekki verið framfylgt við kyrrsetninguna Segja Morgunblaðið leggja þeim orð í munn Björguðu veikum göngumanni í kílómetrahæð á Fimmvörðuhálsi Skipunartíminn lengdur án auglýsingar Engin þjónusta: „Staðan er náttúrulega grafalvarleg á þessu svæði“ Bændur órólegir vegna skorts á dýralæknum Aftur í skólastjórastólinn Veðrið „ekki eins slæmt og það lítur út fyrir að vera“ Rannsaka líkamsárás miðsvæðis Búist við þungri umferð á fjölförnum gatnamótum Sjá meira