Áfram lágir vextir 16. ágúst 2005 00:01
Hann segir að bandaríski seðlabankinn haldi líklega áfram að hækka vexti jafnt og þétt en það virðist hafa lítil sem engin áhrif á langtímavexti þar í landi. Það sama hafi verið að gerast á Íslandi, þar sem langtímavextir hafi lækkað undanfarin misseri á meðan Seðlabankinn hafi hækkað stýrivexti sína verulega. Lúðvík telur líklegt að Seðlabanki Íslands muni hækka stýrivexti sína samhliða útgáfu Peningamála 29. september næstkomandi. Greining Íslandsbanka spáir að vextirnir verði komnir upp í tíu prósent fyrir árslok. Allt bendi til þess að munurinn á stýrivöxtum hér á landi og evrusvæðinu aukist á næstunni. Munurinn verði kominn í átta prósent um áramótin og fari jafnvel enn hærra á næsta ári. Stýrivextir Seðlabankans eru nú 9,5 prósent og hafa hækkað reglulega frá því í maí 2004, síðast í júní. Lúðvík segir að aukinn vaxtamunur sé tímabundinn og stafi af sérstökum aðstæðum í íslensku efnahagslífi. Það sé eðlilegt að um einhvern viðvarandi vaxtamun sé að ræða sem feli í sér álag vegna smæðar markaðarins, gengis krónunnar og fleiri þátta. "Þessi mikli vaxtamunur við útlönd sem við sjáum núna þýðir að það er vænlegt að geyma fé á Íslandi og á það að sjálfsögðu jafnt við Íslendinga og aðra. Þess vegna er mikil eftirspurn eftir íslensku krónunni og hún því hátt metin. Gengi krónunnar er hærra en fær staðist til lengdar og mun lækka þegar dregur úr innflæði fjármagns," segir hann
Viðskipti Mest lesið Hættir sem forstjóri Elkem og hefur störf hjá Travel Connect Viðskipti innlent Af hverju eru allir að eyða svona miklu? Viðskipti innlent Hótelin fá ný nöfn Viðskipti innlent Alvotech tekur stökk eftir greiningu Bank of America Viðskipti innlent Barilla og Himneskt víkja fyrir breiðara pastaúrvali Neytendur Elkem segir tollfrelsi geta skilað 350 milljónum á ári Viðskipti innlent Nýr og ódýrari valkostur fyrir fyrirtæki sem þurfa að losa úrgang Samstarf Högnuðust um hálfan annan milljarð Viðskipti innlent Innkalla milljónir bíla vegna innfelldra hurðahúna Viðskipti erlent Sýn+ verður líka línuleg sjónvarpsstöð Viðskipti innlent Fleiri fréttir Hótelin fá ný nöfn Hættir sem forstjóri Elkem og hefur störf hjá Travel Connect Af hverju eru allir að eyða svona miklu? Alvotech tekur stökk eftir greiningu Bank of America Högnuðust um hálfan annan milljarð Elkem segir tollfrelsi geta skilað 350 milljónum á ári Sýn+ verður líka línuleg sjónvarpsstöð Hætta við kaup á vef- og útvarpsmiðlum Sýnar Reglugerðir ESB hafi „sérstaklega slæm áhrif á Ísland“ Fasteignaverð rokið upp eftir inngöngu í ESB Landsbankinn hækkar líka vexti Jón Þór fer til Samherja Þorgeir Pálsson nýr mannauðsstjóri Háskólans á Bifröst „Eftir að koma í ljós“ hvort íslenskar áhafnir manni leiguflug Icelandair Sektaður um 65 milljónir fyrir miðlun innherjaupplýsinga Síminn orðinn Ásar hf Icelandair kaupir helming í dreggjum Play á 83 milljónir Ekkert fékkst upp í mörg hundruð milljóna króna kröfur Ekkert nýtt að frétta af boðuðum kaupum Telur ESB-viðræður engu breyta um verðbólgu og stýrivexti Minni íbúafjölgun minnkar þörfina á nýjum íbúðum Vaxtahækkun sé röng og illa tímasett Indó hækkar vexti vegna stýrivaxtahækkunar „Þetta er sagt af mikilli virðingu“ „Bull og vitleysa“ að hækkunin bíti ekki á verðtryggð lán Bein útsending: Opinn fundur um samspil stýrivaxta og verðbólgu „Það eru engin fórnarlömb hér“ Bein útsending: Rökstyðja stýrivaxtahækkun Hækka stýrivexti Elfa Ýr lætur af störfum hjá Fjölmiðlanefnd Sjá meira