Vill sameina kauphallir í Lundúnum 2. júní 2005 00:01
Þórður Friðjónsson, forstjóri Kauphallar Íslands, vill að kauphallir Norðurlandanna og Eystrasaltsríkjanna sameinist kauphöllinni í Lundúnum. Þórður segir að með því náist mikil hagræðing. Kauphallirnar í Svíþjóð, Finnlandi, Eistlandi, Lettlandi, Danmörku, Noregi og á Íslandi eru allar í svonefndu Norex-samstarfi og nota þar af leiðandi sama viðskiptakerfið. Sænska kauphöllin OMX á allar þessar kauphallir nema þá í Noregi og hér á Íslandi. Í viðtali við breska fjármálablaðið Financial Times segir Þórður kostina við að fara í samstarf við kauphöllina í Lundúnum ekki myndu nýtast til fulls nema með fullum samruna. Hann segir að engar formlegar viðræður hafi átt sér stað um slík viðskipti þótt Norex-félögin hafi rætt óformlega sín á milli um framtíðina í Evrópu. Þórður segir ýmsar ástæður fyrir því að betra sé að tengja Norex-kauphallirnar við Kauphöllina í Lundúnum en aðrar og tekur sem dæmi kauphöllina í Frankfurt í Þýskalandi, svo sem af menningarlegum og efnahagslegum ástæðum. Þá sé sameinuð norræn og bresk kauphöll í betri aðstöðu til að gera samninga um samvinnu eða sameiningu við kauphallir á öðrum svæðum. OMX, sem yfirtók kauphöllina í Kaupmannahöfn, hefur boðið Kauphöll Íslands til sameiningarviðræðna. Þórður segir að verið sé að skoða þau mál
Innlent Viðskipti Mest lesið Af hverju eru allir að eyða svona miklu? Viðskipti innlent Hættir sem forstjóri Elkem og hefur störf hjá Travel Connect Viðskipti innlent Alvotech tekur stökk eftir greiningu Bank of America Viðskipti innlent Elkem segir tollfrelsi geta skilað 350 milljónum á ári Viðskipti innlent Barilla og Himneskt víkja fyrir breiðara pastaúrvali Neytendur Högnuðust um hálfan annan milljarð Viðskipti innlent Innkalla milljónir bíla vegna innfelldra hurðahúna Viðskipti erlent Hótelin fá ný nöfn Viðskipti innlent Sýn+ verður líka línuleg sjónvarpsstöð Viðskipti innlent Fasteignaverð rokið upp eftir inngöngu í ESB Viðskipti innlent Fleiri fréttir Hótelin fá ný nöfn Hættir sem forstjóri Elkem og hefur störf hjá Travel Connect Af hverju eru allir að eyða svona miklu? Alvotech tekur stökk eftir greiningu Bank of America Högnuðust um hálfan annan milljarð Elkem segir tollfrelsi geta skilað 350 milljónum á ári Sýn+ verður líka línuleg sjónvarpsstöð Hætta við kaup á vef- og útvarpsmiðlum Sýnar Reglugerðir ESB hafi „sérstaklega slæm áhrif á Ísland“ Fasteignaverð rokið upp eftir inngöngu í ESB Landsbankinn hækkar líka vexti Jón Þór fer til Samherja Þorgeir Pálsson nýr mannauðsstjóri Háskólans á Bifröst „Eftir að koma í ljós“ hvort íslenskar áhafnir manni leiguflug Icelandair Sektaður um 65 milljónir fyrir miðlun innherjaupplýsinga Síminn orðinn Ásar hf Icelandair kaupir helming í dreggjum Play á 83 milljónir Ekkert fékkst upp í mörg hundruð milljóna króna kröfur Ekkert nýtt að frétta af boðuðum kaupum Telur ESB-viðræður engu breyta um verðbólgu og stýrivexti Minni íbúafjölgun minnkar þörfina á nýjum íbúðum Vaxtahækkun sé röng og illa tímasett Indó hækkar vexti vegna stýrivaxtahækkunar „Þetta er sagt af mikilli virðingu“ „Bull og vitleysa“ að hækkunin bíti ekki á verðtryggð lán Bein útsending: Opinn fundur um samspil stýrivaxta og verðbólgu „Það eru engin fórnarlömb hér“ Bein útsending: Rökstyðja stýrivaxtahækkun Hækka stýrivexti Elfa Ýr lætur af störfum hjá Fjölmiðlanefnd Sjá meira