Fannst Össur tala niður til sín 20. apríl 2005 00:01
Ingibjörg Sólrún Gísladóttir sakar Össur Skarphéðinsson um að tala niður til sín með því að segjast sjálfur hafa lagt allt undir til að gera hana að forsætisráðherra fyrir síðustu þingkosningar. Össur segist síður en svo hafa talað niður til Ingibjargar. Ingibjörg Sólrún og Össur voru gestir í Íslandi í dag í gærkvöldi og ræddu þau um kosningabaráttuna vegna formannsslagsins í Samfylkingunni fyrir landsfundinn í næsta mánuði. Össur var spurður að því hvað hefði breyst frá því hann lýsti því yfir fyrir þingkosningarnar 2003 að Ingibjörg Sólrún væri kraftmikill og öflugur stjórnmálamaður og að Samfylkingin þyrfti leiðtoga eins og hana. Hann svaraði því að þetta hefði hann sagt í miðri kosningabaráttunni þar sem allt hefði verið lagt undir til að gera hana að forsætisráðherra, enda hefði það verið hans skylda sem leiðtogi flokksins. Ingibjörg Sólrún var ósátt við hvernig Össur talaði um sig. Hún sagði að henni mislíkaði þegar talað sé um að einhver kalli mann til verka og geri mann að forsætisráðherra. Það hljómi eins og hún sé bara einhver strengjabrúða sem hægt sé að toga í. Ingibjörgu fannst Össur þannig tala niður til sín en hann sagði það ekki hafa verið ætlunina.
Fréttir Innlent Samfylkingin Stj.mál Mest lesið Gagnrýnir viðbragð lögreglu eftir áhlaup ungmenna Innlent Hótar að flytja aftur til Færeyja gangi Ísland í ESB Innlent Sakamálið sem skekur Bandaríkin Innlent Mikil ungmennadrykkja á Menningarnótt og tveimur skemmtistöðum lokað Innlent „Ætlar hann að segja já eða nei?“ Innlent Vilja að aldursviðmið um börn í vopnalögum verði uppfærð Innlent Hinn grunaði í sverðaárásinni í Fagersta í Svíþjóð nafngreindur Erlent Rúmlega hundrað flugferðum aflýst og langar biðraðir Erlent Heilsu Haralds konungs hrakar Erlent Vaxtaákvörðunin hafi ekki verið rædd Innlent Fleiri fréttir „Skiljum mjög vel að þetta sé erfitt fyrir íbúana í hverfinu“ Fimm hundruð milljóna króna viðhald á dagskrá Vilja að aldursviðmið um börn í vopnalögum verði uppfærð Malbika Vesturlandsveg og stýra umferð á meðan Tvö útköll á svipuðum slóðum á hálendinu með stuttu millibili Tilkynnt um heimilisofbeldi í Reykjavík og Hafnarfirði Vaxtaákvörðunin hafi ekki verið rædd Gagnrýnir viðbragð lögreglu eftir áhlaup ungmenna Ráðherra byrjar með hlaðvarp Höfðu afskipti af á fjórða tug unglinga vegna drykkju „Ætlar hann að segja já eða nei?“ Hótar að flytja aftur til Færeyja gangi Ísland í ESB Hvað gerist á fasteignamarkaði ef við göngum í ESB? Nei eða já frá ólíkum sjónarhornum á Sprengisandi Þrír handteknir eftir árás þar sem eggvopnum og hnúajárni var beitt Mikil ungmennadrykkja á Menningarnótt og tveimur skemmtistöðum lokað Hiti á fundi borgarráðs vegna breytinga á matarþjónustu Báðar þyrlur og flugvél gæslunnar á loft samtímis Sakamálið sem skekur Bandaríkin Allt gengið vel og „ekkert að fara að klikka“ Bíllinn fannst skammt frá en þjófarnir eru ófundnir Handalögmál milli öryggisvarðar og þjófs Límmiðar lifðu ekki af nóttina Segir augljóst að lögum hafi ekki verið framfylgt við kyrrsetninguna Segja Morgunblaðið leggja þeim orð í munn Björguðu veikum göngumanni í kílómetrahæð á Fimmvörðuhálsi Skipunartíminn lengdur án auglýsingar Engin þjónusta: „Staðan er náttúrulega grafalvarleg á þessu svæði“ Bændur órólegir vegna skorts á dýralæknum Aftur í skólastjórastólinn Sjá meira