Stór hluthafi í KB og Íslandsbanka 7. mars 2005 00:01
Nýir eigendur eru komnir að þriðjungshlut í Olíufélaginu og með því eignast Landsbankinn dágóðan hlut í KB banka. Þar með er Landsbankinn óbeint stór hluthafi í báðum samkeppnisbönkunum, KB banka og Íslandsbanka. Aðaleigendur Eimskips eignast við þessi viðskipti einnig verulegan óbeinan hlut í Samskipum. Fjármálaspekingar segja stríðsátök á hlutabréfamarkaði blasa við. Það var fjárfestingarfélagið Grettir, sem er að mestu leyti í eigu Sunds - en það eru erfingjar Óla Kr. Sigurðssonar í Olís sem eiga það -, Tryggingamiðstöðin og Landsbankinn sem keyptu 34,02% hlut í Keri, sem á Olíufélagið eins og það leggur sig. Auk þess keypti félagið liðlega 4% hlut í Eglu sem er annar stærsti hluthafinn í KB-banka. Kristján Loftsson, stjórnarformaður Kers, sagðist í samtali við Stöð 2 ekki sáttur við þau vinnubrögð sem viðhöfð voru við viðskiptin. Forkaupsréttur hafi verið að bréfum í Keri en ekki hafi verið frágengið hvernig reikna skyldi verðmæti hans, lægi ekkert tilboð fyrir. Hann segir að svona myndi hann ekki vinna sjálfur. Með þessum viðskiptum á Landsbankinn aukinn hlut í KB-banka, fyrir utan að eiga stóran hlut í Íslandsbanka. Þá eignast aðaleigendur Eimskips verulegan óbeinan hlut í Samskipum einnig. Fjármálaspekingar segjast sjá stríðsátök blasa við á hlutabréfamarkaði. Þá hafa stjórnir Sölumiðstöðvar hraðfrystihúsanna og Sjóvíkur náð samkomulagi um sameiningu fyrirtækjanna og verður fyrirtækið rekið undir nafni SH. Áherslan í framtíðinni verður á Bandaríkjamarkað og Asíu. Það var yfirlýst stefna eigenda Landsbankans, með kaupum á hlut í SH á sínum tíma, að sameina fyrirtækið öðrum og er því marki náð núna.
Fréttir Innlent Viðskipti Mest lesið Barilla og Himneskt víkja fyrir breiðara pastaúrvali Neytendur Elkem segir tollfrelsi geta skilað 350 milljónum á ári Viðskipti innlent Sýn+ verður líka línuleg sjónvarpsstöð Viðskipti innlent Högnuðust um hálfan annan milljarð Viðskipti innlent Innkalla milljónir bíla vegna innfelldra hurðahúna Viðskipti erlent Hætta við kaup á vef- og útvarpsmiðlum Sýnar Viðskipti innlent Alvotech tekur stökk eftir greiningu Bank of America Viðskipti innlent Fasteignaverð rokið upp eftir inngöngu í ESB Viðskipti innlent Reglugerðir ESB hafi „sérstaklega slæm áhrif á Ísland“ Viðskipti innlent Þessir voru tekjuhæstu læknarnir og tannlæknarnir í fyrra Viðskipti innlent Fleiri fréttir Alvotech tekur stökk eftir greiningu Bank of America Högnuðust um hálfan annan milljarð Elkem segir tollfrelsi geta skilað 350 milljónum á ári Sýn+ verður líka línuleg sjónvarpsstöð Hætta við kaup á vef- og útvarpsmiðlum Sýnar Reglugerðir ESB hafi „sérstaklega slæm áhrif á Ísland“ Fasteignaverð rokið upp eftir inngöngu í ESB Landsbankinn hækkar líka vexti Jón Þór fer til Samherja Þorgeir Pálsson nýr mannauðsstjóri Háskólans á Bifröst „Eftir að koma í ljós“ hvort íslenskar áhafnir manni leiguflug Icelandair Sektaður um 65 milljónir fyrir miðlun innherjaupplýsinga Síminn orðinn Ásar hf Icelandair kaupir helming í dreggjum Play á 83 milljónir Ekkert fékkst upp í mörg hundruð milljóna króna kröfur Ekkert nýtt að frétta af boðuðum kaupum Telur ESB-viðræður engu breyta um verðbólgu og stýrivexti Minni íbúafjölgun minnkar þörfina á nýjum íbúðum Vaxtahækkun sé röng og illa tímasett Indó hækkar vexti vegna stýrivaxtahækkunar „Þetta er sagt af mikilli virðingu“ „Bull og vitleysa“ að hækkunin bíti ekki á verðtryggð lán Bein útsending: Opinn fundur um samspil stýrivaxta og verðbólgu „Það eru engin fórnarlömb hér“ Bein útsending: Rökstyðja stýrivaxtahækkun Hækka stýrivexti Elfa Ýr lætur af störfum hjá Fjölmiðlanefnd Þessir voru tekjuhæstu læknarnir og tannlæknarnir í fyrra Benedikt langlaunahæsti bankastjórinn Fleiri en markaðurinn leggja við hlustir Sjá meira