Tryllitæki vikunnar er Kappakstursþruman 3. september 2004 00:01
Tryllitæki vikunnar er 2004 árgerðin af Aprilia Tuonon Racing eða Kappakstursþruman. Þessi hjól voru smíðuð í þeim tilgangi að gera þau lögleg í keppni og því er þetta hjól með mun meiri búnaði en hefðbundin hjól. Til að hjólið sé löggilt í keppni þarf það að vera framleitt fyrir almennan markað. Hjólið er númer 38 í framleiðslulínunni en hjólin eru framleidd eftir eftirspurn. Þetta hjól er töluvert dýrara en Standard útgáfan og kostar 2.252.000 kr. Eigandinn, Unnar Már Magnússon, flytur inn Apriliahjól á Íslandi og langaði að eiga sérstakt og öðruvísi hjól svo hann fjárfesti í þessu. Allt plast á hjólinu er úr koltrefjum (carbon fiber) og því fylgir auka hlífasett fyrir keppnir, auka pústkerfi og tölvukubbur fyrir innspýtingu og ýmsilegt annað til að gera það keppnishæft. Aukahlífasettið er án ljósa svo það er bara hægt að hafa það í keppni og neðri hlífin er svo stór að það er ekki pláss fyrir standara. Hjólið er 130 hestöfl, 175 kg og 1000 cc. Það er búið Öhlins fjöðrunarkerfi og felgurnar eru OZ racing. Það er ólíkt öðrum hjólum að því að leyti það er með motocross stýri svo ásetan er mjög upprétt sem gerir það tilvalið í allskonar áhættuakstur og sýningar. Þessi hjól eiga heimsmetið í því að vera bara á framdekkinu (öfugt prjón), 255 metra.
Bílar Mest lesið Steinn Ármann er látinn Lífið Davíð Þór um fráfall Steins Ármanns: „Engin orð. Bara sorg“ Lífið Kjóllinn brann korter í brúðkaup Lífið „Ég er bara einhver skel af sjálfri mér núna“ Lífið Fór létt með tíu kílómetra: „Við sjáumst bara í markinu gamla mín“ Lífið Margir minnast Steins Ármanns: „Gaf okkur stærstu gjöf sem hægt er að gefa“ Lífið Krakkatía vikunnar: Svampur Sveinsson og Sesarsalatið Lífið Leikkonan Bunny Levine er látin Lífið „Maður veit aldrei hvað framtíðin ber í skauti sér“ Lífið Úlfadrengurinn í Sierra Morena allur Lífið Fleiri fréttir Orgel Grensáskirkju fékk nýtt líf í Saurbæ Eitt myndband selji upp heilu lagerana Byrjaði sem þráhyggja fyrir rapplagi á spítala Jón Viðar fellir dóm yfir Ódysseifskviðu án þess að sjá hana Hulda Hákon, Jón Óskar og Krassasig á ListaVestrinu Aðsóknarmet slegið á brúðulistahátíð á Hvammstanga Dreymdi um að á bókasafninu væri bók eftir sig Skólastika Gamalíelsdóttir vekur undrun Íslendinga Sýning Bjarkar bæði væmin og stórkostleg og leggur til stofnun Bjarkarsafns Sjá meira