Mót í Víkingaskák 23. júlí 2004 00:01
Þann 22. júlí var haldið mót í Víkingaskák. Vel fór á með mönnum hvort sem þeir unnu eða töpuðu. Eins og sjá má á myndinni fengu allir þátttakendur verðlaunapening. Víkingaskák er manntafl sem fundið var upp af Magnúsi Ólafssyni. "Ég kláraði að þróa taflið 1972. Svo gaf ég Spasskí og Fischer eintak af taflinu þegar þeir komu hingað til lands," segir Magnús. Hann segir að erfiðlega hafi gengið að fá menn til að tefla taflið þó svo að það hafi breyst hin síðari ár. Í Víkingaskák eru tvö lið og samanstendur hvort lið af níu mönnum og níu peðum. Nöfn taflmannanna eru þau sömu og í venjulegri skák nema að níundi maðurinn heitir víkingur. Manngangnum svipar til manngangsins í hefðbundinni skák og er auðlærður. Aðeins manngangur víkingsins er nýr. Í hefðbundnu tafli eru tvær stefnur en í Víkingaskák eru þær þrjár. Víkingaskákin mun vera heldur flóknara tafl en venjuleg skák sökum fleiri taflmanna, fleiri reita á taflborðinu auk einnar stefnu meir. Þrátt fyrir göfgi hinnar klassísku skákar hafa öðru hvoru alltaf verið gerðar tilraunir til að þróa ný afbrigði.
Lífið Mest lesið Steinn Ármann er látinn Lífið Davíð Þór um fráfall Steins Ármanns: „Engin orð. Bara sorg“ Lífið Kjóllinn brann korter í brúðkaup Lífið „Ég er bara einhver skel af sjálfri mér núna“ Lífið Margir minnast Steins Ármanns: „Gaf okkur stærstu gjöf sem hægt er að gefa“ Lífið Fór létt með tíu kílómetra: „Við sjáumst bara í markinu gamla mín“ Lífið Leikkonan Bunny Levine er látin Lífið „Maður veit aldrei hvað framtíðin ber í skauti sér“ Lífið Krakkatía vikunnar: Svampur Sveinsson og Sesarsalatið Lífið Úlfadrengurinn í Sierra Morena allur Lífið Fleiri fréttir Orgel Grensáskirkju fékk nýtt líf í Saurbæ Eitt myndband selji upp heilu lagerana Byrjaði sem þráhyggja fyrir rapplagi á spítala Jón Viðar fellir dóm yfir Ódysseifskviðu án þess að sjá hana Hulda Hákon, Jón Óskar og Krassasig á ListaVestrinu Aðsóknarmet slegið á brúðulistahátíð á Hvammstanga Dreymdi um að á bókasafninu væri bók eftir sig Skólastika Gamalíelsdóttir vekur undrun Íslendinga Sýning Bjarkar bæði væmin og stórkostleg og leggur til stofnun Bjarkarsafns Sjá meira