Skriflegar uppsagnir á tryggingum 7. júlí 2004 00:01
Fólk á það til að villast í tryggingafrumskóginum og átta sig jafnvel ekki á hvernig hlutirnir virka. Til að hafa allt á hreinu er best að vita hvaða tryggingar eru lögbundnar og hverjar ekki. Þær tryggingar sem eru lögbundnar eru til að mynda brunatrygging húseignar og almenn bílatrygging. Við kaup og sölu á eignum skráir fasteignasalinn hvar eigandinn vill að eignin sé brunatryggð og svo eru upplýsingarnar sendar viðkomandi tryggingafélagi. Sömu sögu er að segja með bílatryggingar þar sem eigendaskiptin fara í gegnum bifreiðastofu og þá skal ætíð tekið fram hvar eigi að tryggja bílinn. Upplýsingar varðandi eignaskipti eiga að berast tryggingafélögunum og þannig á þetta að gerast nánast sjálfkrafa. Hins vegar skal hafa það fyrir reglu að hringja alltaf í tryggingafélagið til að sjá til þess að allt sé frágengið. Ólögbundnar tryggingar, eins og húseigendatryggingar, þarf fólk að sjá um að tilkynna til tryggingafélagsins ef einhverjar breytingar verða á eignarhaldi húsnæðis. Hvað heimilistryggingu varðar fylgir hún innbúinu en ekki húsnæðinu og þarf ekki að tilkynna um neitt annað en breytt heimilisfang fyrir reikninginn. Ef til stendur að skipta um tryggingafélag skal hafa í huga að tryggingar gilda í ár í senn og endurnýjast sjálfkrafa að ári liðnu. Til þess að segja upp tryggingum þarf að senda skriflega beiðni eigi síðar en mánuði áður en tryggingin endurnýjast. Við eignaskipti fellur tryggingin hins vegar úr gildi við afhendingardag.
Fjármál Mest lesið Orðin háð því að vera „enginn“ Lífið Siggi Gunnars hættur sem tónlistarstjóri Rásar 2 Lífið Stjörnulífið: Afmælið endaði með ælu Lífið Dimma búin að fylla í skarð Stebba Jak Tónlist Margir minnast Steins Ármanns: „Gaf okkur stærstu gjöf sem hægt er að gefa“ Lífið „Hún sagði já“ Lífið Fór á fimm tónleika Ariönu Grande á viku Tónlist Léttist við stöðugt pizzuát Lífið „Ég er bara einhver skel af sjálfri mér núna“ Lífið Steinn Ármann er látinn Lífið Fleiri fréttir Orgel Grensáskirkju fékk nýtt líf í Saurbæ Eitt myndband selji upp heilu lagerana Byrjaði sem þráhyggja fyrir rapplagi á spítala Jón Viðar fellir dóm yfir Ódysseifskviðu án þess að sjá hana Hulda Hákon, Jón Óskar og Krassasig á ListaVestrinu Aðsóknarmet slegið á brúðulistahátíð á Hvammstanga Dreymdi um að á bókasafninu væri bók eftir sig Skólastika Gamalíelsdóttir vekur undrun Íslendinga Sýning Bjarkar bæði væmin og stórkostleg og leggur til stofnun Bjarkarsafns Sjá meira