Filippseyjar

Filippseyjar

Höfuðborg: Manila. Mannfjöldi: 118,4 milljónir (2025). Flatarmál: 300.000 ferkílómetrar.


Fréttir í tímaröð

Fréttamynd

Thomas Markle sakaður um vörslu barnaníðsefnis

Thomas Markle, faðir hertogaynjunnar Meghan Markle, hefur verið sakaður um vörslu barnaníðsefnis af syni sínum. Megan var upplýst um ásakanirnar árið 2018 og segist þess vegna hafa haldið fjarlægð við föðurinn og meinað honum að umgangast börn hennar. Thomas Markle hefur neitað fyrir ásakanirnar og segir þær „sjúkar lygar“.

Erlent
Fréttamynd

Leita 129 manns eftir að ferju hvolfdi við Indónesíu

Enn er 129 manns saknað eftir að ferju hvolfdi í Jövuhafi við Indónesíu í slæmu veðri í gær. Búið er að bjarga um 108 manns. Sex í það minnsta eru látin. Alls voru um 243 um borð í ferjunni sem var að fara frá Surabaya í Austur-Jövu til Banjarmasin í Suður-Kalimantan-héraði á Borneo-eyjunni.

Erlent
Fréttamynd

Var rænd af barnahópi á Filipps­eyjum

Sambandsslit í byrjun árs 2023 urðu vendipunktur í lífi Láru Borgar Lárusdóttur. Hún ákvað að hætta að bíða eftir „réttum“ tíma og hélt ein af stað út í heim. Á meðan á ferðinni stóð sagði hún upp starfi sínu og ákvað að líta á óvissuna sem tækifæri. Balí varð fyrsta af þremur stórum „sóló“ ferðalögum sem síðar leiddu hana um Suður-Ameríku og Asíu. Í dag deilir hún reynslu sinni reglulega á samfélagsmiðlum þar sem hún veitir innsýn í bæði frelsið og áskoranirnar sem fylgja því að ferðast ein.

Lífið
Fréttamynd

Einn vin­sælasti ís­lenski tón­listar­maðurinn ó­þekktur hér­lendis

Keath Ósk á íslenskan föður og filippseyska móður og gefur út tónlist undir nafninu Yaelokre. Nafnið hljómar ekki kunnuglega í eyrum margra en þó er um að ræða einn vinsælasta íslenska tónlistarmanninn á Spotify með þrjár milljónir mánaðarlegra hlustenda og stóran alþjóðlegan fylgjendahóp sem mætir á tónleika.

Tónlist
Fréttamynd

Tuga saknað eftir ruslskriðu á Filipps­eyjum

Að minnsta kosti tveir eru látnir og 36 er saknað eftir að fjall úr rusli og braki hrundi yfir sorpvinnslustöð á ruslahaug á Filippseyjum. Flóð rusls og braks flæddi yfir hús og eru margir sagðir hafa lokast inni. Þrettán var bjargað í nótt en einn þeirra lést í.

Erlent
Fréttamynd

Ís­lensk raunveruleikastjarna í Sví­þjóð: „Þetta var fokking erfitt, sér­stak­lega fyrir líkamann“

Ágúst Örn Helgason keppir í nýjustu seríu sænska Survivor. Tökurnar í Filippseyjum reyndu á líkamlega og horaðist Ágúst um tólf kíló. Pínan setti í samhengi hvað Ágúst elskar heitt unnustu sína, vinnu og heimili. Hann keppti fyrir tveimur árum í ástarþáttunum Married at First Sight og er því tvöföld raunveruleikastjarna í Svíþjóð.

Lífið
Fréttamynd

Tala látinna hækkar á Filipps­eyjum

Tala látinna á Filippseyjum eftir að fellibylurinn Kalmaegi gekk yfir er nú komin í 114 og forseti landsins, Ferdinand Marcos yngri hefur lýst yfir neyðarástandi.

Erlent
Fréttamynd

Tala látinna hækkar á Filipps­eyjum

Björgunarlið er enn að störfum á Filippseyjum þar sem öflugur skjálfti upp á 6,9 stig reið yfir í gær. Að minnsta kosti 69 eru látnir en ástandið er verst í Cebu héraði.

Erlent
Fréttamynd

Enn ein ásiglingin við rifið um­deilda

Talsmenn strandgæslu Kína hefur sakað áhöfn skips frá Filippseyjum að sigla vísvitandi á skip strandgæslunnar við umdeilt rif í Suður-Kínahafi. Ráðamenn í Filippseyjum segja ásakanirnar rangar. Kínverskir sjóliðar hafi notað öflugar vatnsbyssur til að skemma filippseyskt skip og slasa áhafnarmeðlim þar um borð.

Erlent
Fréttamynd

Kín­verskt skip stórskemmt eftir á­rekstur við tundurspilli

Tvö kínversk herskip skullu saman af miklum krafti á Suður-Kínahafi í dag. Þá var verið að reyna að nota skipin til að reka skip frá strandgæslu Filippseyja á brott frá Scarboroughrifi. Áhöfn filippseyska skipsins komst undan þegar kínversku skipin skullu saman en annað þeirra skemmdist verulega.

Erlent
Fréttamynd

Dæmi um að tvær fjöl­skyldur deili einni au pair

Saga Kjartansdóttir, sérfræðingur á vinnumarkaðssviði hjá ASÍ, segir nauðsynlegt að stjórnvöld endurskoði vistráðningakerfið og sérstök dvalarleyfi fyrir au pair á Íslandi. Stjórnvöld verði að tryggja að kerfið sé notað eins og á að gera það.

Innlent
Fréttamynd

Ellefu manns látnir og talan gæti hækkað

Ellefu eru látnir og tugir slasaðir eftir að maður ók á hóp fólks í Kanada. Yngsta fórnarlambið var fimm ára gamalt barn. Hópurinn var að fagna degi Lapu Lapu, hátíðisdegi Filippseyinga.

Erlent