Fréttamaður

Smári Jökull Jónsson

Smári Jökull er fréttamaður á fréttastofu Sýnar.

Nýjustu greinar eftir höfund

„Ég treysti því að lög­reglan muni skoða þetta mjög ræki­lega“

Framkvæmdastjóri Geðhjálpar segir samtökin hafa bent á að svo virðist sem þekkingarleysi sé innan lögreglunnar þegar hafa þarf afskipti af fólki sem glímir við andleg vandamál. Hann segir óhugnanlegt þegar rafbyssum er beitt líkt og gert var við handtöku í Reykjanesbæ í gær.

„Get full­yrt að þetta mun ekki valda neinum réttar­spjöllum“

Lögreglustjórinn á Suðurnesjum segir að beiting rafvarnarvopns við aðstæður sem uppi voru við handtöku í Keflavík í gær sé varasöm og fullyrðir að engin réttarspjöll verði þó vitni að atvikinu hafi verið gert að eyða myndbandi af handtökunni. 

„Ferðin á þessum bíl var al­veg svaka­leg“

Rútubílstjóri sem varð vitni að ofsaakstri á Reykjanesbraut í gærkvöldi segir bílinn hafa verið á svakalegri ferð. Sá hann þegar lögregla hóf eftirför en henni lauk við Breiðholtsbraut með árekstri þar sem tveir bílar enduðu utan vegar.

Eftir­lits­menn á vegum Evrópu­ráðsins fylgjast með kosningunum

Eftirlitsmenn á vegum Evrópuráðsins eru hér á landi til að fylgjast með framkvæmd sveitarstjórnarkosninganna. Að sögn framkvæmdastjóra landskjörstjórnar er hópurinn hér á landi að eigin frumkvæði og fylgist með að framkvæmd kosninganna sé í samræmi kosningalög.

Enginn aug­ljós meiri­hluti á vinstri vængnum

Prófessor í stjórnmálafræði segir meirihluta Sjálfstæðisflokks, Viðreisnar og Framsóknarflokksins vera líklegustu niðurstöðuna í Reykjavík, miðað við nýjustu kannanir. Hann segir Samfylkinguna með erfiðan farangur í farartaskinu eftir óvenju langa valdatíð og býst við mikilli spennu i kvöld.

Kjör­dagur runninn upp

Í hádegisfréttum verða sveitastjórnarkosningarnar allsráðandi. Við ræðum við formann yfirkjörstjórnar í Reykjavík um kjörsókn og förum ítarlega yfir nýjustu kosningaspá Vísis sem gefur vísbendingar um nýja möguleika á meirihlutasamstarfi.

„Auð­vitað, við erum lang­besti flokkurinn“

Það er ekki bara kosið á morgun því nemendur í Dalskóla héldu kosningar í dag þar sem kosið var um stefnuskrár flokka sem nemendur höfðu stofnað. Meðal stefnumála var að hafa frítt í strætó auk kröfu um að nemendum væri kennt á lífið sem tekur við að skólagöngu lokinni.

„Fánar úti um allt og fólk er að gíra sig upp í þetta“

Leikir Tindastóls í úrslitakeppni Bónus-deildar karla í körfubolta taka yfir allt lífið á Sauðárkróki á leikdegi segir formaður körfuknattleiksdeildar félagsins. Hann segir mikla tilhlökkun fyrir leik kvöldsins gegn Grindavíkur og fánar félagsins séu við hún víða um bæinn.

„Það er ekki leið­togi“

Oddviti framboðsins Betri sveitar segir Fjólu Kristinsdóttur sveitarstjóra Grímsnes- og Grafningshrepps ekki óháða í umræðu um kosningamál í hreppnum. Hann  tekur undir orð hennar um að siðferðislega rangt sé að skrá sig á kjörskrá fyrir kosningar og aftur út að þeim loknum.

Sjá meira