Tekjulágir borga minna fyrir matinn og borgarfulltrúar meira Hildur Björnsdóttir borgarstjóri lagði til á fundi borgarráðs í dag að tekjulágir geti fengið heimsenda máltíð og máltíð í félagsmiðstöðvum Reykjavíkurborgar á 1.500 krónur en ekki 1.900 eins og velferðarráð lagði til í vikunni. Á sama tíma lagði hún til að borgarfulltrúar greiddu meira fyrir hádegismat sinn. 20.8.2026 12:30
Ókeypis strætó-skutlur á Menningarnótt og tæming frá Sólfarinu Ókeypis skutlur munu aka á milli Laugardalshallar og Hallgrímskirkju á laugardag þegar Menningarnótt Reykjavíkur fer fram. Frá klukkan 22 verður hægt að taka strætó ókeypis frá Sólfarinu í öll hverfi Reykjavíkur. Allir vagnar verða notaðir til að koma fólki heim. 20.8.2026 11:29
Tilkynntur til barnaverndar eftir að hann deildi mynd af syni sínum með byssu Ragnar Þór Jóhannsson, faðir úr Vestmannaeyjum, var tilkynntur til barnaverndar eftir að hann tók son sinn á veiðar og deildi af þeim mynd þar sem sonur hans, Liam, hélt í byssuna. Sonur hans meðhöndlaði ekki vopnið á neinn hátt og voru vopnin óhlaðin í myndatökunni að sögn Ragnars. 20.8.2026 09:16
„Tengsl Íslands og Eistlands eiga sér sérstaka sögu“ Forsetahjónin Halla Tómasdóttir og Björn Skúlason hófu þriggja daga ríkisheimsókn til Eistlands í gær. Gestgjafar þeirra eru forseti Eistlands, Alar Karis, og eiginkona hans, Sirje Karis. Markmið heimsóknarinnar er að styrkja góð tengsl Íslands og Eistlands. 20.8.2026 07:58
Fleiri þingmenn segja nei en já og aðrir vilja ekki svara Í það minnsta 29 þingmenn ætla að segja nei í þjóðaratkvæðagreiðslunni um framhald aðildarviðræðna við Evrópusambandið þann 29. ágúst. Sumir þingmenn vilja ekki gefa upp afstöðu sína á meðan aðrir svara ekki fyrirspurn. Fleiri segja nei en já af þeim 51 sem svara. 20.8.2026 07:29
Bjart að mestu í dag en lægð nálgast á morgun Í dag er spáð vestlægri eða breytilegri átt 3-10 m/s og bjart að mestu, en víða skýjað við ströndina vestan- og austanlands. 20.8.2026 07:14
Vilja banna frjáls ferðalög ísraelskra ferðamanna á Íslandi Sniðgönguhreyfingin fyrir Palestínu, BDS Ísland, skorar á stjórnvöld að innleiða skimanir við landamærin á ísraelskum ríkisborgurum á herskyldualdri og að þau banni frjáls ferðalög ísraelskra ferðamanna á Íslandi. Rúm 800 hafa skrifað undir áskorun þess efnis til stjórnvalda. 19.8.2026 14:50
Gestafjöldi fjórfaldaðist á Kveldúlfi Tónlistarhátíðin Kveldúlfur fór fram í annað sinn síðustu helgi á Hjalteyri. Sara Bjarnason skipuleggjandi hátíðarinnar segir hátíðina hafa heppnast gríðarlega vel. 19.8.2026 14:16
Bein útsending: Opinn fundur um samspil stýrivaxta og verðbólgu VR heldur í dag opinn fund um samspil stýrivaxta og verðbólgu. Halla Gunnarsdóttir formaður VR setur fundinn og Jakob Tryggvason formaður RSÍ flytur stutt ávarp. 19.8.2026 10:32
Loka Hagaborg í það minnsta í tvö ár Loka á leikskólanum Hagaborg í Vesturbæ Reykjavíkur í tvö ár. Börn og starfsfólk leikskólans færast yfir á leikskólann Grandaborg. Bæta á við færanlegri einingu við Grandaborg til að fjölga plássum en breytingin fækkar leikskólaplássum í Reykjavík tímabundið um 18 á meðan framkvæmdunum stendur. 19.8.2026 09:31