Fréttamaður

Hólmfríður Gísladóttir

Hólmfríður er fréttamaður á fréttastofu Sýnar.

Nýjustu greinar eftir höfund

Farage sigraði en Ruslatunnufés greifi hlaut fjórðung at­kvæða

Nigel Farage, leiðtogi breska Umbótaflokksins, fór með sigur af hólmi í aukakosningum í Clacton í gær. Hann hlaut 63,34 prósent atkvæða en næstur á eftir honum var grínistinn Jonathan David Harvey, undir dulnefninu Ruslatunnufés greifi. Greifinn, sem er með ruslatunnuhöfuð, hlaut 26,93 prósent atkvæða.

Sagður hafa setið fyrir for­eldrum sínum áður en hann myrti þau

Ákærukviðdómur hefur gefið út ákærur á hendur Nick Reiner, sem er sakaður um að hafa myrt foreldra sína, leikstjórann dáða Rob Reiner og eiginkonu hans Michele Singer Reiner. Í ákærunni segir að Nick hafi setið fyrir foreldrum sínum nóttina sem hann myrti þau.

Ís­lands­banki spáir 0,25 prósent hækkun stýrivaxta

Íslandsbanki spáir því að peningastefnunefnd muni hækka stýrivexti um 0,25 prósent þann 19. ágúst næstkomandi. Þrálát verðbólga og háar verðbólguvæntingar muni trúlega vega þyngra en kólnun í hagkerfinu.

Blaða­menn og aðrir far­þegar notaðir sem tál­beita?

Vísbendingar voru uppi um að Íranir hefðu í hyggju að gera eldflaugaárás á Air Force One, flugvél Bandaríkjaforseta, í Tyrklandi fyrr í sumar, sem varð til þess að Donald Trump var fluttur í aðra vél þegar hann yfirgaf landið.

Tveir hand­teknir í tengslum við heimilis­of­beldi

Tveir einstaklingar voru handteknir á höfuðborgarsvæðinu í nótt í tengslum við heimilisofbeldi. Um var að ræða tvö aðskilin mál en báðir voru vistaðir í fangageymslu. Þá var einn handtekinn í tengslum við húsbrot en sá hafði brotið sér leið inn á hótel.

Vill að­skilja bólu­setningar gegn mis­lingum, hettu­sótt og rauðum hundum

Donald Trump Bandaríkjaforseti hefur gefið út forsetatilskipun sem felur meðal annars í sér að bólusetningum barna verður fækkað úr átján í ellefu. Tilskipunin er í takt við fyrirhugaðar breytingar heilbrigðisráðherrans Robert F. Kennedy Jr. sem tilkynnt var um fyrr á árinu en þær hafa verið stöðvaðar af dómstólum.

Efnt til æfinga í Taí­van fyrir um­fangs­mikið rof á fjar­skiptum

Stjórnvöld á Taívan stóðu í gær fyrir æfingu á fjarskiptatruflunum í kjölfar ímyndaðrar árásar eða innrásar af hálfu Kína. Æfingar vegna mögulegrar árása Kínverja eru reglubundin viðburður en þetta var fyrsta æfing Taívana þar sem gert var ráð fyrir umfangsmiklum fjarskiptatruflunum.

Sjá meira