Harður árekstur á Norðvesturlandi tilkominn vegna framúraksturs Verulega harður árekstur þriggja bíla varð á sjötta tímanum í dag þegar ökumaður ætlaði sér að taka fram úr bílaröð á Hringveginum skammt frá Þrístöpum á Norðvesturlandi. Miklar bílaraðir hafa myndast á vegkaflanum en mikil umferð hefur verið á svæðinu í dag. Enginn er alvarlega slasaður en tveir af þremur bílum eru óökufærir að sögn lögreglu. 3.8.2026 17:55
Þrjú börn látin eftir drónaárás á baðströnd Sjö eru látnir og þar af þrjú börn eftir að drónaárás á baðströnd í suðvesturhluta Rússlands. Minnst fjörutíu manns hlutu áverka í sprengingunni en það þykir mögulegt að árásinni hafi verið beint að rússnesku flotastöðinni í Novorossiysk sem er í um fjörutíu kílómetra fjarlægð frá ströndinni. Úkraínuher hefur ekki tjáð sig um málið. 3.8.2026 17:33
Þúsund sjúkraflug á árinu: „Fyrsta skipti sem við brjótum þann múr“ Sjúkraflugferðum hefur fjölgað umtalsvert á milli ára en slökkviliðsstjóri á Akureyri segir ástæðurnar vera margar. Það hafi hátt í níutíu flugferðir verið skráðar það sem af er liðnum júlímánuði, sem sé met, en gott veður víða um land, ferðamannastraumur og minni heilbrigðisþjónusta í boði á landsbyggðinni sé meðal þess sem valdi miklum fjölda ferða. Það sé nauðsynlegt að auka fjármagn til að tryggja góða þjónustu. 25.7.2026 18:07
„Við ákváðum að snúa bara vörn í sókn“ Fjölskylda sem býr á Barðaströnd í Breiðafirði tók sig til og útbjó stærðarinnar skilti til að fagna því að ferjan Baldur væri snúin aftur til sinnar reglulegu siglingarleiðar. Hún var send suður til Vestmannaeyja fyrir um sex vikum síðan til að sinna ferjuflutningum þar í fjarveru Herjólfs. 25.7.2026 13:48
Eldarnir þeir skæðustu sem hafi nokkurn tímann herjað á landið Alls hefur ríflega tvö hundruð og fimmtíu þúsund manns verið gert að rýma svæði í Suður-Evrópu og nú loga gróðureldar víða í Frakklandi og á Spáni. Langar bílaraðir mynduðust þegar þúsundir flúðu á brott úr úthverfum borgarinnar Bordeaux í suðvesturhluta Frakklands í nótt. 25.7.2026 09:40
Vilja láta svipta ekkju leikarans yfirráðum yfir dánarbúinu Bræður bandaríska leikarans Chadwick Boseman, sem lést úr ristilkrabbameini árið 2020 einungis fjörutíu og þriggja ára að aldri, hafa stefnt ekkju hans, Taylor Simone Ledward-Boseman, vegna meðferðar hennar á margra milljóna dala dánarbúi hans. Þeir fara fram á að hún verði svipt yfirráðum yfir dánarbúinu en Boseman hafði ekki verið búinn að gera erfðaskrá þegar hann lést. 25.7.2026 08:59
Fleygt fram af svölum á fyrstu hæð fjölbýlishúss Meðal þess helsta á lista lögreglustöðvar eitt, sem sinnir verkefnum í Austurbæ, Miðbæ, Vesturbæ og á Seltjarnarnesi, var tilkynning um líkamsárás þar sem aðila var fleygt fram af svölum á fyrstu hæð fjölbýlishúss. Þeir sem fleygðu honum fram af fundust skammt frá vettvangi og voru handteknir en árásarþoli var fluttur á slysadeild til aðhlynningar með minniháttar áverka. Málið er enn í rannsókn. 25.7.2026 07:59
Varað við hviðum á Austurlandi en blíðu í höfuðborginni Eftir suðvestanáttir undanfarinna vikna hafa nú orðið umskipti í veðrinu og nú er það lægðasvæði á milli Íslands og Noregs sem ræður ferðinni. Víða verður gola og hvassast austantil á landinu en á þeim slóðum gætu hviður náð allt að átján metrum á sekúndu. 25.7.2026 07:33
„Klappað eins og það væri stórstjarna að koma inn“ Ferðaþjónustuaðilar lýsa ófremdarástandi á Keflavíkurflugvelli vegna mikils biðtíma sem skapast hefur í kjölfar innleiðingar nýs kerfis í landamæraeftirliti hérlendis. Ferðamenn, sem séu margir hverjir á efri árum, séu margir að bíða í allt á þriðja tíma en lögregla segist kappkosta að manna eftirlitið. Nýtt sjálfvirkt kerfi verði vonandi komið í gagnið í haust. 24.7.2026 20:26
Daniil gefur út lag með Kodak Black: „Trúi þessu ekki ennþá“ Rapparinn Daniil hefur nú gefið út nýtt lag ásamt bandaríska tónlistarmanninum Kodak Black en hann segir útgáfuna hafa komið honum í opna skjöldu. Sá síðarnefndi hefur verið gríðarlega vinsæll síðasta áratuginn og um þrjátíu milljónir manns hlusta á lögin hans í hverjum mánuði. Hann hefur unnið að lögum ásamt Bruno Mars, Travis Scott, Gucci Mane og Future svo dæmi séu tekin. 23.7.2026 15:42