Fréttamaður

Freyja Þórisdóttir

Freyja er fréttamaður á fréttastofu Sýnar.

Nýjustu greinar eftir höfund

Reyndust báðir vopnaðir, annar hamri og hinn öxi

Tilkynnt var um tvo vopnaða aðila í miðbæ Reykjavíkur í gærkvöldi eða nótt en að sögn tilkynnanda voru þeir ógnandi og árásargjarnir. Annar þeirri reyndist vopnaður öxi og hinn hamri en þeir voru handteknir og færðir á lögreglustöðina á Hverfisgötu. Lagt var hald á vopn í málinu en ekki liggur fyrir hvort bæði öxin og hamarinn hafi verið haldlögð.

Von á lægðarsvæði í átt að landinu úr suð­vestri

Í dag er von á mildu og hlýju veðri á Austurlandi en skýjað og dálítil súld eða rigning með köflum vestantil. Þá má búast við suðlægri átt og stafar hún af lægðarsvæði sem kemur í átt að landinu úr suðvestri. Hitinn 10 til 16 stig en gæti komist upp í 18 til 19 stig allvíða á hálendinu.

Næturborun í sjó lokið og verk­takar þakka í­búum þolin­mæðina

Síðustu vikur hefur borun staðið yfir að næturlagi í sjónum úti fyrir Kársnesi en henni er nú lokið. Borunin er skref í smíði Fossvogsbrúar sem verður 270 metra löng, allt að sautján metra breið og opnar þann 16. júní árið 2028, ef allt fer eftir áætlun. Staðarstjóri segir framkvæmdina vera hreint út sagt ótrúlega en meðal þeirra sem hafa komið að smíðinni eru atvinnukafarar sem sérhæfa sig í logsuðu neðansjávar.

„Við látum ekki fæla okkur aftur inn í skápinn“

Hinsegin dagar standa nú yfir og er fjöldi viðburða á dagskrá næstu daga, svo sem glansverkstæði, hýr húslestur, trans kirkja og hinsegin hraðstefnumót. Listrænn stjórnandi opnunarhátíðarinnar segir bakslag í samfélaginu augljóst en að hinsegin fólk sé óhrætt við að ögra. Í ár sé sérstaklega kappkostað að gera ungu hinsegin fólki hátt undir höfði og er lag hátíðarinnar samið og flutt af hinum átján ára gamla Guðjóni Þorgils Kristjánssyni.

Dregur sig í hlé: „Þessi aumingja kona er að deyja beint fyrir framan okkur“

Bandaríska söng- og leikkonan Ariana Grande ætlar að draga sig úr sviðsljósinu eftir að yfirstandandi tónleikaferðalagi hennar lýkur þann 1. september. Hún hefur sagt aðdáendum sínum frá því að hléið hafi verið skipulagt lengi og sé með engu móti ákveðið í flýti. Grande hefur sætt mikilli gagnrýni undanfarin misseri en meðal annars hefur fólk sett út á það hversu grönn hún sé.

Fram­kvæmda­stjórinn heldur frí­dag verslunar­manna heilagan

Björgvin Víkingsson framkvæmdastjóri Bónus birti í dag færslu þar sem hann ítrekar mikilvægi frídags verslunarmanna. Þá veltir hann upp spurningunni hvort það megi ekki gera þetta að venju aftur en Bónus var eina verslunarkeðjan þar sem allar verslanir voru lokaðar í dag, 3. ágúst.

Niðurgangspestin hefur dregið tvo til dauða

Umfangsmikill sníkjudýrafaraldur sem braust út í Bandaríkjunum í júlímánuði, þar sem helsta einkennið er harkalegur niðurgangur, hefur dregið tvo til dauða. Yfirvöld hafa tengt faraldurinn við salat sem var innflutt og selt af Taylor Farms en keðjur á borð við Taco Bell keyptu salat frá birgjanum.

Annar á­rekstur á sama vegkafla og einn fluttur með sjúkra­bíl

Einn var fluttur undir læknishendur eftir að tveir bílar rákust á í kjölfar framúraksturs á Hrútafjarðarhálsi á Norðvesturlandi á sjöunda tímanum í kvöld. Þrír voru í bílunum en sá sem var fluttur með sjúkrabíl er ekki alvarlega slasaður. Lögreglan biðlar til fólks að sýna þolinmæði en tvö keimlík slys hafa orðið á Norðvesturlandi í kvöld.

Sjá meira