Varafréttastjóri

Árni Sæberg

Árni er varafréttastjóri á fréttastofu Sýnar.

Nýjustu greinar eftir höfund

Skip­verjarnir mega allir fara frá borði

Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu hefur ákveðið að leyfa öllum skipverjum skipsins Bandero að yfirgefa skipið. Þeir þurfa þó að halda sig á höfuðborgarsvæðinu og sinna tilkynningarskyldu.

Minnst einn skip­verji Bandero má fara frá borði

Héraðsdómur Reykjavíkur hefur ógilt ákvörðun Lögreglunnar á höfuðborgarsvæðinu um að skipverji skipsins Bandero skuli halda sig um borð í skipinu. Lögregla mun kæra úrskurð þess efnis til Landsréttar.

Slökktu eld í jepp­lingi á „ör­skots­stund“

Slökkviliðinu á höfuðborgarsvæðinu barst tilkynning klukkan 13:20 um eld í jepplingi á bílastæði við verslun Hagkaupa í Skeifunni. Slökkviliði tókst að ráða niðurlögum eldsins á örskotsstund.

Oculis tekur kipp í örviðskiptum eftir til­kynningu

Gengi lyfjafyrirtækisins Oculis hefur hækkað um tæp sjö prósent í tveimur viðskiptum fyrir alls 363 þúsund krónur í morgun. Félagið gaf út tilkynningu í gær um jákvæð viðbrögð taugasjúkdómadeildar Matvæla- og lyfjaeftirlits Bandaríkjanna við umsókn varðandi klíníska þróunaráætlun lyfsins Privosegtor við bráðum MS-köstum.

Gabríel Douane og fimm aðrir sýknaðir

Gabríel Douane Boama, sem ítrekað hefur komist í kast við lögin undanfarin ár, og fimm aðrir karlmenn hafa verið sýknaður af ákæru um sérstaklega hættulega líkamsárás, húsbrot og eignarspjöll. 

Flug­maðurinn er fundinn

Björgunarsveitir og þyrla landhelgisgæslunnar voru kallaðar út til leitar og björgunar eftir að flugmanni svifvængs hlekktist á og hann varð viðskila við samferðamenn sunnan Mýrdalsjökuls. Hann hefur nú verið fluttur á Landspítalann til skoðunar og aðhlynningar á bráðamóttöku.

Olíu­verð fellur í kjöl­far sprengjuhlés

Verð á Brent-hráolíu hefur fallið um níu prósent það sem af er degi eftir að hafa einnig lækkað í gær. Verðið stendur nú í 88 Bandaríkjadölum eftir að hafa rofið 100 dala múrinn fyrir helgi. Ástæða lækkunarinnar er sú að Bandaríkin og Íran hafa gert hlé á átökum sínum og flutningaskip geta því siglt um Hormússund.

Skip­verjarnir áttu að fá 2,5 milljónir króna á haus

Annar tveggja skipverja Dettifoss, sem ákærðir hafa verið fyrir að hafa komið að innflutningi á fjórtán lítrum af amfetamínbasa, segir þá hafa átt að fá 2,5 milljónir króna fyrir ómakið. Ætla má að götuvirði efnanna gæti numið allt að 280 milljónum króna og skipverjarnir gætu átt yfir höfði sér langa fangelsisvist.

Sjá meira