Vest­manna­eyjar

Vest­manna­eyjar

Mannfjöldi: 4.470 (2025). Flatarmál: 16 ferkílómetrar.


Fréttamynd

Ó­þekkti sonurinn leitaði Her­bert uppi

Popparinn Herbert Guðmundsson fékk í byrjun árs óvæntan tölvupóst frá Arnari Jóhanni Ragnarssyni sem taldi Herbert vera föður sinn. DNA-próf staðfesti faðernið og hafa feðgarnir síðan þá verið að kynnast. Arnar er áttunda barn Herberts, þar af það sjöunda sem er blóðtengt honum.

Lífið

Fréttir í tímaröð

Fréttamynd

Þurfa að hætta við mótorakaup fáist ekki fé frá ríkinu

Rekstrarfélag Herjólfs segist verða að hætta við kaup á tveimur varamótorum fyrir ferjuna ef ríkið tryggir ekki fjármögnun þeirra. Samkvæmt félaginu hafa mótorarnir þegar verið pantaðir og þrjátíu prósent kaupverðsins greidd en það segist ekki eiga fyrir eftirstöðvunum.

Innlent
Fréttamynd

Hafa skotið um hundrað bjargdúfur í Vest­manna­eyjum

Vestmannaeyjabær hóf fyrr í þessum mánuði fækkun bjargdúfna í Vestmannaeyjum. Hingað til hafa samtals 94 bjargdúfur verið felldar. Dýraverndunarsamband Íslands hefur áhyggjur af aðgerðunum og eftirliti með þeim. Í leyfi sem bærinn fékk frá ráðuneyti er ekki tilgreindur ákveðinn hámarksfjöldi fugla sem heimilt er að fella en markmið aðgerðanna er að fækka bjargdúfum og halda stofninum í skefjum.

Innlent
Fréttamynd

Biðla til pysjubjörgunarfólks að fara var­lega

Lögreglan í Vestmannaeyjum biðlar til þeirra sem standa nú að björgun á lundapysjunni að fara varlega og leggja leið sína að svokölluðu sleppisvæði og standa þar fyrir innan hlaðna veggi. Þeim hafi borist í það minnsta tvær tilkynningar um að fólk hafi staðið fyrir utan veggina og litlu munað að illa færi.

Innlent
Fréttamynd

Bjarga þúsundum pysja í Eyjum

Lundapysjutímabilið stendur sem hæst þessa dagana í Vestmannaeyjum en björgun lundapysja er einn af hápunktunum hjá ungviðinu í Eyjum ár hvert. Fréttastofan kíkti til Eyja og fylgdist með pysjubjörgun og eftirliti.

Innlent
Fréttamynd

Lögnin komin á land en verður látin kyrr liggja

Lokið var við að leggja lögnina NSL-4 að landi í Vestmannaeyjum snemma í morgun. Ekkert verður hróflað við lögninnni á meðan tryggingafélag kannar umfang tjónsins sem varð á henni við lögn um síðustu helgi.

Innlent
Fréttamynd

Þriggja milljarða vatnslögn skemmd: Gæti tekið tvö ár að fá nýja

Bæjarstjóri Vestmannaeyjabæjar segir að það komi í ljós eftir hálfan mánuð hvort hægt verði að nota nýja vatnslögn til Eyja sem nú er verið að leggja. Lögnin skemmdist við útlagningu síðustu helgi. Vestmanneyjarbær hafi nú þegar greitt yfir milljarð vegna verkefnisins en samningar við ríkið um hver beri heildarkostnaðinn standi yfir.

Innlent
Fréttamynd

Skemmdir á nýrri vatns­leiðslu til Eyja

Tjón varð á nýrri vatnslögn til Vestmannaeyja þegar verið var að leggja hana um síðustu helgi. Lögnin kallast NSL-4 almannavarnalögn en útlagning hennar hefur verið stöðvuð á meðan verið er að greina stöðuna.

Innlent
Fréttamynd

Leita ó­þekkts á­rásar­manns á Þjóð­há­tíð

Lögreglan í Vestmannaeyjum óskar eftir vitnum að líkamsárás sem framin var á Brekastíg um klukkan 19:30, laugardaginn 1. ágúst síðastliðinn. Þar var brotaþoli sleginn hnefahöggi í höfuðið af óþekktum manni, sem svo fór í burtu. Brotaþoli var fluttur af vettvangi í sjúkrabifreið.

Innlent
Fréttamynd

Veðrið „eins og eftir pöntun“

Formaður Þjóðhátíðarnefndar segir að fyrsti dagur hátíðarhaldanna hafi gengið vel í gær. Gestir séu almennt ánægðir og verðið sé eins og eftir pöntun.

Innlent