Matur

Matur

Girnilegar uppskriftir úr öllum áttum og fréttir tengdar mat.

Fréttamynd

Hiti á fundi borgar­ráðs vegna breytinga á matarþjónustu

Samhliða því að hætta við endurbætur á eldhúsi Reykjavíkurborgar á Vitatorgi og hækka gjaldskrá veitinga og fæðis hjá Reykjavíkurborg var ákveðið á fundi borgarráðs í vikunni að bjóða út dreifingu máltíðanna. Töluverður hiti var á fundinum en til umræðu voru nokkrar tillögur er varða framleiðslu, dreifingu og sölu á máltíðum fyrir lífeyrisþega og fatlað fólk í Reykjavík. 

Innlent

Fréttir í tímaröð

Fréttamynd

Ekkert annað í stöðunni en að fara á brókinni í ís­búðina

Þegar flugfreyjan Sigríður Birna Jónsdóttir áttaði sig á því að buxurnar hennar hefðu verið teknar í misgripum í útiklefa Vesturbæjarlaugar dó hún ekki ráðalaus. Hún vafði hálfkláraðri peysu sem hún hafði meðferðis um sig miðja og arkaði því næst ásamt syni sínum og tveimur frændum yfir í Ísbúð Vesturbæjar. Þar tók við henni hópur túrista sem brá heldur betur í brún við að sjá konu koma sér fyrir aftast í röðinni, á brókinni.

Lífið
Fréttamynd

Paellu-gerðarmenn kveðja Templara­sund

Eigendur spænska veitingastaðarins La Barceloneta í Templarasundi munu skella staðnum í lás í hinsta sinn á sunnudag. Ástæðan er sú að þeir geta ekki leigt rýmið í Templarasundi áfram og þeir leita að nýju rými undir staðinn.

Viðskipti innlent
Fréttamynd

„Við nýtum tæki­færið og ræðum lífið og til­veruna“

Félagarnir og athafnamennirnir Jón Axel Ólafsson og Óskar Finnsson hittast reglulega í sánu sem Jón Axel er með á pallinum hjá sér og þeir slaka þar á og njóta svo góðra veitinga hjá Óskari sem er einn af virtustu matreiðslumönnum landsins. Vala Matt fór fyrir Ísland í dag og heimsótti þá félaga á palli Jóns Axels.

Lífið
Fréttamynd

„Ég vil vera bestur í öllu“

„Enn þann dag í dag vakna ég á morgnana og segi bara: „Shit hvað ég er heppinn maður“. Ég er að vinna við það sem ég elska, þetta er áhugamálið mitt og ég geri þetta alla daga,“ segir Michelinstjörnu-kokkurinn Aggi Sverris sem er einn af fremstu matreiðslumönnum landsins.

Lífið
Fréttamynd

Niðurgangspestin hefur dregið tvo til dauða

Umfangsmikill sníkjudýrafaraldur sem braust út í Bandaríkjunum í júlímánuði, þar sem helsta einkennið er harkalegur niðurgangur, hefur dregið tvo til dauða. Yfirvöld hafa tengt faraldurinn við salat sem var innflutt og selt af Taylor Farms en keðjur á borð við Taco Bell keyptu salat frá birgjanum.

Erlent
Fréttamynd

Súr­deigs­brauð­drottningin breytti pít­sa­deigi í þriggja rétta grill­veislu

Ragna Björg Ársælsdóttir, sem margir þekkja sem súrdeigsbrauðdrottninguna, er gestagrillari í nýjasta þættinum af Grillað með Sjöfn. Ragna hefur gert súrdeigsbakstur að sinni listgrein og töfraði fram nokkra af sínum uppáhaldsréttum á grillinu fyrir Sjöfn. Það sem gerir þessa rétti svo skemmtilega er að þeir eru allir byggðir á sama pítsadeiginu.

Lífið samstarf
Fréttamynd

Eig­andi Michelin-staðar á­kærður fyrir notkun maura í mat

Eigandi veitingastaðar í Suður-Kóreu hefur verið ákærður fyrir notkun maura í matreiðslu. Hann á yfir höfði sér eins árs fangelsi og tveggja milljóna króna sekt. Athygli vekur að staðurinn, sem hefur ekki verið nafngreindur, er með tvær Michelin-stjörnur.

Erlent
Fréttamynd

Ríf­lega níu­tíu manns mættu í eitt stærsta pálínuboð Ís­lands­sögunnar

Íslenskur bakari sem saknar þess að mæta á viðburði á borð við köku-pálínuboð frá því að hún bjó erlendis ákvað í sumar að grípa til sinna ráða og skipulagði svokallað „mega-pálínuboð“. Þrátt fyrir að ekki hafi ræst úr veðrinu rættist svo sannarlega úr boðinu en það var haldið í Laugardalnum frá klukkan 14:00 til 16:00 í dag.

Matur
Fréttamynd

„Ég fer og kíki og þá er þarna þetta stærðarinnar lamba­læri“

Enn hefur ekki fundist skýring á því hvernig stærðarinnar, og kryddað, lambalæri og svo seinna steikarsneiðar og flatkökur enduðu í móa við Hafravatn, langt frá næstu mannabyggð. Kona sem var á hlaupaæfingu í aðdraganda Reykjavíkurmaraþonsins og uppgötvaði matinn þegar hundarnir hennar tveir þefuðu hann uppi segist ekki halda að lærið hafi verið eitrað en skilur hvorki upp né niður í því hvernig það endaði á þessum slóðum.

Innlent