Uppgjörið: KR - ÍA 5-1 | Markahæstir í sögunni KR vann í dag öruggan sigur á ÍA þegar að liðin mættust á Meistaravöllum í annað sinn á nokkrum dögum í Bestu deildinni. Lokatölur 5-1 sigur KR sem lyftir liðinu upp í 2. sæti Bestu deildarinnar. Lærisveinar Óskars Hrafns hefndu sín eftir tap gegn ÍA á Skaganum. Íslenski boltinn 13. september 2026 16:30
Kemur fyrirliða KR til varnar: „Talar beint frá hjartanu“ Arnar Freyr Ólafsson, markvörður KR, hefur ekki gefið upp von á því að KR verði Íslandsmeistari og kemur fyrirliða sínum, sem hefur farið mikinn innan sem utan vallar upp á síðkastið, til varnar. Honum finnst hann hafa fengið óréttláta meðferð. Íslenski boltinn 13. september 2026 10:02
Valshjartað slær enn hjá hetju KR Valgerður Gríma Sigurjónsdóttir var hetja KR í dag þegar að liðið tryggði sér sæti í Bestu deildinni á næsta tímabili með 1-0 sigri gegn Keflavík. Valgerður, sem skoraði eina mark leiksins, er Valsari í grunninn en segir KR-hjartað sterkara. Íslenski boltinn 12. september 2026 16:44
KR upp í Bestu deildina KR tryggði sér í dag sæti í Bestu deild kvenna með 1-0 sigri gegn Keflavík í lokaumferð Lengjudeildarinnar. Íslenski boltinn 12. september 2026 15:55
KR með örlögin í sínum höndum og sæti í Bestu deildinni í boði Það ræðst í dag hvaða lið fer upp með Gróttu í Bestu deild kvenna þegar lokaumferð Lengjudeildarinnar fer fram. KR og Haukar berjast um eitt laust sæti. Íslenski boltinn 12. september 2026 12:00
Góðar og slæmar fréttir fyrir íslensku liðin sem ætla í Evrópudeildina Um klukkan 21 annað kvöld ætti að koma í ljós hvort það verður Afturelding eða Breiðablik sem verður fulltrúi Íslands í 1. umferð undankeppni Evrópudeildarinnar næsta sumar. Leið þess liðs inn í Evrópudeildina er orðin enn torfærari en áður en leið Íslandsmeistaranna virðist mun greiðfærari. Íslenski boltinn 10. september 2026 13:32
„Slakasta spilamennska okkar í sumar“ Óskar Hrafn Þorvaldsson, þjálfari KR, var hreinskilinn aðpurður um hvernig hann súmmeraði upp frammistöðu síns liðs í 3-1 tapinu gegn ÍA í Bestu-deild karla í fótbolta í dag. Íslenski boltinn 6. september 2026 16:56
Uppgjörið: ÍA - KR 3-1 | Þrenna Viktors geirnegldi sæti Skagamanna í efri hlutanum Akranes verður í efri hlutanum þegar deildinni verður skipt upp en það var ljóst eftir 3-1 sigur liðsins gegn KR í leik liðanna í 22. umferð Bestu-deildar karla í fótbolta á Elkem-vellinum á Akranesi í dag. Íslenski boltinn 6. september 2026 13:15
Enn kynt upp í rígnum: Ekroth keyrði utan í Aron Aron Sigurðarson, fyrirliði KR, deildi myndskeiði af Oliver Ekroth, fyrirliða Víkings, að hlaupa harkalega utan í sig er Víkingur fagnaði marki sínu gegn KR í 1-1 jafntefli liðanna á dögunum. Íslenski boltinn 5. september 2026 10:00
Lögreglan hafði afskipti af Víkingum Mikil gleði var hjá stuðningsmönnum Víkings, líkt og þeim sem studdu KR, á stórleik gærkvöldsins í Bestu deild karla. Gestirnir smygluðu þó inn trommu sem olli vandræðum. Íslenski boltinn 2. september 2026 08:01
Myndaveisla: Á fimmta þúsund manns á stórleik KR og Víkings Á fimmta þúsund manns gerðu sér ferð á Meistaravelli í kvöld til þess að fylgjast með stórleik KR og Víkings Reykjavíkur í Bestu deild karla í fótbolta. Leikurinn hin mesta skemmtun, taugarnar þandar og dramatíkin mikil í leikslok. Íslenski boltinn 1. september 2026 23:02
„Það er hrikalegt að sjá þetta“ „Ég finn virkilega mikið til með honum,“ sagði Sölvi Geir Ottesen, þjálfari Víkings, eftir að enn einn leikmanna hans meiddist í kvöld þegar Sveinn Gísli Þorkelsson handleggsbrotnaði í stórleiknum gegn KR. Íslenski boltinn 1. september 2026 21:32
„Í gær var ég að æfa nákvæmlega sama skot“ Ármann Ingi Finnbogason skoraði stórkostlegt mark fyrir Víkinga gegn KR í kvöld og þó að það hafi ekki dugað til sigurs átti hann sinn þátt í því að nú eru Víkingar með átta stiga forskot á toppi Bestu deildarinnar. Íslenski boltinn 1. september 2026 21:15
Ummæli Arons ekki svaraverð: „Ekki mikið vit í því sem hann er búinn að vera segja“ Sölvi Geir Ottesen, þjálfari Íslandsmeistara Víkings Reykjavíkur, kaus að svara ekki mati Aron Sigurðarsonar, fyrirliða KR, á hans liði eftir leik Víkings og KR í Bestu deildinni í kvöld. Ummæli Arons væru ekki svaraverð, það væri ekki mikið vit í því sem hann hefur verið að láta út úr sér í aðdraganda leiksins. Íslenski boltinn 1. september 2026 21:06
„Gæti óskað þeim til hamingju með titilinn núna“ „Við sýndum mikinn styrk með því að koma til baka og ná okkur í stigið. Halda okkur fyrir ofan Fram. Við megum ekki gleyma að Fram er þarna líka og akkúrat núna er Fram keppinautur okkar,“ sagði Óskar Hrafn Þorvaldsson, þjálfari KR, eftir 1-1 jafnteflið í toppslagnum við Víkinga í kvöld. Íslenski boltinn 1. september 2026 20:58
Mörkin úr stórslag KR og Víkings í lýsingu Gumma Ben KR bjargaði stigi gegn ríkjandi Íslandsmeisturum Víkings Reykjavíkur í mögnuðum leik á Meistaravöllum í Bestu deildinni í kvöld. Bæði mörk leiksins komu í uppbótartíma. Lokatölur 1-1. Íslenski boltinn 1. september 2026 20:21
KR - Víkingur 1-1| Hjartahnoð Arnórs Ingva á síðustu stundu KR og ríkjandi Íslandsmeistarar Víkings Reykjavíkur gerðu 1-1 jafntefli í mögnuðum leik þar sem að dramatíkin var allsráðandi undir lokin. Ármann Ingi Finnbogason virtist hafa tryggt Víkingum dýrmætan sigur með marki úr efstu hillu í uppbótartíma en mark frá Arnóri Ingva Traustasyni á lokasekúndu leiksins tryggði KR eitt stig. Enn munar átta stigum á milli liðanna. Nánari umfjöllun um leikinn sem og viðtöl frá Meistaravöllum birtast hér á Vísi seinna í kvöld. Íslenski boltinn 1. september 2026 19:35
Söngur og gleði hjá KR-ingum fyrir leik Stærsti leikur tímabilsins í Bestu deild karla til þessa fer fram að Meistaravöllum í Vesturbæ Reykjavíkur klukkan 17.30. Vísir tók púlsinn á stemningunni fyrir leik. Íslenski boltinn 1. september 2026 16:02
Slær Aron markametið í kvöld? Aron Sigurðarson, fyrirliði KR, getur í kvöld orðið sá leikmaður sem hefur flest mörk skorað á einu og sama Íslandsmótinu í fótbolta. Íslenski boltinn 1. september 2026 15:16
„Þetta er síðasti séns fyrir KR-inga“ „KR-ingar verða að vinna þennan leik og maður er skíthræddur um það líka að við gætum séð það sama gerðist á þessu tímabili og gerðist í fyrra eftir að Víkingar duttu út úr leik í Evrópu. Að ef þeir klári þennan leik þá bara vinni þeir bara einfaldlega rest, þannig að þetta er síðasti séns fyrir KR-inga og fyrir þessa hlutlausu, að fá einhverja spennu í deildina fyrir skiptinguna góðu,“ segir Albert Brynjar Ingason sérfræðingur Sýnar Sports í hádegisfréttum Bylgjunnar fyrir stórleikinn í kvöld. Íslenski boltinn 1. september 2026 13:31
Ekki eitthvað sem Víkingur stendur fyrir Stjórn knattspyrnudeildar Víkings harmar skemmdarverk sem unnin voru á Meistaravöllum, heimavelli KR, í aðdraganda leiks liðanna í Bestu deild karla í fótbolta síðdegis. Íslenski boltinn 1. september 2026 12:44
Framkvæmdastjórinn þrífur upp skemmdarverkin Verkefnalisti starfsfólks KR lengdist heldur í morgun þegar skemmdarverk blöstu við í stúkunni að Meistaravöllum. Að nægu er að huga þennan þriðjudaginn. Íslenski boltinn 1. september 2026 12:15
Skemmdarverk unnin á KR-vellinum Hún var ekki glæsileg aðkoman hjá starfsmönnum KR-vallarins er þeir mættu í vinnuna í morgun. Íslenski boltinn 1. september 2026 10:26
Allt klárt á Meistaravöllum fyrir pallaleikinn í kvöld KR-ingar taka á móti Víkingum í stórleik tímabilsins í Bestu-deildinni hingað í kvöld. Búið er að gera ráð fyrir mörg þúsund manns á leikinn sem hefst klukkan 17:30. Víkingar eru fyrir leikinn átta stigum fyrir ofan KR. Liðin eiga eftir að mætast í tvígang, það liggur fyrir. Íslenski boltinn 1. september 2026 10:06
Systurnar báðar með tvö mörk á Ásvöllum og KR upp í annað sætið KR komst upp í 2. sæti Lengjudeildar kvenna með 3-5 sigri á Haukum á Ásvöllum í kvöld. Systurnar Kara og Katla Guðmundsdætur skoruðu báðar tvö mörk fyrir KR-inga. Íslenski boltinn 28. ágúst 2026 22:39
Styðja við börn með krabbamein: Arnór í búningi Rice á fyrsta Treyjudeginum Hverjar eru uppáhaldstreyjur Arnórs Ingva Traustasonar og Arons Sigurðarsonar? Þeir munu líkt og aðrir leikmenn og dómarar í Bestu deildum karla og kvenna ganga inn á völlinn í næsta leik í sinni uppáhaldstreyju, til að sýna börnum með krabbamein stuðning. Fótbolti 28. ágúst 2026 11:02
„Þeir eru að fara í Evrópuleik bara til að halda klúbbnum á floti“ Víkingur er 3-1 undir í einvíginu fyrir seinni leikinn við Borac Banja Luka í umspili Sambandsdeildarinnar í kvöld. Um hálfur milljarður er undir og það hlakkar í andstæðingum Víkings hér heima fyrir að sjá liðið í þessari erfiðu stöðu. Fótbolti 27. ágúst 2026 10:00
Ætlar að rústa markametinu og skora 30 mörk Knattspyrnumaðurinn Aron Sigurðarson hefur skorað 20 mörk í tuttugu leikjum á tímabilinu með KR. Markametið er innan seilingar en hann ætlar að skora þrjátíu mörk. Íslenski boltinn 25. ágúst 2026 10:01
Kom inn á fyrir KR aðeins 14 ára Oktavía Gunnarsdóttir spilaði sinn fyrsta meistaraflokksleik síðasta laugardag þegar hún kom inn á fyrir KR gegn FHL í Lengjudeild kvenna. Hún er nýorðin 14 ára gömul. Íslenski boltinn 25. ágúst 2026 07:00
Átta marka veisla í fyrsta leik Eiðs Smára og Víkingsvélin mallar áfram Fimm leikir fóru fram í Bestu deild karla í fótbolta í gær. Eftirvænting var fyrir fyrsta leik Eiðs Smára Guðjohnsen sem þjálfari KA, fyrsti leikur í erfiðari kantinum gegn KR. Topplið Víkings Reykjavíkur tók þá á móti Val í Reykjavíkurslag. Sjáðu mörkin úr leikjum gærdagsins hér í fréttinni. Íslenski boltinn 24. ágúst 2026 09:02