Konfektmolarnir sýna hvað lítil breyting getur gert Nói Síríus hlaut hvatningarverðlaun Creditinfo og Festu á sviði sjálfbærni árið 2026 fyrir markvisst starf að félagslegri sjálfbærni. Með aðlögun verkefna, þjálfunar og vinnuumhverfis að þörfum einstaklinga með frábrugðna starfsorku hefur fyrirtækið skapað varanleg störf innan hefðbundinnar framleiðslu. Framúrskarandi fyrirtæki 4.11.2026 11:13
Bjarni Benediktsson: „Eftirsóknarvert að vera í þessum hópi“ „Það sem ég kann að meta við þessa viðurkenningu er að það dugar ekki að skila góðum hagnaði í eitt ár,“ segir Bjarni Benediktsson, framkvæmdastjóri Samtaka atvinnulífsins, sem var heiðursgestur þegar Creditinfo veitti framúrskarandi fyrirtækjum viðurkenningu í Hörpu miðvikudaginn 28. október. Tæplega 1.220 fyrirtæki komust á listann í ár, samanborið við 1.155 á síðasta ári. Framúrskarandi fyrirtæki 4.11.2026 09:09
Hafa gott fólk í vinnu og borga reikningana á réttum tíma Creditinfo veitti framúrskarandi fyrirtækjum viðurkenningu fyrir góðan og traustan rekstur, sautjánda árið í röð. Viðburðurinn fór fram í Hörpu þann 28. október. Tæplega 1.220 fyrirtæki komust á listann í ár, samanborið við 1.155 á síðasta ári. Framúrskarandi fyrirtæki 4.11.2026 08:00
330 þúsund ársreikningum síðar er starfið enn jafn skemmtilegt Framúrskarandi fyrirtæki 26.10.2026 10:51
Þungur róður hjá fyrirtækjum en undirstöðurnar sterkar Háir vextir, þrálát verðbólga og minnkandi eftirspurn reyna á íslensk fyrirtæki. Rekstrarumhverfið hefur reynst erfiðara en vonir stóðu til og boðaðar skattahækkanir bæta við áskoranirnar. Ragnar Sigurður Kristjánsson, hagfræðingur Viðskiptaráðs, segir undirstöður hagkerfisins þó sterkar og vaxtatækifæri til staðar, meðal annars í fiskeldi og gagnaverum. Framúrskarandi fyrirtæki 15. október 2026 08:37
Vestfirðir sækja í sig veðrið – átta ný fyrirtæki á lista þeirra Framúrskarandi Það virðist vera góður kraftur í atvinnulífinu á Vestfjörðum um þessar mundir. Á síðasta ári voru tíu vestfirsk fyrirtæki á lista Creditinfo yfir Framúrskarandi fyrirtæki en samkvæmt stöðunni nú eru þau þegar orðin 14. Þar af eru átta fyrirtæki ný á listanum í ár. Framúrskarandi fyrirtæki 12. október 2026 10:28
„Listamaðurinn“ leitar að þeim bestu í íslensku atvinnulífi Á hverju hausti hefst ákveðinn lokasprettur hjá Creditinfo. Ársreikningar streyma inn, símtölum og tölvupóstum fjölgar og hundruð fyrirtækja eru tekin til nákvæmrar skoðunar. Markmiðið er að finna þau fyrirtæki sem standast ströng skilyrði Creditinfo og geta með réttu talist til Framúrskarandi fyrirtækja. Framúrskarandi fyrirtæki 8. október 2026 11:13
Fór úr sjúkraþjálfun og stofnaði fyrirtæki í kringum ástríðuna Formus er í fyrsta sinn á lista Creditinfo yfir Framúrskarandi fyrirtæki. Harpa Gunnarsdóttir, stofnandi og framkvæmdastjóri Formus, segir viðurkenninguna hafa komið skemmtilega á óvart enda hafi markmiðið aldrei sérstaklega verið að komast á listann. Áherslan hafi einfaldlega verið á að vanda til verka, sinna viðskiptavinum vel og byggja upp traustan rekstur. Framúrskarandi fyrirtæki 5. október 2026 11:20
Jafnrétti í stjórnum skilyrði fyrir Framúrskarandi fyrirtæki Eitt helsta mælitæki á góðan rekstrarárangur, stöðugleika, þrautseigju og sjálfbærni íslenskra fyrirtækja er vottunin Framúrskarandi fyrirtæki. Einungis um 2,5% allra fyrirtækja landsins standast skilyrðin ár hvert. Creditinfo hefur nú hert skilyrðin, þau fyrirtæki sem falla undir lög um kynjahlutfall í stjórn þurfa að fylgja þeim lögum til að geta talist Framúrskarandi fyrirtæki. Framúrskarandi fyrirtæki 1. október 2026 11:53
Payday fagnar stórum áfanga og horfir til gervigreindar Það er ekki á hverjum degi sem fyrirtæki kemst í fyrsta sinn í hóp Framúrskarandi fyrirtækja. Hjá Payday er því rík ástæða til að fagna í haust en fyrirtækið er í ár í fyrsta sinn á lista Creditinfo yfir Framúrskarandi fyrirtæki. Framúrskarandi fyrirtæki 28. september 2026 10:07
Frá löngum gátlista yfir í flennigír og fögnuð Haustinu og upphafi vetrar fylgir árleg spenna og tilhlökkun í höfuðstöðvum Creditinfo í Reykjavík. Þá fer vinnan við Framúrskarandi fyrirtæki á fullt og nú er í sautjánda sinn unnið hörðum höndum að listanum. Þótt verkefnið sé löngu orðið fastur liður á þessum árstíma virðist spennan og eftirvæntingin ekkert hafa minnkað með árunum. Framúrskarandi fyrirtæki 23. september 2026 09:16
Aðeins 28 ára og stýrir Framúrskarandi fyrirtæki Það er ekki sjálfgefið að reka öflugt fyrirtæki í litlu samfélagi úti á landi. Hjá fiskvinnslunni Drangi á Drangsnesi hefur þó tekist að byggja upp traustan rekstur og nú er fyrirtækið komið á lista Creditinfo yfir Framúrskarandi fyrirtæki sjötta árið í röð. Framúrskarandi fyrirtæki 18. september 2026 10:13
„Það þarf að fagna því að vera Framúrskarandi fyrirtæki“ Það er alltaf ánægjulegt að komast í góðan félagsskap og kannski sérstaklega þegar maður hefur þurft að vinna sig aftur inn í hann. Kolibri er á ný komið á lista Creditinfo yfir Framúrskarandi fyrirtæki eftir nokkurra ára fjarveru en fyrirtækið hafði áður verið á listanum fjögur ár í röð, frá 2019 til 2022. Framúrskarandi fyrirtæki 17. september 2026 10:42
Eina vottunin sem sýnir hvaða fyrirtæki skara raunverulega fram úr Aðeins um tvö prósent íslenskra fyrirtækja komast árlega á lista Creditinfo yfir Framúrskarandi fyrirtæki. Til þess þarf ekki aðeins að sýna fram á góðan rekstur og hagnað ár eftir ár heldur þurfa fyrirtækin einnig að standast kröfur um lánshæfi, eiginfjárhlutfall og fleiri þætti. Kröfurnar hafa auk þess verið hertar á undanförnum árum. Framúrskarandi fyrirtæki 10. september 2026 09:16
Framsækin og ört vaxandi rafmagnsverkfræðistofa Verkfræðistofan Raftákn er á lista Creditinfo yfir framúrskarandi fyrirtæki sem kynntur var undir lok síðasta árs. Þetta er fimmta árið í röð sem fyrirtækið er á listanum og eru starfsfólk og eigendur himinlifandi með árangurinn. Framúrskarandi fyrirtæki 13. febrúar 2026 13:27
„Gæðastimpill sem einfaldlega virkar” Endurskoðun Vestfjarða var stofnuð árið 2004 í Bolungarvík. Rætur fyrirtækisins má þó rekja til endurskoðunarskrifstofunnar Löggiltir endurskoðendur Vestfjörðum sem sett var á fót árið 1990 og var með starfsstöðvar í Bolungarvík, Ísafirði og á Hólmavík. Framúrskarandi fyrirtæki 10. desember 2025 09:43
Stuðla að góðu orðspori íslenskrar ferðaþjónustu Sky Lagoon er eitt þeirra fyrirtækja sem stekkur nýtt inn á lista Creditinfo yfir Framúrskarandi fyrirtæki í ár. Baðlónið var opnað á Kársnesinu í Kópavogi á vormánuðum 2021 í miðjum heimsfaraldri. Aðdragandinn spannaði yfir áratug en að baki lóninu liggur mikil hönnunarvinna þegar kemur að upplifun gesta. Framúrskarandi fyrirtæki 5. desember 2025 09:12
Framúrskarandi tískuvöruverslunin með stórt hjarta Það er alltaf líf og fjör í tískuvöruversluninni Nínu á Akranesi. Þar standa hjónin Helga Dís Daníelsdóttir og Heimir Jónasson vaktina af óbilandi eldmóði, hvort sem það er snemma morguns eða undir lok vinnudags. Framúrskarandi fyrirtæki 25. nóvember 2025 12:17
Hvernig geta fyrirtæki orðið sjálfbær? Sjálfbærni er einn af þeim þáttum sem Creditinfo horfir til þegar metið er hvaða fyrirtæki fá vottunina Framúrskarandi fyrirtæki. En hvað felst í sjálfbærni og hvað geta fyrirtæki gert til að verða sjálfbærari í dag en í gær? Framúrskarandi fyrirtæki 21. nóvember 2025 08:31
Fjölskyldufyrirtæki sem heldur vélunum gangandi Aflvélar hafa hlotið viðurkenninguna Framúrskarandi fyrirtæki sjö ár í röð, en að sögn Friðriks Inga Friðrikssonar framkvæmdastjóra felst gildi hennar í trausti og trúverðugleika. Fyrirtækið hefur þróast úr smáum handverksrekstri yfir í öflugan innflutnings- og söluaðila tækja sem þjónar bæði flugvöllum, verktökum og bændum um land allt. Framúrskarandi kynning 19. nóvember 2025 14:31
Hvað er eiginlega í vatninu á Höfn í Hornafirði? Höfn í Hornafirði sannar enn og aftur að margur sé knár þótt hann sé smár. Þegar Creditinfo birti nýlega árlegan lista yfir Framúrskarandi fyrirtæki ársins vakti athygli að í þessu rúmlega 1.800 manna bæjarfélagi eiga sautján Framúrskarandi fyrirtæki aðsetur. Til samanburðar eru 16 slík fyrirtæki í Vestmannaeyjum (um 4.470 íbúar), 19 á Akranesi (um 8.300 íbúar) og 26 í Mosfellsbæ (13.715 íbúar). Framúrskarandi fyrirtæki 17. nóvember 2025 09:51
Erfiður vetur framundan en íslensk fyrirtæki ráði við áskoranirnar Hátt í tólfhundruð fyrirtæki teljast Framúrskarandi samkvæmt Creditinfo í rekstrarumhverfi sem hefur sjaldan verið jafn krefjandi. Hvaða brekkur bíða fyrirtækja sem vilja komast á listann yfir Framúrskarandi fyrirtæki eða halda sæti sínu þar? Er allt í volli, verðbólga, skattar, vörugjöld og vesen eða er ljós við enda ganganna? Erna Björg Sverrisdóttir, aðalhagfræðingur Arion banka fer hér yfir áskoranir framundan. Framúrskarandi fyrirtæki 13. nóvember 2025 08:54
Verða ekki Framúrskarandi nema uppfylla lög um kynjahlutfall Á næsta ári mun Creditinfo horfa í auknum mæli til stefnu fyrirtækja í jafnréttismálum þegar kemur að vottuninni Framúrskarandi fyrirtæki. Fyrirtæki sem falla undir lög um kynjahlutfall í stjórn þurfa að fylgja þeim lögum til að geta talist Framúrskarandi fyrirtæki. Framúrskarandi fyrirtæki 5. nóvember 2025 09:13
Eldmóðurinn slokknar ekki þótt kertin séu orðin sjötíu Flestir Íslendingar hætta að vinna kringum 67–70 ára aldurinn en það á þó alls ekki við um alla. Sumir finna enn djúpan tilgang, gleði og orku í starfi sínu, jafnvel löngu eftir að hefðbundnum eftirlaunaaldri er náð. Margir sem halda áfram að vinna eftir sjötugt búa yfir ómetanlegri reynslu, þrautseigju og yfirvegun sem nýtist bæði viðkomandi fyrirtækjunum og samstarfsfólki þeirra. Framúrskarandi fyrirtæki 4. nóvember 2025 09:32
Myndaveisla: Afreksfólk atvinnulífsins fjölmennti í höllina Creditinfo afhenti Framúrskarandi fyrirtækjum viðurkenningu með pompi og prakt í Laugardalshöll 30. október. Hátt í tólf hundruð fyrirtæki komust á listann í ár. Uppfylla þaf ströng skilyrði og því ærið tilefni til að fagna. Afreksfólk atvinnulífsins fjölmennti í höllina. Framúrskarandi fyrirtæki 1. nóvember 2025 08:24