Framúrskarandi fyrirtæki

Að­eins 28 ára og stýrir Framúr­skarandi fyrir­tæki

Starri Freyr Jónsson skrifar
„Ég er með mjög gott starfsfólk í kringum mig og heiðurinn er miklu frekar þeirra en framkvæmdastjórans," segir Mikael R. L. Steingrímsson, framkvæmdastjóri fyrirtækisins, en hann er einn af yngstu framkvæmdastjórunum á lista Creditinfo yfir Framúrskarandi fyrirtæki.
„Ég er með mjög gott starfsfólk í kringum mig og heiðurinn er miklu frekar þeirra en framkvæmdastjórans," segir Mikael R. L. Steingrímsson, framkvæmdastjóri fyrirtækisins, en hann er einn af yngstu framkvæmdastjórunum á lista Creditinfo yfir Framúrskarandi fyrirtæki.

Það er ekki sjálfgefið að reka öflugt fyrirtæki í litlu samfélagi úti á landi. Hjá fiskvinnslunni Drangi á Drangsnesi hefur þó tekist að byggja upp traustan rekstur og nú er fyrirtækið komið á lista Creditinfo yfir Framúrskarandi fyrirtæki sjötta árið í röð.

Á listanum, sem er enn í vinnslu og verður birtur 28. október, er jafnframt skemmtileg staðreynd sem tengist Drangi en Mikael R. L. Steingrímsson, framkvæmdastjóri fyrirtækisins, er einn af yngstu framkvæmdastjórum á listanum en hann er einungis 28 ára gamall.

„Það er auðvitað mjög skemmtileg staðreynd og ég er einstaklega stoltur af því,“ segir Mikael, sem tók við starfi framkvæmdastjóra á öðrum ársfjórðungi 2025 af Óskari Torfasyni. Óskar hafði þá stýrt fyrirtækinu frá stofnun þess um aldarmótin.

Öflugur hópur eigenda og starfsfólks stendur að baka fiskvinnslunni Drangur á Drangsnesi.

Mikael segir þó árangurinn fyrst og fremst vera liðsheildinni að þakka. „Ég er með mjög gott starfsfólk í kringum mig og heiðurinn er miklu frekar þeirra en framkvæmdastjórans. Mitt verkefni er að þróa fyrirtækið, efla það sem vel hefur verið gert og styrkja reksturinn áfram.“

Mikilvægt í litlu samfélagi

Fyrir Drang snýst sæti á listanum ekki aðeins um viðurkenningu heldur einnig um staðfestingu á því að reksturinn standi á traustum grunni. Eigendur fyrirtækisins eru rúmlega 30 og eru heimamenn á svæðinu. „Fyrir stjórnendur, eigendur og starfsfólk er þetta mikil viðurkenning á því að margt hafi verið gert rétt og góðar ákvarðanir teknar. Fyrir viðskiptavini og samstarfsaðila er þetta líka ákveðinn gæðastimpill,“ segir Mikael.

Hann segir mikilvægi þess að reksturinn sé traustur sérstaklega áþreifanlegt á stað eins og Drangsnesi. „Hér skiptir hver vinnustaður, hvert starf og hvert framtak miklu máli.“

Markmiðið sé þó ekki að komast á ákveðinn lista heldur að reka sjálfbært og arðbært fyrirtæki til lengri tíma. „Meginmarkmiðið er að vera í sjálfbærum og arðbærum rekstri og skapa heilsársstörf í okkar góða samfélagi á Drangsnesi. Að vera Framúrskarandi fyrirtæki er síðan staðfesting á því að við séum að fylgja stefnu okkar og ná markmiðum okkar.“

Vill vaxa og fjölga störfum

Mikael horfir bjartsýnn til næstu ára þrátt fyrir að hann segi pólitíska óvissu í sjávarútvegi hafa aukist, ekki síst hjá minni fyrirtækjum. „Við stefnum að aukinni verðmætasköpun með því að veiða meira og vinna meira á komandi árum. Til þess þarf auknar fjárfestingar og fjölgun starfa.“

Slík uppbygging myndi að hans sögn bæði styrkja bæði Drang og samfélagið á Drangsnesi til framtíðar.

Sjálfur tekur Mikael því að vera einn yngsti framkvæmdastjórinn á listanum af hófsemi. „Ég tek þessu með mikilli auðmýkt og lít fyrst og fremst á þessa staðreynd sem hvatningu til að halda áfram á sömu braut.“

Þann 28. október ætlar hann að gera sér ferð í Hörpu í Reykjavík þegar heildarlistinn yfir Framúrskarandi fyrirtæki verður kynntur. „Ég mæti og hlakka til að taka þátt í viðburðinum.“


Tengdar fréttir

„Það þarf að fagna því að vera Framúr­skarandi fyrir­tæki“

Það er alltaf ánægjulegt að komast í góðan félagsskap og kannski sérstaklega þegar maður hefur þurft að vinna sig aftur inn í hann. Kolibri er á ný komið á lista Creditinfo yfir Framúrskarandi fyrirtæki eftir nokkurra ára fjarveru en fyrirtækið hafði áður verið á listanum fjögur ár í röð, frá 2019 til 2022.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×