Samfélög vítt og breitt um landið heimsótt
Þáttaröðin „Um land allt“ í umsjón Kristjáns Más Unnarssonar er að hefja göngu sína að nýju. Sex nýir þættir verða frumsýndir á Sýn+ fram til jóla. Í fyrsta þætti verða sögustaðir síðustu aftökunnar á Íslandi skoðaðir. Í þáttaröðinni næstu vikur verður einnig fjallað um sveitabyggðina á Vatnsnesi, farið í Vatnsdal og Þing, Þórshöfn og Langanes verða heimsótt sem og Suðursveit.