Þingforseti Úkraínu í heimsókn

Ruslan Stefanchuk, forseti Úkraínuþings, er í opinberri heimsókn á Íslandi og fundaði í morgun með Þórunni Sveinbjarnardóttur þingforseta á Alþingi. Hann átti síðan fundi með Kristrúnu Frostadóttur forsætisráðherra og Þorgerði Katrínu Gunnarsdóttur utanríkisráðherra. Þetta er fyrsta opinbera heimsókn forseta þjóðþings Úkraínu til Íslands frá því að landið lýsti yfir sjálfstæði fyrir 35 árum.

22
00:49

Vinsælt í flokknum Fréttir