Unga (vinstri) fólkið

Þótt að Kjartan Sveinn Guðmundsson úr Ungum vinstri grænum og Ármann Leifsson úr Ungu jafnaðarfólki staðsetji sig báðir vinstra megin í lífinu eru þeir ósammála um það hvort Ísland eigi að hefja aðildarviðræður við Evrópusambandið að nýju. Kjartan hefur áhyggjur af réttindum verkafólks innan sambandsins og utanríkisstefnu Íslands hvað varðar meðal annars málefni Palestínu. Ármann sér tækifæri í efnahagsmálum, svo sem með upptöku evru, og telur meinlaust að fara í samningaviðræður við ESB. Klofningur á vinstri vængnum er auðvitað gömul saga og ný.

6
1:26:35

Vinsælt í flokknum Vísir að viðræðum