Hlaupagarpar í Hrekkjavökuhlaupi

Hlaupagarpar Náttúruhlaupa brutu upp vikulega laugardagsæfingu með því að klæðast búningum í tilefni hrekkjavöku. Fjöldi fólks gerði sér glaðan dag í búningahlaupinu í morgun og ekki ólíklegt að gangandi vegfarendur í Elliðaárdal hafi rekið í rogastans við að sjá uppábúna hlaupara. Hrekkjavakan er víða haldin hátíðlega þessa helgi þó hátíðin sé í raun ekki fyrr en á þriðjudag.

506
00:35

Vinsælt í flokknum Fréttir