Fótbolti

„Við eigum bara svalasta fyrir­liða í Evrópu“

Óskar Ófeigur Jónsson skrifar
Orri Steinn Óskarsson fagnar einu af fjölmörgum mörkum sínum fyrir landsliðið.
Orri Steinn Óskarsson fagnar einu af fjölmörgum mörkum sínum fyrir landsliðið. vísir/Anton

Arnar Gunnlaugsson, þjálfari íslenska karlalandsliðsins í fótbolta, hefur hrósað landsliðsfyrirliðanum Orra Steini Óskarssyni fyrir hans framtak í að hjálpa liðinu til að takast á við agabrot landsliðsmanna í síðasta glugga og hann gerði það aftur á blaðamannafundi í dag.

Arnar var mjög ánægður með að Orri tók sjálfur af skarið sem fyrirliði landsliðsins og kallaði saman leikmannafund án aðkomu þjálfarateymisins þar sem rædd voru agabrot nokkurra leikmanna liðsins sem fóru út á lífið í miðju landsliðsverkefni.

Arnar gerði Orra að fyrirliða þótt hann væri enn mjög ungur og tiltölulega reynslulítill en framherjinn hefur þarna enn á ný sannað fyrir landsliðsþjálfaranum að hann hefur leiðtogahæfileika og þroska til að taka á erfiðum málum.

Orri Steinn fékk líka aftur hrós á fundum í dag þegar Arnar svaraði spurningunni um hvort einhverjir leikmenn innan hópsins hafi verið ósáttir við að þeir sem gerðust sekir um agabrot hafi ekki verið nafngreindir.

„Ekki við mig persónulega en eins og ég sagði í viðtalinu við Sýn þá væri mjög heimskt að áætla að einn eða tveir í svona stórum hópi séu kannski ósáttir við hvernig tekið var á málum. Hafa einhverjir ákveðnir leikmenn sagt það við mig? Nei. Mér fannst hópurinn taka mjög vel á þessu,“ sagði Arnar.

„Mér fannst fyrirliði okkar stíga mjög vel upp. Þetta er ungur fyrirliði en við eigum bara svalasta fyrirliða í Evrópu. Það er ekki flóknara en það. Hann er 22 ára gamall og verður hér næstu 10, 15 árin,“ sagði Arnar.

„Ég talaði líka mikið við eldri leikmenn í hópnum og menn voru ánægðir með hvernig hópurinn dílaði við þetta og svo í framhaldinu hvernig ég og stjórnin díluðum við þetta,“ sagði Arnar.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×