Rahm myndi sætta sig við sömu refsingar og Koepka fékk Óskar Ófeigur Jónsson skrifar 4. nóvember 2026 11:31 Jon Rahm vill komast aftur inn á PGA-mótaröðina en það gæti orðið bið á því. Getty/Francois Nel Spænski kylfingurinn Jon Rahm segir að hann sé reiðubúinn að sætta sig við sömu refsingar og Brooks Koepka þurfti að gangast undir til að snúa aftur á PGA-mótaröðina,
Rahm er þó ekki viss um að honum verði boðinn sami samningur eftir að hafa yfirgefið LIV Golf-deildina. Rahm segir að hann hafi enn ekki rætt við PGA-mótaröðina um mögulega endurkomu þar sem hann eignaðist nýlega sitt fjórða barn. Fái Rahm ekki að keppa á PGA-mótaröðinni fyrr en hann hefur afplánað eins árs keppnisbann, sem er sú refsing sem fyrrverandi Masters-meistarinn Patrick Reed og fleiri sættu eftir að hafa yfirgefið LIV Golf, kveðst Rahm reiðubúinn að keppa á DP World-mótaröðinni árið 2027. Jon Rahm: Willing to accept penalties if deal offered for PGA Tour return - via @ESPN Mark Schlabach https://t.co/Ay8sSdg3fq— Andy Hall (@AndyHallESPN) November 3, 2026 „Hvað PGA-mótaröðina varðar eru hlutirnir aðeins öðruvísi,“ sagði Rahm við fréttamenn á þriðjudag á Abu Dhabi Aldar Championship-mótinu. „Ég hef ekki enn getað rætt við þá. Þangað til hlutirnir eru frágengnir, sem verður vonandi fljótlega, og svo sjáum við til,“ sagði Rahm. Við vitum hvað þeir gerðu við Brooks „Ég veit ekki hvað bíður okkar. Við vitum hvað þeir gerðu við Brooks. Þetta eru aðrar aðstæður. Ég veit ekki hvernig hlutirnir munu líta út. En það er ansi gott öryggisnet að geta spilað á DP World-mótaröðinni á næsta ári og ef til þess kemur hlakka ég mikið til að spila þar í heilt ár,“ sagði Rahm Í janúar sneri Koepka aftur á PGA-mótaröðina samkvæmt nýju endurkomukerfi (Returning Member Program), sem gerði LIV-kylfingum sem höfðu verið fjarri mótaröðinni í að minnsta kosti tvö ár – og höfðu unnið Players Championship eða eitt af risamótunum fjórum (Masters, PGA, Opna bandaríska og Opna breska) frá árinu 2022 – kleift að snúa aftur með ákveðnum skilyrðum og þungum fjárhagslegum refsingum. Jon Rahm: "Brooks was able to go back through certain circumstances. I don't know if the possibility of that would be open for me or not." ⬇️ Could Jon Rahm return to the @PGATour under circumstances similar to Brooks Koepka? 👀 https://t.co/sQtTQtdKhk— Golf Channel (@GolfChannel) November 3, 2026 Meðal skilyrða fyrir endurkomu Koepka var að fimmfaldi risamótameistarinn samþykkti að afsala sér öllum hlutabréfum leikmanna næstu fimm árin og hann átti ekki rétt á þátttöku í hundrað milljóna dala bónuskerfi FedEx Cup árið 2026. Að beiðni PGA-mótaraðarinnar samþykkti Koepka einnig að gefa fimm milljónir dala til góðgerðarmála. Aðrir LIV-kylfingar sem áttu rétt á að snúa aftur voru meðal annars Rahm, Bryson DeChambeau, sigurvegari Opna bandaríska 2024, og Cameron Smith, sigurvegari Players Championship og Opna breska 2022. Allir ákváðu þeir að vera áfram hjá LIV Golf. Af hverju ekki? Á þriðjudag sagðist Rahm reiðubúinn að gera nákvæmlega það sama og Koepka gerði til að snúa aftur. „Líklegast, já,“ sagði Rahm. „Af hverju ekki? Já, en það er stórt ef. Ég efast stórlega um að mér verði boðinn sami samningur og Brooks fékk. En já, ef mér yrðu boðnar nákvæmlega sömu refsingar og honum myndi ég líklega gera það, já,“ sagði Rahm.
Golf LIV-mótaröðin Mest lesið Kemur Íslendingnum unga til varnar Fótbolti „Þetta hefði getað komið fyrir mig“ Fótbolti Víkingar syrgja stuðningsmann sem lést langt fyrir aldur fram Íslenski boltinn „Mikið af lygum um margt sem hefur gerst á milli mín og stjórans“ Fótbolti Sjáðu upprisu United og öll hin mörkin úr Meistaradeildinni Fótbolti Upphafið að endurreisn? Mögnuð endurkoma Manchester United Fótbolti Áfram skorar Andri Lucas Enski boltinn Fær morðhótanir eftir andlát spænska knattspyrnumannsins Fótbolti Scholes segir Arsenal vera leiðinlegt lið Enski boltinn Uppreisn á Old Trafford: Stuðningsmenn United mótmæla Fótbolti Fleiri fréttir Rahm myndi sætta sig við sömu refsingar og Koepka fékk Hitti holu í höggi á fyrsta hring ævinnar Eva bætti hvert metið á fætur öðru Frábær árangur Evu sem sló met í Bandaríkjunum Rahm segist vilja rifta við LIV Sjá meira