Uppgjörið: Njarðvík-Grindavík 93-97 | Grindavík á toppnum með fullt hús stiga Stefán Marteinn Ólafsson skrifar 3. nóvember 2026 21:31 Abby Beeman og félagar í Grindavík hafa byrjað tímabilið af miklum krafti. Vísir/Anton Grindavík er með fullt hús stiga á toppi Bónus deildar kvenna í körfubolta eftir sterkan fjögurra stiga sigur 97-93, gegn ríkjandi Íslandsmeisturum Njarðvíkur í kvöld. Leikurinn fór fjörlega af stað og Grindavík átti fyrstu stig leiksins og byrjaði fyrstu mínúturnar mun betur. Voru sterkar varnarlega og náðu að halda Njarðvík í skefjum ásamt því að taka góðar ákvarðanir sóknarlega. Heimakonur unnu sig þó vel inn í leikhlutann og voru með forystu eftir fyrsta leikhluta 23-21 en Sara Björk Logadóttir setti þá flautuþrist til að koma Njarðvík yfir. Njarðvík byrjaði annan leikhluta af miklum krafti og keyrði upp hraðann sem Grindavík átti í erfiðleikum með að halda í við. Það færðist smá hiti í þetta undir lok leikhlutans og Brittany Dinkins og Abby Beeman lentu aðeins saman en það var stigið inn á milli og leyst nokkuð fljótt. Brittany Dinkins var þá að keyra hratt upp völlinn með Abby Beeman fasta við hælana á sér. Þegar liðin gengu til búningsklefa í hálfleik leiddi Njarðvík með sex stiga mun 53-47. Grindavík mætti með krafti út úr hálfleiknum og náðu að snúa leiknum sér í hag með því að setja frábær skot og spila virkilega vel. Þær sóttu sér fjögurra stiga forskot áður en Einar Árni tók leikhlé fyrir Njarðvík til þess að reyna stilla saman strengi. Njarðvík mætti betur út eftir þetta leikhlé en Grindavík var þó skrefinu framar. Þegar leið á leikhlutann og undir restina náði Njarðvík þó góðu áhlaupi og sóttu tveggja stiga forskot fyrir fjórða leikhluta 75-73. Grindavík byrjaði fjórða leikhlutann mun betur og snéru leiknum sér í hag snemma og reyndust Njarðvík erfiðar viðureignar varnarlega og voru að þvinga þær oft á tíðum í erfið skot. Eftir því sem leið á leikhlutann óx sjálfstraust Grindavíkur sem hélt áfram að safna forskot. Njarðvík fékk ótal tækifæri til þess að saxa á en brást bogalistinn og Grindavík sótti gríðarlega öflugan sigur í IceMar höllina 93-97 og eru því ósigraðar áfram á toppi deildarinnar. Atvik leiksins Njarðvík fékk hvert opna þriggja stiga skotið og sóknarfrákast á fætur öðru undir lok fjórða leikhluta til þess að minnka muninn niður í eitt stig þegar tæp mínútu lifði leiks. Brittany Dinkins fékk tækifæri, Hulda María Agnarsdóttir og Helena Rafnsdóttir en boltinn vildi bara ekki ofan í. Þetta drap svolítið vonarneistann sem var að kvikna og Grindavík hélt út. Stjörnur og skúrkar Hjá Grindavík var Abby Beeman með þrefalda tvennu en hún setti niður 21 stig, tók 12 fráköst og gaf 14 stoðsendingar. Farhiya Abdi var einnig öflug og endaði með 23 stig og gaf 5 stoðsendingar. Hjá Njarðvík var Brittany Dinkins á eldi og lang stigahæst á vellinum með 42 stig en hún gaf einnig 10 stoðsendingar og reif niður 8 fráköst. DómararnirKristinn Óskars, Jón Þór og Sófus Máni sáu um flautuleikinn í IceMar höllinni í kvöld. Heilt yfir fannst mér þeirra frammistaða í kvöld bara með þokkalegasta móti.Stemning og umgjörðÞað var stuð og stemning í IceMar höllinni í kvöld þegar toppslagurinn fór fram. Hér var allt upp á 10,5 og frábær skemmtun í alla staði.ViðtölEinar Árni Jóhannsson þjálfari Njarðvíkur.Anton Brink/Vísir„Stöngin út dagur og það er bara áfram gakk“„Hörkuleikur eins og við var að búast og mikil barátta“ sagði Einar Árni Jóhannsson þjálfari Njarðvíkur svekktur í leikslok.„Svekktur að tapa, mér fannst við spila frekar vel í 33-34 mínútur. Við urðum svolítið staðar sóknarlega í seinni hluta fjórða leikhluta og vorum óheppnar að klikka á þremur sniðskotum, klaufalegir tapaðir boltar sem að gáfu þeim sniðskot og svona dýrir hlutir sem að telja helvíti mikið þegar við erum í jöfnum leik“Njarðvík virkaði í bílstjórasætinu eftir fyrri hálfleikinn en Grindavík mættu mun grimmari til leiks í síðari hálfleikinn.„Þetta eru bara tvö jöfn lið og að tala um að við höfum haft öll völd, við vorum yfir í tíu af tuttugu mínútum í fyrri hálfleik og förum inn í hálfleikinn á fínum stað í jöfnum leik og það er bara stutt á milli“„Þær eru svona helst til á hárri prósentu í tveggja stiga nýtingu í dag, einhver 63% sem er bara of mikið og svo bara þessu litlu hlutirnir eins og ég segi, við klikkum á einhvejrum 2-3 sniðskotum hérna í fjórða og fáum 3-4 galopna þrista sem að öllu jöfnu myndu detta. Þetta bara bara stöngin út dagur og það er bara áfram gakk“ sagði Einar Árni Jóhannsson. Bónus-deild karla UMF Njarðvík UMF Grindavík