„Þetta er svona Pollýönnuleikur akkúrat núna“ Óskar Ófeigur Jónsson skrifar 2. nóvember 2026 11:01 Deandre Kane tók utan um Njarðvíkinginn Makye Richard og virtist hughreysta hann eftir galna ákvörðun Richard í leikslok. Richard átti stórleik en klúðraði á endanum möguleika Njarðvíkur á að vinna leikinn með því að taka lokaskotið langt fyrir aftan miðju þegar nægur tími var eftir. Sýn Sport Njarðvíkingar áttu mjög góðan leik á heimavelli Íslandsmeistara Grindavíkur í síðustu umferð Bónusdeildar karla í körfubolta en þurftu samt að sætta sig við tap í framlengingu og vera því enn án sigurs eftir fjóra leiki. Körfuboltakvöld ræddi stöðuna á Njarðvíkurliðinu.
Sérfræðingarnir Teitur Örlygsson og Helgi Már Magnússon ræddu frammistöðu Njarðvíkurliðsins í leiknum. Makye Richard var með 44 stig og 8 stoðsendingar í leiknum en tók furðuskot í lok leiks langt fyrir aftan miðju þegar hann hafði mun meiri tíma en hann hélt hann hefði. „Hann hefur möguleiki bara ekki áttað sig á því að klukkan stoppar eftir skoraða körfu og bara veður af stað og lætur vaða,“ sagði Helgi Már sem benti á það þegar Grindvíkingurinn Deandre Kane tók utan um hann þegar hann var að svekkja sig yfir þessari furðuákvörðun sinni. Fegurð í þessu „Það er nú samt fegurð í þessu að Kane sé að grípa hann þarna og svona stappa í hann stálinu,“ sagði Helgi og bætti við: „Þeir voru í algjöru basli með hann. Þannig að það er leiðinlegt að hann skyldi enda þetta svona,“ sagði Helgi. Klippa: Körfuboltakvöld: Umræða um slaka byrjun Njarðvíkinga „Ég held að hann hafi sannað það að þetta er hörkuleikmaður,“ sagði Teitur og báðir bentu á það að hann tapaði ekki einum bolta í leiknum. Líka ánægður með hann í viðtalinu „Þetta var náttúrulega bara magnaður leikur hjá honum og ég var líka ánægður með hann í viðtalinu. Þá bara tekur hann þessi mistök þarna í lok leiksins á sig og ber bara ábyrgð á því. Ég veit ekki hvað honum gekk til með þessu en þetta var hörkuskot og með smá heppni hefði Njarðvík unnið leikinn af því þeir tóku frákastið,“ sagði Teitur. Stefán Árni benti á að þetta hefði verið besti leikur Njarðvíkinga til þessa í vetur. „Þeir verða náttúrulega að nýta þennan leik og þetta er svona smá Pollýönnuleikur akkúrat núna. Liðið þarf að reyna að taka eitthvað jákvætt út úr þessu og þeir eru að spila betur,“ sagði Helgi og hrósaði David Okeke sem var með 29 stig í sínum fyrsta leik með Njarðvík. „Þetta er leikur sem hefði getað stolið,“ sagði Helgi. „Það er ekki endalaust hægt að vera í einhverjum Pollýönnuleik. Þú veist, þeir eru 0 og 4. Þú veist, það er ekki hægt að segja og fela sig á bak við það: „Heyrðu, við erum búnir að vera góðir í þrem leikjum og við hefðum getað unnið þá,“ sagði Teitur sem skilur pirringinn í Rúnari Inga Erlingssyni þjálfara. Verða bara að vera sterkir „Njarðvíkingarnir verða bara að vera sterkir. Þeir verða bara að þjappa sér saman núna og halda áfram að reyna að vera betri, læra að loka leikjum,“ sagði Teitur og hélt áfram: „Njarðvík hefði þurft svo lítið í viðbót til þess að vinna þennan leik og á meðan þeir trúa því og fara inn á næstu æfingu með þessa trú um að það styttist og vonandi bara strax í næsta leik komi fyrsti sigurinn,“ sagði Teitur sem vildi vera jákvæður þrátt fyrir erfiða stöðu í töflunni. Það má horfa á alla umræðuna um Njarðvík hér fyrir ofan.
Bónus-deild karla UMF Njarðvík Körfuboltakvöld Mest lesið Segir að Cristiano Ronaldo hafi verið búinn árið 2021 Enski boltinn Eiður fær enn hlýjar þakkir á Anfield Enski boltinn Fremsta afreksfólk Íslands fær 600 þúsund í verktakalaun Sport Hjörvar gaf Ljungberg búning íslenska handboltalandsliðsins Enski boltinn Þjálfari Hákons grét eftir leik Fótbolti Lést aðeins tveimur árum eftir að hún varð Evrópumeistari Sport „Drengurinn minn á skilið að hans sé minnst með ást en ekki hatri“ Enski boltinn Ítalinn ungi hágrét eftir sögulegan heimsmeistaratitil Formúla 1 Fjórtán ára drengur gaf sig fram við lögreglu Sport Sjáðu mark Havertz og „augljósa vítið“ sem ekki var dæmt Enski boltinn Fleiri fréttir „Þetta er svona Pollýönnuleikur akkúrat núna“ Tryggvi hafði betur gegn Rubio Fyrstur síðan David Robinson var og hét Furða sig á því að Veigar megi ekki æfa: „Alveg fáránlegt“ Ótrúlegar troðslur: „Með einari!“ Hent úr húsi: „Held hann hafi ekki reynt að sparka í typpið á mér“ „Hans besti leikur“ Styttan af Dwyane Wade fékk nýjan haus „Þessi seinni hálfleikur var það besta sem við höfum gert hingað til” Uppgjörið: Grindavík-Njarðvík 104-103 | Pargo með sigurkörfuna Stólarnir reka Israel Martin og Hlynur Freyr fær stöðuhækkun Uppgjörið: Valur-Ármann 87-84 | Misstu næstum því sigurinn frá sér Missti af leik með KR vegna herskyldu „Ég hefði frekar kýlt hana í andlitið“ „Ég er oftast mjög rólegur“ Uppgjörið: Tindastóll-Álftanes 105-108 | Spennutryllir í Síkinu Uppgjörið: Keflavík-Höttur 112-99 | Góður endasprettur Keflvíkinga Uppgjörið: KR - Sindri 107-102 | Seiglan sigraði Sindra Sjáðu slagsmálin í Síkinu Uppgjörið: Stjarnan-ÍR 102-96 | Loksins Stjörnusigur „Lið sem enginn vill mæta núna“ Hengja upp treyju lágvaxnasta leikmannsins í sögu NBA Martin fagnaði á móti Tryggva eftir spennuleik Uppgjörið: Tindastóll-Valur 45-72 | Stólarnir klesstu á Valsvegg Grindavíkurkonur áfram á sigurgöngu Elvar með stórleik í Evrópukeppninni Uppgjörið: Keflavík - Stjarnan 72-92| Stjarnan heldur áfram að heilla Haukar völtuðu yfir KR og Ármann hrekkti meistarana Veigar opnar sig um lyfjamálið: „Ég var ekkert að fela neitt“ Hætti við Lakers sökum hroka Kobe Sjá meira