Erlent

Netárásir á almannavarnarkerfi Úkraínu­manna og Rússa

Oddur Ævar Gunnarsson skrifar
Ósprunginn árásardróni í Kherson héraði í austur Úkraínu.
Ósprunginn árásardróni í Kherson héraði í austur Úkraínu. AP Photo/Evgeniy Maloletka

Netárásir voru gerð á almannavarnarkerfi bæði Úkraínumanna og Rússa í nótt með þeim afleiðingum að fölsk skilaboð voru send á almenning um yfirvofandi árásir. Í tilefni Rússa virðist sem hluti almennings hafi verið varaður við því að kjarnorkuvopnaárás væri yfirvofandi.

Í umfjöllun BBC kemur fram að fölsk skilaboð um yfirvofandi árásir hafi verið send á almenning um gervalla Úkraínu. Almenningur hafi í gegnum snjallsíma verið varaður við geislun, efnavopnaárásum og skærum meðal borgara. Yfirvöld þar í landi hafi dregið viðvaranirnar til baka innan klukkutíma og látið vita að um netárásir væri að ræða.

Fram kemur í umfjöllun miðilsins að almannavarnarkerfi Rússa hafi einnig orðið fyrir árás. Ekki liggi fyrir hve stór hluti almennings þar hafi fengið falskar viðvaranir. Samkvæmt fullyrðingum úkraínsks njósnahóps voru viðvaranir um kjarnorkuvopnaárásir send á hluta rússneskra notenda. Þeir voru beðnir um að sanka að sér vistum til þriggja vikna og fela sig.

Samkvæmt BBC kenna yfirvöld í Úkraínu Rússum fyrir netárásina. Rússar hafa enn ekki tjáð sig um hver þeir halda að beri ábyrgð á árásunum. Fram kemur að netárásirnar hafi komið í ljós örfáum mínútum áður en vopnahléi milli landanna lauk í Kherson héraði. Í nótt hafi árásir á orkuinnviði haldið áfram bæði í Úkraínu og Rússlandi.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×