Fótbolti

Tvær tvennur þegar Börsungar tættu gestina í sig

Sindri Sverrisson skrifar
Lamine Yamal og Gabriel Jesus glaðbeittir eftir seinna mark Yamals í kvöld sem Jesus lagði upp.
Lamine Yamal og Gabriel Jesus glaðbeittir eftir seinna mark Yamals í kvöld sem Jesus lagði upp. Getty/David Ramos

Eftir að hafa tapað tveimur leikjum í röð létu Barcelona-menn gesti sína frá Alavés finna fyrir því á Camp Nou í kvöld og unnu 6-1 stórsigur.

Lamine Yamal, efnilegasti leikmaðurinn og sá þriðji besti í heiminum samkvæmt Gullboltakjörinu síðasta mánudag, skoraði tvö mörk í kvöld og það gerði einnig Raphinha.

Báðir nutu sín í botn fyrir framan Rodri sem átti eina stoðsendingu í leiknum. Fermín López og Anthony Gordon skoruðu einnig en Mariano Diaz gerði mark Alavéz þegar skammt var eftir af leiknum.

Barcelona náði þar með toppsætinu aftur af Atlético Madrid sem vann Levante 2-0 á útivelli fyrr í dag og eru Börsungar með tveggja stiga forskot, með 30 stig eftir 11 leiki. Þeir eru sex stigum á undan Real Madrid sem á leik til góða við Racing Santander á morgun.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×