Innlent

Ráð­herrar einnig látið sig vanta í at­kvæða­greiðslur

Eiður Þór Árnason skrifar
Ráðherrarnir hafa lítið látið sjá sig í atkvæðagreiðslum síðustu tvo mánuði.
Ráðherrarnir hafa lítið látið sjá sig í atkvæðagreiðslum síðustu tvo mánuði. Vísir

Forsætisráðherra og ráðherrar Viðreisnar hafa ekki verið viðstaddir neinar skráðar atkvæðagreiðslur á Alþingi frá þingsetningu þann 8. september. Ef horft er á síðasta þing blasir önnur mynd við.

Fjallað var um þátttöku Sigmundar Davíðs Gunnlaugssonar, formanns Miðflokksins, í atkvæðagreiðslum í Sætinu á Vísi í gær. Hann hefur líkt og áðurnefndir ráðherrar ekki greitt atkvæði í neinum af þeim 23 atkvæðagreiðslum sem hafa verið skráðar á vef Alþingis á yfirstandandi þingi. 

Hefur Sigmundur Davíð ásamt Kristrúnu Frostadóttur forsætisráðherra, Hönnu Katrínu Friðriksson atvinnuvegaráðherra, Þorbjörgu Sigríði Gunnlaugsdóttur dómsmálaráðherra og Þorgerði Katrínu Gunnlaugsdóttur utanríkisráðherra þá ýmist ekki mætt eða tilkynnt fjarvist sína. Vísir hefur óskað eftir svörum frá ráðherrunum en Daði Már Kristófersson, fjármála- og efnahagsráðherra Viðreisnar, á ekki sæti á Alþingi.

Mikill fjöldi atkvæðagreiðslna fer alla jafna fram á hverju þingi og er mæting þingmanna nokkuð misjöfn. Hafa sumir þingmenn þannig sætt gagnrýni fyrir reglulega fjarveru í gegnum tíðina en ljóst er að dagskrá þingmanna sem sinna ráðuneytum er alla jafna þéttari en hjá almennum þingmönnum.

Skrifstofa Alþingis heldur vel utan um þátttöku og ræðufjölda þingmanna.Vísir/vilhelm

Fá mál í þinginu

Fá mál hafa verið afgreidd úr þinginu á þeim tæpu tveimur mánuðum sem liðnir eru af starfsáætlun. Því er mest um að ræða atkvæðagreiðslur um afgreiðslu þingmála úr annarri umræðu í þá þriðju en ekkert frumvarp má samþykkja sem lög fyrr en það hefur farið í gegnum þrjár umræður á þinginu.

Einungis þrjú mál hafa hlotið lokaatkvæðagreiðslu á yfirstandandi þingi: 1) Frumvarp um breytingu á lögum um landlækni og lýðheilsu þar sem þremur orðum var bætt aftan við eina málsgrein laganna, 2) Frumvarp um breytingu á lögum um réttindi og skyldur starfsmanna ríkisins þar sem stöku orði var skipt út og 3) Frumvarp um breytingu á lögum um menningarminjar og lögum um mannvirki. 

Hvorki Sigmundur Davíð né áðurnefndir ráðherrar greiddu atkvæði um frumvörpin þrjú.

Greiddu mun oftar atkvæði á síðasta þingi

Ef horft er á tölfræðina fyrir síðasta þing, sem stóð yfir frá 9. september 2025 til 19. júní 2026, blasir önnur mynd við.

Á 157. þingi tók Kristrún forsætisráðherra til að mynda þátt í 83 prósent skráðra atkvæðagreiðslna á Alþingi. Þá var hlutfallið 78 prósent hjá Hönnu Katrínu Friðriksson atvinnuvegaráðherra og 77 prósent hjá Þorbjörgu Sigríði Gunnlaugsdóttur dómsmálaráðherra. Lægst var hlutfallið meðal ráðherra á þingi hjá Þorgerði Katrínu Gunnlaugsdóttur utanríkisráðherra eða 38 prósent. Þetta sýna gögn Alþingis. 

Til samanburðar tók Sigmundur Davíð þátt í 36 prósent skráðra atkvæðagreiðslna á síðasta þingi.

Ef loks er horft á formenn annarra stjórnmálaflokka er Inga Sæland, mennta- og barnamálaráðherra Flokks fólksins, með 62 prósent mætingu í skráðar atkvæðagreiðslur á síðasta þingi, Guðrún Hafsteinsdóttir, formaður Sjálfstæðisflokksins, með 52 prósent og Sigurður Ingi Jóhannsson, sem var formaður Framsóknar fram í febrúar, með 34 prósent.

Spyrja þurfi að leikslokum

Þátttaka þingmanna í atkvæðagreiðslum er einungis einn mælikvarði á virkni þeirra á þinginu og má einnig horfa til annarra þátta eins og ræðutíma og þátttöku í nefndarstarfi.

Þegar Sigmundur Davíð var spurður út í atkvæðagreiðslurnar í Sætinu á Vísi í gær sagði hann þær hafa verið fáar fram að þessu líkt og venjan væri í upphafi þings.

„Við skulum bara telja þegar þinginu er lokið. Það er mjög lítið hægt að segja af atkvæðagreiðslum þegar þær eru bara ein eða tvær stöku sinnum um hvort það skuli biðja um skýrslu. Ég hef verið virkur hér í umræðum í þinginu og verð það áfram.“

Fara reglulega í ræðustól

Ef stiklað er á stóru í ræðufjölda þingmanna á yfirstandandi þingi má sjá að efst á lista raðar sér Sigríður Á. Andersen, þingflokksformaður Miðflokksins, með 85 ræður og andsvör.

Ragnar Þór Ingólfsson, félags- og húsnæðismálaráðherra, er í fimmta sæti með 58 og um leið efstur stjórnarþingmanna. Inga Sæland, mennta- og barnamálaráðherra, kemur fast á eftir með 57 og þá hefur Jóhann Páll Jóhannsson, umhverfis-, orku- og loftslagsráðherra, komið 54 sinnum í ræðustól á yfirstandandi þingi, samkvæmt tölum Alþingis.

Þorgerður Katrín utanríkisráðherra er í áttunda sæti yfir ræðumenn og Kristrún forsætisráðherra í því níunda. Að lokum er Sigmundur Davíð í 38. sæti með 21 skráða ræðu og andsvar, færri en allir ráðherrar.

Fréttin hefur verið uppfærð.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×